Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Fimm handteknir eftir ofbeldisfull mótmæli gegn hælisleitendum

Thetford í England
Thetford í England Mynd: Tanya Dedyukhina/Wikipedia

Breska lögreglan hefur handtekið fimm einstaklinga í bænum Thetford í austur­hluta Englands eftir þrjú kvöld í röð þar sem mótmælendur beindu sjónum sínum að húsnæði sem þeir töldu hýsa hælis­leitendur. Lögregla þurfti í nokkrum tilfellum að flytja íbúa húsanna á brott til að tryggja öryggi þeirra.

Mótmælin stóðu yfir frá þriðjudegi til fimmtudags og tengjast fyrir­ætlunum um að nýta yfirgefna herstöð í nágrenni Thetford sem húsnæði fyrir hælis­leitendur.

Paul Sanford, lögreglu­stjóri Norfolk, sagði í samtali við BBC Radio 4 að mótmælendur hefðu beint aðgerðum sínum að byggingum sem þeir töldu tengjast gistingu hælis­leitenda. Í að minnsta kosti tveimur tilfellum hefði lögregla þurft að fylgja íbúum húsanna á öruggan stað. Sumir þeirra hefðu verið hælis­leitendur.

Samkvæmt The Guardian tóku meira en hundrað manns þátt í mótmælunum á þriðjudag og miðvikudag eftir að listi yfir heimilis­föng, sem sögð voru tengjast húsnæði hælis­leitenda, fór í dreifingu á netinu.

Lögregla greindi jafnframt frá því að lögreglu­maður hefði orðið fyrir grjót­kasti, annar verið bitinn og hrækt hafi verið á þriðja.

Myndskeið sem birt hafa verið á samfélags­miðlum sýna lögreglu fylgja fólki frá húsum á meðan tugir mótmælenda hrópa meðal annars að það eigi að fara og að flótta­fólk sé ekki velkomið.

Sanford sagði miklar líkur á því að mótmælendur hefðu komist inn í eitt húsanna og stofnað öryggi íbúa þess í hættu ef lögregla hefði ekki gripið inn í.

Bresk stjórn­völd hafa undan­farin misseri leitað leiða til að draga úr notkun hótela sem húsnæðis fyrir hælis­leitendur á meðan umsóknir þeirra eru afgreiddar. Fyrir­ætlanir um nýtt húsnæði hafa ítrekað leitt til mótmæla.

Sambærileg ólga varð í Belfast á Norður-Írlandi í júní, þar sem ráðist var gegn fólki af erlendum uppruna og húsnæði sem talið var tengjast innflytjendum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs