
Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra Íslands, er nýjasti gesturinn í Einni Pælingu en um er að ræða hlaðvarp sem hefur notið vinsælda að undanförnu.
Þórarinn Hjartarson spurði hana í þættinum af hverju hún og aðrir í ríkisstjórninni mættu ekki í netþáttinn Spursmál sem Stefán Einar Stefánsson stýrir en Stefán hefur ítrekað kvartað yfir því í þættinum.
Kristrún hafnar því að hún og aðrir í ríkisstjórninni séu sérstaklega að forðast Stefán Einar. „Ég fylgist ekki með hver mætir í Spursmál,“ segir forsætisráðherrann og bendir á að hún tali sennilega mest við Morgunblaðið af öllum fjölmiðlum og geri það eftir ríkisstjórnarfundi. Þá fái fjölmiðlar veglegan tíma til að spyrja spurninga.
„Stefán getur bara mætt þangað eins og aðrir,“ heldur hún áfram og segir að það sé ekki sjálfgefið að hún mæti í alla spjallþætti sem henni er boðið í.

Komment