1
Peningar

Fjórtán í Mosfellsbæ sem synda í seðlum

2
Innlent

Ingunn Rut fékk fimm og hálfa milljón eftir pyntingar á manni

3
Heimur

Níu líffæri fjarlægð eftir ranga greiningu

4
Innlent

MAST varar við girnilegri súkkulaðiköku

5
Fólk

„Það var ekki til neinn peningur“

6
Fólk

Óska eftir tilboði í eitt eftirsóttasta hús Garðabæjar

7
Sport

Bjuggu til sögusagnir í kringum veikindi Jóns

8
Innlent

Reykvíkingur nær ekki í eiginmann sinn og vill skilja

9
Heimur

Kókaínkennari sviptur starfsréttindum

10
Peningar

Þrettán á Seltjarnarnesi sem eru loðin um lófanna

Til baka

„Ég man ennþá bragðið af byssuhlaupinu“

Mummi Týr glímdi lengi við sjálfsvígshugsanir

Mummi Týr
Mummi TýrMummi hefur margar fjörurnar sopið
Mynd: Aðsend

Mummi Týr Þórarinsson er eilífðartöffari sem djöflaðist í gegnum fyrri hluta ævinnar í drykkju, dópi og veseni og var með sjálfsmorðshugsanir í mörg ár. Hann man enn eftir bragðinu af hlaupi haglabyssunnar þegar hann ætlaði að ljúka þessu. Hér fyrir neðan má sjá brot úr einkaviðtali Mannlífs við Mumma, þar sem hann segir frá sjálfsvígshugsunum sínum sem hann glímdi við í fjöldi ára.

Bragðið af byssuhlaupinu

Hann var með sjálfsmorðshugsanir frá unglingsárum sem fylgdu honum inn í fullorðisárin. Hann segir frá atviki því tengdu.

„Ég var með haglabyssu inni í einhverju herbergi sem ég leigði og ég man ennþá bragðið af byssuhlaupinu. Mér fannst alltaf eitthvað meira bíða mín heldur en að hverfa. Þó það væri engin eftirspurn eftir mér þá trúði ég því ekki að þetta gæti endað svona. Þannig að mínar tilraunir til sjálfsvígs voru algjörlega í einrúmi og ég talaði aldrei um þær. Svo byrjuðu vinirnir að deyja af slysförum og ofskammti og jarðarförunum fór að fjölga og ég fylltist alltaf af sorg af því að þetta gat verið ég líka.“

Jú, hann man ennþá bragðið af hlaupinu af haglabyssunni. Hvað stoppaði hann í að taka í gikkinn? Enda þetta? Drepa sjálfan sig?

„Það var eitthvað „moment of clarity“. Fyrst hugsaði ég að aðkoman yrði hræðileg. Þetta var haglabyssa þannig að hausinn yrði á veggnum fyrir aftan rúmið mitt. Það var fyrsta meðvitaða hugsunin. Svo hugsaði ég að það hlyti að vera eitthvað stærra í þessu lífi heldur en þetta.“

Hvað er dauðinn í huga Mumma Týs?

„Ég er svo mikill spírítisti. Ég veit að það er eitthvað stærra af alheimsvitundinni heldur en holdið og þetta skrifborð sem ég sit við og eitthvert tölvudrasl.“

Mummi segir að ótti við dauðann sé eðlislæg viðbrögð mannsins og hluti af sjálfsbjargarhvötinni. Sjálfur hafi hann þó aldrei litið á dauðann sem endapunkt heldur frekar sem upphaf að einhverju nýju. Sú sannfæring byggist ekki á áþreifanlegum sönnunum heldur á eigin tilfinningu og lífsreynslu. Að hans mati sé tilveran stærri og dýpri en það sem sjáist á yfirborðinu og hann lýsir þeirri trú með hugtakinu „ljósið“. Hann segist því vera sannfærður um að dauðinn marki upphaf nýs ferðalags fremur en endalok.

„Ég hef nokkrum sinnum veikst mjög illa og samkvæmt öllum líkindum hefði ég átt að vera dauður mörgum sinnum út af aðstæðunum sem ég var kominn í og félagar mínir voru að deyja lengi vel. Gamlir fíklar. Einhvern veginn náði ég þessum aldri.

