1
Fólk

Eitt dýrasta einbýli landsbyggðarinnar til sölu

2
Peningar

Fyrirtæki sem eiginmaður Kristrúnar á hlut í tapar tugum milljóna

3
Fólk

Sorgin breytti sýn Andreu á lífið

4
Heimur

Tvöfalt líf kennara komst upp og kostaði hana starfið

5
Innlent

Ingunn Rut fékk þriggja ára dóm fyrir gróft ofbeldi

6
Innlent

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski

7
Fólk

Fallegur og rúmlega aldargamall gimsteinn settur á sölu

8
Heimur

Horfði á klám í háloftunum og lét þar ekki staðar numið

9
Innlent

Salmonella greindist í innfluttu kryddi

10
Peningar

Nýdönsk stofnar fyrirtæki

Til baka

„Fyrir utan sjúkrahúsið missti hann meðvitund“

Gunnar Gíslason lögmaður sakar lögregluna á Norðurlandi eystra um að hafa farið offorsi gegn 19 ára skjólstæðingi sínum

Páley, Rafbyssa og Sjúkrahús Akureyrar
Páley Borgþórsdóttir lögreglustjóri, rafbyssa og Sjúkrahús Akureyrar
Mynd: Samsett

Gunnar Gíslason lögmaður sakar lögregluna á Norðurlandi eystra um að hafa farið offorsi gegn 19 ára skjólstæðingi sínum sem handtekinn var á Akureyri aðfaranótt fimmtudags. Rafbyssu var beitt við handtökuna en lögregla taldi piltinn hættulegan sjálfum sér og öðrum.

Í færslu sem Gunnar hefur birt segir hann skjólstæðing sinn hafa upplifað „mikið einelti“ af hálfu lögreglu frá janúar 2025. Frá þeim tíma hafi 68 mál verið skráð um hann í kerfi lögreglu.

„Afskiptin hafa ýmist verið að ósekju eða þá að allar meðalhófsreglur hafa verið brotnar,“ segir Gunnar.

Hann segir sérsveit hafa farið inn á heimili piltsins og móður hans sex dögum áður en rafbyssunni var beitt.

„Nú er skjólstæðingur minn blessunarlega ekki kominn á sama stað andlega en ofbeldi LSNE hefur tekið mjög á hans andlegu heilsu,“ segir Gunnar.

Að sögn hans var útidyrahurð brotin niður og pilturinn handtekinn þar sem hann lá sofandi í rúmi sínu. Tilefni handtökunnar hafi ekki verið kynnt honum fyrr en síðar. Gunnar telur eðlilegra að boða hefði átt piltinn í skýrslutöku.

Hann lýsir því jafnframt að piltinum hafi liðið mjög illa aðfaranótt fimmtudags. Hann hafi brotnað niður, grátið og lagst á umferðareyju. Þegar lögregla kom á vettvang hafi hann orðið hræddur og reynt að hlaupa á brott.

„Skjólstæðingur minn hætti hlaupum eftir stutta stund, er hann áttaði sig. Lögreglumaður greip þá upp rafbyssu og skaut skjólstæðing minn, án nokkurrar aðvörunar, í búkinn,“ segir Gunnar og tekur fram að pilturinn hafi verið óvopnaður.

Gunnar veltir upp hvort meðalhófs hafi verið gætt og telur mögulegt að lögreglumaðurinn hafi gerst sekur um brot í starfi.

Pilturinn var vistaður í fangaklefa eftir handtökuna. Gunnar segir að beiðni hans um að fá sig sem verjanda hafi í fyrstu verið virt að vettugi. Eftir skýrslutöku var honum sleppt og móðir hans sótti hann.

„Hún ákvað að fara með hann á sjúkrahúsið á Akureyri, til skoðunar. Þar fyrir utan sjúkrahúsið missti hann meðvitund,“ segir Gunnar. Pilturinn var í kjölfarið fluttur á bráðamóttöku og lagður inn.

Gunnar beinir að lokum harðri gagnrýni að Páleyju Borgþórsdóttur, lögreglustjóra á Norðurlandi eystra. Hann segir „ekkert eðlilegt“ við framgöngu lögreglunnar og telur tímabært að lögreglustjórinn axli ábyrgð á því sem hann kallar ómenningu innan embættisins og láti af störfum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Lögreglan með viðvörun til foreldra eftir kaup ungmenna á fölsuðum skilríkjum
Innlent

Lögreglan með viðvörun til foreldra eftir kaup ungmenna á fölsuðum skilríkjum

Fimm hlutir sem þú ættir aldrei að gera á almannafæri
Fólk

Fimm hlutir sem þú ættir aldrei að gera á almannafæri

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna
Innlent

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna

Prófessor í vondum málum eftir furðuleg atvik í bandarískum háskóla
Heimur

Prófessor í vondum málum eftir furðuleg atvik í bandarískum háskóla

Stefán vill draga gleymt sirkusfólk fram í dagsljósið
Innlent

Stefán vill draga gleymt sirkusfólk fram í dagsljósið

Setti eigin líkamsvessa í mat samstarfsfólks
Heimur

Setti eigin líkamsvessa í mat samstarfsfólks

Krefjast að umferðin lagi sig að börnunum
Innlent

Krefjast að umferðin lagi sig að börnunum

Flugvél Ameliu Earhart mögulega fundin
Heimur

Flugvél Ameliu Earhart mögulega fundin

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski
Innlent

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski

Lést eftir hnífstungu í átökum við herbergisfélaga sinn á Lanzarote
Heimur

Lést eftir hnífstungu í átökum við herbergisfélaga sinn á Lanzarote

Akureyringur ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með kylfu
Innlent

Akureyringur ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með kylfu

Ók á móti rauðu og flúði undan lögreglu um Borgartún á stolnum bíl
Innlent

Ók á móti rauðu og flúði undan lögreglu um Borgartún á stolnum bíl

Þrír létust í árásum Rússa á Kænugarð
Heimur

Þrír létust í árásum Rússa á Kænugarð

Innlent

Lögreglan með viðvörun til foreldra eftir kaup ungmenna á fölsuðum skilríkjum
Innlent

Lögreglan með viðvörun til foreldra eftir kaup ungmenna á fölsuðum skilríkjum

Akureyringur ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með kylfu
Innlent

Akureyringur ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með kylfu

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna
Innlent

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna

Stefán vill draga gleymt sirkusfólk fram í dagsljósið
Innlent

Stefán vill draga gleymt sirkusfólk fram í dagsljósið

Krefjast að umferðin lagi sig að börnunum
Innlent

Krefjast að umferðin lagi sig að börnunum

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski
Innlent

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski

Loka auglýsingu