
Hjónin Árni Björn Kristjánsson og Guðrún Ósk Maríasdóttir ræða opinskátt um ástina, fjölskyldulífið og erfiðar raunir í nýju viðtali við Mannlíf.
Þau voru rétt um tvítugt þegar þau féllu fyrir hvort öðru við Skógarfoss. Síðan hafa þau eignast þrjú börn. Frumburðurinn, Halldóra María, er með arfgengan genasjúkdóm og er fötluð vegna hans en yngri synir þeirra tveir eru arfberar.
Hjónin hafa gengið í gegnum ýmis áföll. Árni hefur glímt við áfallastreituröskun vegna mikils álags og líf Guðrúnar tók miklum breytingum eftir að hún fékk handbolta í höfuðið og þurfti í kjölfarið að hætta að vinna.
Þau ræða einnig ástarlífið af hreinskilni. Fyrir nokkrum árum opnuðu þau hjónabandið og hafa meðal annars verið saman í sambandi með erlendri konu.
Þá ræða þau framhjáhald Árna, áhrif þess á hjónabandið og ákvörðun Guðrúnar um að fyrirgefa honum.
Framhjáhald og fæðing
Það hafa skipst á skin og skúrir.
„Það var svo margt í gangi á þessum tíma, á árunum 2018-2020, og það var stormasamt tímabil hjá okkur,“ segir Árni. „Guðrún fékk höfuðböggið og við fórum í alla þessa vegferð að fá meiri stuðning fyrir dóttur okkar.“
Þau reyndu að eignast annað barn á þessum tíma og fóru í tvær tæknifrjóvganir til að koma í veg fyrir að barnið yrði með genasjúkdóminn. Tvisvar sinnum var settur upp fósturvísir en þeir héldu ekki. Guðrún varð svo óvænt ófrísk á náttúrulegan hátt og segir hún að það hafi verið mjög kvíðavaldandi þar sem þau vissu ekki hvort barnið yrði með sama sjúkdóm og Halldóra María. „Þetta var mjög mikill skellur og var ekki planað,“ segir Árni. „Og það voru 25% líkur á að barnið fengi sjúkdóminn.“
Hjónin þurftu að bíða fram á 17. viku til að vita hvort barnið yrði heilbrigt eða ekki.
„Þetta tímabil þangað til við fengum að vita það var eitt erfiðasta tímabil lífs okkar,“ segir Árni en bætir við að ef í ljós hefði komið að barnið yrði með sjúkdóminn hefðu þau þurft að taka ákvörðun um hvort binda ætti enda á meðgönguna eða ekki. „Þetta var viðbjóður. Ógeðslegt tímabil.“
Guðrún segist ekki hafa viljað tengjast barninu sem hún gekk með ef svo skyldi fara að þau myndu ákveða að hún færi í fóstureyðingu. Í ljós kom að það var heilbrigt og kom lítill sonur í heiminn sem byrjaði í fyrsta bekk í haust. Tveimur árum síðar eignaðist hann lítinn bróður en hann kom líka óvænt undir og þurftu foreldranri aftur að bíða eftir því að fá að vita hvort hann yrði með sjúkdóminn eða ekki. Báðir strákarnir eru heilbrigðir en þeir eru báðir arfberar og segir Guðrún að ef þeir eignast konur mun þá þurfa að athuga hvort þær séu arfberar ef hugað verður að barneignum. „Það er seinni tíma vandamál,“ segir Árni.
Þrátt fyrir að það hafi verið léttir að vita að eldra barnið yrði heilbrigt segir Árni að tímabilið frá því þau fengu þær jákvæðu fréttir að barnið yrði heilbrigt og þangað til eldri sonur þeirra kom í heiminn hafi verið mjög erfitt tímabil fyrir sig eins og þegar hefur verið komið inn á.