Eins og ég sagði er dauðinn upphaf að nýju ferðalagi og ég held að það sé miklu erfiðara fyrir aðstandendur heldur en þann sem deyr. Þannig að dauðinn hræðir mig ekki. Hann er ekki ógnvekjandi. Það er jafnheilbrigt að deyja eins og að fæðast. Ég hef grúskað mjög mikið í þessum andlegu málum og séð hluti og skynjað hluti og það hefur verið fullt af skrýtnum uppákomum í mínu lífi þar sem ég hef stundum haldið að ég væri að missa það.“

Mummi segist sannfærður um að annað ferðalag taki við eftir dauðann. Hann vísar meðal annars til þess að tveir miðlar, sem hafi ekki þekkst og rætt við hann við ólík tækifæri, hafi hvor um sig sagt honum að hann hefði verið óheiðarlegur í fyrri lífum. Að hans sögn styrkti það enn frekar þá trú hans að tilveran nái út fyrir eitt líf og að eitthvað taki við að því loknu.

„Ég var sem sagt bullandi óheiðarlegur og ég hikaði ekki við að fjarlægja fólk ef það var fyrir áformum mínum en ég var alltaf rosalega smart í tauinu. Og í þessari jarðvist er ég að læra heiðarleika og ég er sennilega heiðarlegasti maður sem ég veit um. Þá er ég ekki að meina að ég sé ekki að stela veskjum heldur á ég við að ég sé ein af tilfinningalega heiðarlegustu manneskjum sem ég veit um af því að ég er sannur hver ég er. Ég er ekkert að sýna dúdda í íbúðinni við hliðina aðra hlið heldur en ég sýni konunni minni. Ég verð að vera sannur af því að mig langar ekki að koma aftur og þurfa að labba þessa leið aftur. Þannig að dauðinn fyrir mér er ekki endalok heldur upphaf að einhverju öðru.“

Í þessari grein er fjallað um sjálfsvígshugsanir

Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi er bent á stuðning í Sorgarmiðstöð s. 551-4141, upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is og á Píeta símann s.552-2218.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Trump með óvenjulegt útspil við Kanada
Heimur

Trump með óvenjulegt útspil við Kanada

„Hafið tilbúinn pakka af batteríum“
54 einstaklingar munu ekki fá áframhaldandi starf hjá borginni
Pólitík

54 einstaklingar munu ekki fá áframhaldandi starf hjá borginni

Tveir létust í nautahlaupi í Mexíkó
Myndband
Heimur

Tveir létust í nautahlaupi í Mexíkó

Alríkisdómari hafnar kröfu Ghislaine Maxwell um frelsi
Heimur

Alríkisdómari hafnar kröfu Ghislaine Maxwell um frelsi

Hvetja fólk til að sýna aðgát í Vestmanneyjum
Landið

Hvetja fólk til að sýna aðgát í Vestmanneyjum

Katrín Jakobsdóttir talar á útifundi Áfram Ísland
Pólitík

Katrín Jakobsdóttir talar á útifundi Áfram Ísland

Handtekinn fyrir að berja hund
Heimur

Handtekinn fyrir að berja hund

„Ef ég er að fela þetta þá væri það erfiðara“
Fólk

„Ef ég er að fela þetta þá væri það erfiðara“

Skelfing í Portúgal þegar maður ók á hóp ungmenna og lögreglumenn
Heimur

Skelfing í Portúgal þegar maður ók á hóp ungmenna og lögreglumenn

Kristrún sendir Rússlandsstjórn tóninn
Pólitík

Kristrún sendir Rússlandsstjórn tóninn

Sigfús fasteignasali kærir þjóðaratkvæðagreiðsluna
Pólitík

Sigfús fasteignasali kærir þjóðaratkvæðagreiðsluna

Eigandi 49ers sakaður um vændiskaup
Sport

Eigandi 49ers sakaður um vændiskaup

Dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að „móðga hetjur“
Heimur

Dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að „móðga hetjur“

Fólk

„Ef ég er að fela þetta þá væri það erfiðara“
Fólk

„Ef ég er að fela þetta þá væri það erfiðara“

Óttar Örn opnar sig varðandi kvíða
Óska eftir tilboði í eitt eftirsóttasta hús Garðabæjar
Myndir
Fólk

Óska eftir tilboði í eitt eftirsóttasta hús Garðabæjar

Sána og sex svefnherbergi til sölu í draumahúsi
Myndir
Fólk

Sána og sex svefnherbergi til sölu í draumahúsi

Krafturinn í því að vera loksins séð
Fólk

Krafturinn í því að vera loksins séð

„Það var ekki til neinn peningur“
Fólk

„Það var ekki til neinn peningur“

Lykillinn að hamingju Elínar Hall
Fólk

Lykillinn að hamingju Elínar Hall

Loka auglýsingu