1
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

2
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

3
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

4
Innlent

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest

5
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

6
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

7
Heimur

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

8
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

9
Fólk

Sjö merki um að þú sért með réttu manneskjunni

10
Heimur

Lögreglan rannsakar líkfund á Tenerife

Til baka

Fimm af sjö fundnir á lífi eftir hættulega leit í helli

„Þvílík tilfinning!“

björgun
Frá björguninniAlþjóðlegt kafarateymi fann þorpsbúana
Mynd: Instagram-skjáskot

Fimm þorpsbúar sem höfðu setið fastir í flóðum inni í helli í Laos í meira en viku fundust á lífi, en tveggja er enn saknað.

Hópurinn fór inn í helli í Xaisomboun-héraði þann 19. maí, í leit að gulli en miklar rigningar ollu skyndiflóðum sem lokuðu útgönguleiðinni og innilokuðu sjö manns, samkvæmt upplýsingum frá laóskum og tælenskum björgunarsveitum sem tóku þátt í aðgerðinni.

Bounkham Luanglath hjá samtökunum Rescue Volunteer for People sagði að fimm hefðu fundist heil á húfi, en leit héldi áfram að tveimur til viðbótar.

„Ég er enn að skjálfa. Okkar teymi tókst þetta,“ sagði hann í hljóðskilaboðum.

Myndband sem tælensk björgunarsveit birti virðist sýna augnablikið þegar kafarar komu upp úr vatninu og fundu þorpsbúana.

Á myndskeiðinu sjást þeir sitja á kletti umkringdir flóðavatni, allir með höfuðljós.

Reyndu að finna loftgöt inn í hellinn

Björgunarsveitir höfðu áður greint frá því að leit dagsins hefði meðal annars falist í því að kanna loftgöt fyrir ofan hellinn í von um að finna mögulegar leiðir að fólkinu.

Björgunarfólk frá Taíland kom á svæðið um helgina til að aðstoða við aðgerðina.

Meðal þeirra voru kafarar frá nokkrum löndum sem tóku þátt í hinni flóknu björgun árið 2018 þegar tólf skólapiltar og knattspyrnuþjálfari þeirra sátu fastir í helli í norðurhluta Taílands í meira en tvær vikur.

Í leitinni höfðu kafarar farið um 100 metra inn í þröngan, vatnsfylltan hellinn og töldu á þeim tímapunkti að þorpsbúarnir væru 30 metrum lengra inni. Unnið var að því að dæla vatni úr hellinum til að auðvelda björgunaraðgerðirnar.

Erfitt fjalllendi og miklar rigningar

Hellirinn er staðsettur á afskekktu og hrjóstrugu svæði í Longcheng-héraði, um 120 kílómetra norðan við höfuðborgina Vientiane.

Björgunarfólk hefur lýst erfiðum aðstæðum á samfélagsmiðlum, þar sem bæði fjalllendi og miklar rigningar hafa torveldað aðgerðir.

Myndbönd frá tælenskum björgunarsveitum sýna að það tekur um fjögurra kílómetra göngu upp bratta leið að komast að hellisopinu.

Sjálft opið er þröngt, bratt og grýtt og aðeins nægilega breitt fyrir eina manneskju í einu.

Inni í hellinum hafa björgunarmenn þurft að skríða í gegnum þröng göng, drullukennda kafla og vatnsfyllta ganga.

Erfið björgunaraðgerð framundan

Einn kafaranna sem tekur þátt í björguninni er Finninn Mikko Paasi, birti myndskeið sem hægt er að sjá hér fyrir neðan en þar segir hann:

„Þeir sem segja að það sé ekki hægt, ættu ekki að trufla þá sem eru að gera það“

Þvílík tilfinning!!!! ❤️

Eftir viku af erfiðri teymisvinnu fundum við loksins 5 af þeim 7 námumönnum sem saknað var og voru fastir í vatnsflæddri námu í Laos.

Verkefnið hingað til hefur verið allt annað en auðvelt og allir sem að því koma hafa unnið ótrúlegt starf. Takk allir sem tókuð þátt 🙏🙏🙏

Þetta er aðeins skammvinnur léttir þar sem þeir 5 sem lifðu af eru enn í innsta hólfinu, allir heilir á húfi og við góða líðan, en björgunin er enn framundan og hún verður ekki auðveld.

Fyrir mig og @benzscout þýðir þetta að við þurfum að kafa beint aftur inn og færa námumönnunum meiri vistir svo þeir geti safnað kröftum og búið sig undir leiðina út.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Fluttur á bráðamóttöku eftir slys í Árbænum
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir slys í Árbænum

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu
Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu

Atlantsolía aldrei grætt meira
Peningar

Atlantsolía aldrei grætt meira

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja
Heimur

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur
Myndband
Heimur

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum
Heimur

Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum

Risastór gagnaleki skekur Danmörku
Heimur

Risastór gagnaleki skekur Danmörku

Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu
Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu

„Flakið hefur fundist og leitar- og björgunaraðgerðir standa yfir“
Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum
Heimur

Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja
Heimur

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur
Myndband
Heimur

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

Loka auglýsingu