1
Heimur

Kafari sem tók þátt í björgun taílensku fótboltastrákanna látinn 44 ára

2
Heimur

Karlmenn taka leynilega upp myndbönd af konum til að græða peninga

3
Innlent

Tveir ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á Vopnafirði

4
Fólk

Halla og Skjöldur setja á markað íslenska förðunarmerkið Just Makeup

5
Heimur

Rússar hóta Bretum kjarnorkuárás

6
Innlent

Konan er fundin

7
Innlent

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu

8
Innlent

Kona alvarlega slösuð eftir líkamsárás í Kópavogi

9
Pólitík

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning

10
Landið

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri

Til baka

Frjósemisvarðveisla á að vera sjálfsögð réttindi en ekki lúxus

Rannsóknir sýna að ófrjósemi og afleiðingar hennar eru á meðal stærstu áhyggjuefna ungs fólks eftir krabbameinsmeðferð

Ófrjósemi
Hvað verður um framtíðarmöguleikana á að eignast börn?
Mynd: Unsplash/Suhyeon Choi

Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk með krabbamein, krefst þess að stjórnvöld tryggi fulla niðurgreiðslu á frjósemisvarðveislu til að jafna aðgengi óháð efnahag í grein sem Ragnhildur Þóra Hafsteinsdóttir, hagsmuna- og fræðslustjóri Krafts, tók saman. Félagið bendir á að ófrjósemi vegna meðferðar sé stórt áhyggjuefni um 90 ungra einstaklinga sem greinast árlega og hefur Kraftur stofnað sérstakan frjósemissjóð til bráðabirgða.

Hvað verður um framtíðarmöguleikana á að eignast börn?

Á hverju ári greinast um það bil 90 ungir einstaklingar með krabbamein á Íslandi. Þetta er fólk sem er á viðkvæmum stað í lífinu að stíga sín fyrstu skref í námi, á vinnumarkaði, við húsnæðiskaup eða að stofna fjölskyldu. Ofan á þau gríðarlegu áföll og óvissu sem fylgja krabbameinsgreiningu bætist fljótlega við önnur erfið spurning: Hvað verður um framtíðarmöguleikana á að eignast börn?

Rannsóknir sýna að ófrjósemi og afleiðingar hennar eru á meðal stærstu áhyggjuefna ungs fólks eftir krabbameinsmeðferð, næst á eftir óttanum við að sjúkdómurinn taki sig upp á ný. Fyrstu niðurstöður úr lífsgæðarannsókn Krabbameinsfélagsins staðfesta að þörfum þessa hóps er ekki nægilega mætt í núverandi kerfi.

Fjárhagslegur þröskuldur á viðkvæmum tíma

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin skilgreinir það sem mannréttindi að fólk geti ákveðið hvort, hvenær og hversu mörg börn það eignast. Hvað frjósemisvarðveislu varðar er raunveruleikinn á Íslandi því miður sá að meðferðirnar eru dýrar. Þrátt fyrir að Sjúkratryggingar Íslands hafi aukið greiðsluþátttöku sína árið 2024 þarf ungt fólk enn að leggja út háar fjárhæðir á sama tíma og það glímir við alvarleg veikindi.

Það er óásættanlegt að sjúklingar þurfi undir mikilli tímapressu og álagi að velja á milli fjárhagslegs öryggis og möguleikans á að stofna fjölskyldu í framtíðinni. Upplýsingar og aðgengi að þessari þjónustu eiga ekki að ráðast af efnahag eða persónulegu baklandi einstaklinga.

Viðbrögð samfélagsins og kröfur um breytingar

Vegna þess að ákalli um fulla niðurgreiðslu ríkisins hefur ekki enn verið svarað, hefur stuðningsfélagið Kraftur gripið til eigin ráðstafana og stofnað sérstakan frjósemissjóð til að styðja við þá sem þurfa að standa straum af þessum kostnaði. Jafnframt hefur nýtt samstarf við Sjóvá leitt til þess að tryggingafélagið býður nú upp á vernd í sjúkdómatryggingu sinni sem endurgreiðir útlagðan kostnað vegna frjósemisvarðveislu fyrir krabbameinsmeðferð.

Þótt þessi einkaframtök og stuðningur séu dýrmæt breyta þau ekki þeirri staðreynd að batarekstur eftir krabbamein verður að vera heildrænn. Frjósemisvarðveisla á ekki að vera tilviljanakennd eða háð velvild sjóða, heldur staðlaður og sjálfsagður hluti af opinberri heilbrigðisþjónustu. Stjórnvöld verða að stíga fastar til jarðar, samræma verkferla innan heilbrigðiskerfisins og tryggja fulla niðurgreiðslu svo allir ungir krabbameinssjúklingar sitji við sama borð þegar kemur að framtíð þeirra og stofnun fjölskyldu, segir í grein Krafts.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Konan er fundin
Innlent

Konan er fundin

Fólk beðið um að fylgjast vel með
Móðir ákærð fyrir hrottalega árás á börn sín
Heimur

Móðir ákærð fyrir hrottalega árás á börn sín

Á þriðja tug Palestínumanna drepnir þrátt fyrir vopnahlé
Heimur

Á þriðja tug Palestínumanna drepnir þrátt fyrir vopnahlé

Aftöku Christu Pike frestað á síðustu stundu
Heimur

Aftöku Christu Pike frestað á síðustu stundu

Vill sjá Hálfvitastíg, Hákarlagötu og Þjóðhollt í Reykjavík
Fólk

Vill sjá Hálfvitastíg, Hákarlagötu og Þjóðhollt í Reykjavík

Ungur maður grunaður um sex kynferðisbrot í Ábæ
Heimur

Ungur maður grunaður um sex kynferðisbrot í Ábæ

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri
Landið

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri

Fyrrum American Idol-keppandi fundinn sekur um morð
Heimur

Fyrrum American Idol-keppandi fundinn sekur um morð

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu
Innlent

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu

Söguleg tímamót í Marokkó
Heimur

Söguleg tímamót í Marokkó

Maður í gæsluvarðhaldi eftir alvarlega líkamsárás í Kópavogi
Innlent

Maður í gæsluvarðhaldi eftir alvarlega líkamsárás í Kópavogi

Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands
Innlent

Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands

Fólk

Vill sjá Hálfvitastíg, Hákarlagötu og Þjóðhollt í Reykjavík
Fólk

Vill sjá Hálfvitastíg, Hákarlagötu og Þjóðhollt í Reykjavík

Prófessorinn gantast með ný götuheiti í borginni.
Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu
Myndir
Fólk

Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu

Halla og Skjöldur setja á markað íslenska förðunarmerkið Just Makeup
Fólk

Halla og Skjöldur setja á markað íslenska förðunarmerkið Just Makeup

Sjö merki þess að innra barnið sé enn að stýra samböndunum þínum
Fólk

Sjö merki þess að innra barnið sé enn að stýra samböndunum þínum

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“
Fólk

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“

Ofurfæðan tempeh - plöntupróteinið sem skákar egginu
Fólk

Ofurfæðan tempeh - plöntupróteinið sem skákar egginu

Loka auglýsingu