1
Heimur

Ringulreið og ófremdarástand á stærsta flugvelli Tenerife

2
Fólk

Margrét Marteinsdóttir skiptir um gír

3
Minning

Magnús Erlendsson er fallinn frá

4
Landið

Akureyringur ákærður fyrir hálft gramm af tóbaksblönduðu kannabisefni

5
Innlent

Árekstur tveggja bíla í Garðabæ

6
Fólk

Frábært fjölskylduhús fáanlegt

7
Pólitík

Grímur skipaður í mjög viðeigandi stýrihóp

8
Innlent

Innflytjendur fá 200 milljónir frá Ingu

9
Innlent

Friðgeir dæmdur fyrir hatursorðræðu

10
Fólk

Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eiga von á barni

Til baka

Grétar Brynjúlfur Kristjánsson látinn

Kerti
Mynd: Shutterstock

Grétar Brynjúlfur Kristjánsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Loftleiða og stjórnarmaður í Flugleiðum og fjölmörgum öðrum fyrirtækjum, lést á Landspítalanum 15. ágúst síðastliðinn, 87 ára að aldri.

Hann fæddist í Reykjavík 15. september 1937 og ólst þar upp. Foreldrar hans voru Kristján Guðlaugsson, hæstaréttarlögmaður og stjórnarformaður Loftleiða, og Bergþóra Brynjúlfsdóttir húsmóðir.

Grétar lauk stúdentsprófi frá MR árið 1957 og lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 1963. Síðar hélt hann til náms í alþjóðaflugrétti við McGill University, Institute of Air and Space Law, í Montreal í Kanada. Starfsferill hans hófst hjá Loftleiðum í New York árið 1963. Hann var framkvæmdastjóri Loftleiða á Keflavíkurflugvelli 1965–1973 og aðstoðarforstjóri fyrirtækisins árin 1973–1974. Með stofnun Flugleiða hf. árið 1973 hóf hann þar störf, fyrst sem lögfræðingur og síðar sem yfirmaður flugstöðvarstjórnar, skrifstofustjóri og forstöðumaður Bílaleigu Flugleiða-Hertz.

Á námsárum sínum gegndi hann margvíslegum trúnaðarstörfum. Hann var formaður Ferðaþjónustu stúdenta, sat í Stúdentaráði HÍ, ritstýrði Vöku, var formaður stjórnar Hótel Garðs og einnig formaður Orators, félags laganema.

Grétar átti sæti í fjölmörgum stjórnum fyrirtækja. Hann var stjórnarmaður í Flugleiðum, Flugfélagi Íslands og Loftleiðum í yfir þrjá áratugi, þar af í 28 ár sem varaforseti stjórnar, allt til ársins 2004. Hann sat einnig í stjórnum annarra félaga, m.a. Eimskips og dótturfélaga Flugleiða, og gegndi lengi embætti stjórnarformanns Hvals hf. Þá átti hann sæti í stjórn Arnarflugs og var talinn einn áhrifamesti maður íslensks flugheims, þó hann leitaði sjaldan í sviðsljósið. Auk þess sat hann í stjórnum Granda, Vogunar, Kynnisferða og Sæferða.

Eftirlifandi eiginkona hans er Gerður Gunnarsdóttir myndhöggvari, fædd 1942. Með Þóru Kristínu Jónsdóttur eignaðist hann dótturina Bergþóru Kristínu, f. 1960. Með fyrri eiginkonu sinni, Sigríði Þorsteinsdóttur, átti hann börnin Ágústu Örnu, f. 1964, Kristján Magnús, f. 1966, og Ingu Hrönn, f. 1973. Sonur Gerðar og stjúpsonur Grétars er Gunnar Þ. Johnson, f. 1964. Barnabörnin eru tíu og langafabörnin níu.

Mbl.is sagði frá andlátinu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Hestamaður fluttur á sjúkrahús
Innlent

Hestamaður fluttur á sjúkrahús

Fantur reyndi að stinga mann
Innlent

Fantur reyndi að stinga mann

Grímur skipaður í mjög viðeigandi stýrihóp
Pólitík

Grímur skipaður í mjög viðeigandi stýrihóp

Friðgeir dæmdur fyrir hatursorðræðu
Innlent

Friðgeir dæmdur fyrir hatursorðræðu

Innflytjendur fá 200 milljónir frá Ingu
Innlent

Innflytjendur fá 200 milljónir frá Ingu

Magnús Erlendsson er fallinn frá
Minning

Magnús Erlendsson er fallinn frá

Fræg mæðgin í eldlínunni
Slúður

Fræg mæðgin í eldlínunni

Jóhann Páll verndar formfagran gíg
Pólitík

Jóhann Páll verndar formfagran gíg

Ringulreið og ófremdarástand á stærsta flugvelli Tenerife
Heimur

Ringulreið og ófremdarástand á stærsta flugvelli Tenerife

Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eiga von á barni
Fólk

Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eiga von á barni

Frábært fjölskylduhús fáanlegt
Myndir
Fólk

Frábært fjölskylduhús fáanlegt

Akureyringur ákærður fyrir hálft gramm af tóbaksblönduðu kannabisefni
Landið

Akureyringur ákærður fyrir hálft gramm af tóbaksblönduðu kannabisefni

Árekstur tveggja bíla í Garðabæ
Myndband
Innlent

Árekstur tveggja bíla í Garðabæ

Minning

Magnús Erlendsson er fallinn frá
Minning

Magnús Erlendsson er fallinn frá

Jóhannes Sigurjónsson er látinn
Minning

Jóhannes Sigurjónsson er látinn

Arnór L. Pálsson er fallinn frá
Minning

Arnór L. Pálsson er fallinn frá

Ingi Kristján Pétursson er látinn
Minning

Ingi Kristján Pétursson er látinn

Pétur Bjarnason er fallinn frá
Minning

Pétur Bjarnason er fallinn frá

Kristinn Svavarsson er fallinn frá
Minning

Kristinn Svavarsson er fallinn frá

Loka auglýsingu