Fyrrverandi kaþólsk nunna hefur verið dæmd í 20 ára fangelsi í Argentínu vegna kynferðisbrota gegn börnum og fyrir að hafa hylmt yfir umfangsmikil brot presta við heimavistarskóla fyrir heyrnarskert börn.
Konan, Kumiko Kosaka, er 51 árs japanskur ríkisborgari. Hún var sakfelld fyrir gróf kynferðisbrot og fyrir að hafa hylmt yfir brot presta gegn börnum á aldrinum fjögurra til 17 ára.
Málið er kennt við Antonio Provolo-stofnunina í Mendoza í Argentínu. Þar sættu tugir barna alvarlegu kynferðislegu ofbeldi á löngu tímabili. Málið vakti mikinn óhug í Argentínu þegar það komst í hámæli fyrir um áratug.
Í fyrstu réttarhöldunum árið 2019 voru tveir prestar, garðyrkjumaður og fyrrverandi kórdrengur dæmdir í tíu til 45 ára fangelsi. Upplýsingar sem komu fram við þau réttarhöld leiddu síðar til annars máls gegn nunnum og öðrum konum sem störfuðu við stofnunina.
Níu konur, þar á meðal Kosaka, voru sýknaðar árið 2023. Kosaka hafði auk þess verið ákærð fyrir gróf kynferðisbrot. Hæstiréttur Mendoza-héraðs ógilti hins vegar sýknudóm hennar í ágúst og fyrirskipaði ný réttarhöld.
Ariel Lizarraga, faðir eins brotaþolanna, lýsti yfir ánægju með niðurstöðuna og sagði fjölskylduna loks hafa fengið það réttlæti sem hún hefði barist fyrir vegna dóttur hans og annarra brotaþola.
Kosaka yfirgaf trúarregluna sem rak stofnunina eftir að fyrstu ásakanirnar komu fram. Stofnuninni var síðar lokað.
Kosaka er enn frjáls ferða sinna innan Mendoza á meðan frekari málsmeðferð stendur yfir, en henni er óheimilt að yfirgefa héraðið.