„Ég gjörsamlega týndi sjálfum mér. Ég var svo stressaður og hræddur við að eignast annað barn verandi búinn að eiga Halldóru Maríu. Ég var svo hræddur um aðallega það að það kæmi nýtt barn og þá náttúrlega myndi Guðrún vera svo mikið að sjá um það og þá færðist öll umönnun og allt álagið varðandi Halldóru Maríu á mig. Þannig að ég var orðinn rosalega stressaður fyrir því sem koma skyldi. Ég hélt fram hjá Guðrúnu á þessu tímabili og það var bara algjör flótti og ég fann að ég var að reyna að flýja raunveruleikann. Ég var bara svo hræddur og týndur. Ég var svo hræddur við að verða aftur pabbi. Og hvað allt var að fara að breytast. Þetta var rétt eftir að Guðrún fékk höfuðhöggið og hún var að breytast og það var svo mikið í gangi.“
Heilbrigður sonurinn kom svo í heiminn. Hjónin fundu að það var eitthvað ójafnvægi í sambandinu og fóru saman til sálfræðings til að fara í pararáðgjöf. Árni segir að sálfræðingurinn hafi greint sig með áfallastreituröskun. „Það var í fyrsta skipti sem ég áttaði mig á því að það væri eitthvað að mér. Eitthvað sem þurfti að vinna í. Ég hafði áður þegar ég stundaði CrossFit grínast með það að ég þyrfti ekkert að fara til sálfræðings af því að ég færi á æfingar í staðinn. En það var í rauninni alger flótti frá tilfinningum og að vinna í mér.“
Hjónin ákváðu að dvelja á Spáni í nokkra mánuði í fæðingarorlofinu og segir Árni að þar hafi sitt andlega ferðalag hafist og að þar hafi hann byrjaði að finna sjálfan sig upp á nýtt. „Ég fór að fylgja Guðrúnu í þessu andlega ferðalagi og fór að vinna meira í sjálfum mér og fór meira að átta mig á því hver ég er og af hverju ég er eins og ég er. Ég fór að hægja á mér og fór í jóga og með Guðrúnu á kakóseremóníur til að tengjast meira hjartanu. Og það færði okkur aftur saman.“
Veira setti heimsbyggðina á annan endann. Heimsfaraldur var staðreynd. Árni smitaðist og veiktist áður en farið var að bjóða upp á bólusetningu og fór hann í einangrun á hóteli úti í bæ. Sonur þeirra var þá þriggja vikna. „Sonur okkar, sem er núna sex ára, var yngsta barnið á Íslandi til þess að fá Covid.“ Guðrún fékk líka Covid og í kjölfarið fór Árni heim og voru þau öll saman í einangrun.
„Þetta var klikkað tímabil þetta Covid-dæmi. Ég veiktist ekkert mikið, ég var í besta formi lífs mins og varð kvefaður. Svo kláraði ég einangrunina og ætlaði að fara aftur að stað og æfa en þá fann ég að það var eitthvað „off“. Þá gerðist eitthvað með hjartað í mér en púlsinn rauk upp við minnstu áreynslu og hækkaði óeðlilega mikið. Ég var settur á lyf til að hægja á honum og fór aldrei aftur í CrossFit eftir að hafa fengið Covid.“
Guðrún segir að þetta hafi verið sjálfsmyndarkrísa fyrir hann eins og hún lenti í varðandi handboltann eftir að hún fékk höfuðhöggið.
Fyrirgefning
Árni sagði Guðrúnu frá framhjáhaldinu eftir Spánardvölina og fann hann fyrir létti að hafa sagt frá.
„Þá vorum við búin að vinna svo mikla vinnu,“ segir hann, „og við vorum búin að þroskast svo mikið og fara í millitíðinni í sálfræðimeðferð og það ferðalag. Við hringdum í sálfræðinginn okkar sem hitti okkur akút daginn eftir á fundi og við fórum í gegnum þetta saman. Við gátum talað um þetta og skilið þetta. Við skildum af hverju ég hafði gert þetta - ég hafði verið hræddur og verið að flýja. Eins og ég sagði hafði þetta verið rosalega erfitt tímabil út af öllu sem hafði verið í gangi með Halldóru Maríu og óvissuna. Þannig að við gátum horft á þetta með þroskuðum augum og við unnum úr þessu. Og þetta færði okkur nær hvort öðru.“
Hvað segir Guðrún um þetta áfall sem framhjáhaldið var á meðan hún gekk með barn þeirra? „Þetta var áfall en á sama tími vissi ég og hann kom því fallega til skila að þetta hafði ekkert með mig eða okkur að gera heldur var þetta hans trauma, flótti og hræðsla.“
Þögn.
„Ég tók þessu aldrei persónulega.“
Þögn.
„Svo er ég öðruvísi heldur en flest,“ segir hún og kímir. „Og ég er líka mjög skilningsrík. Það var mjög gott að vinna þetta saman og hann gaf mér mjög mikið svigrúm til þess að vinna með mínar tilfinningar. Hann var mjög flinkur í því að halda rými fyrir mig og leyfa mér að vinna úr mínum tilfinningum þegar þetta kom upp og þegar ég átti erfitt í kringum þetta.“
Hún grét þó mikið fyrst á eftir og var mjög reið og hún skildi ekki hvers vegna Árni hafði haldið fram hjá henni. „Ég fór alveg í smá histeríu í smátíma en svo var einmitt mikil hjálp í því að að sálfræðingurinn okkar greip okkur strax daginn eftir.“
Árni segir að það hafi verið gott að þau gátu unnið í þessu með sálfræðingnum sem gat gefið þeim ráðleggingar og leiðbeint þeim í gegnum þetta. „Okkur var sagt að Guðrún ætti fullan rétt á að ræða um þetta þegar hún vildi gera það og það mætti koma upp og það gerðist oft. Við töluðum saman um þetta.“
Guðrún segir að það hafi verið gott hve langur tími var liðinn frá framhjáhaldinu og þangað til það komst upp eða um eitt og hálft ár. „Þá var ég búin að finna að hann var búinn að velja mig, okkar líf og okkar sameiningu. Ég var búin að sjá mikla breytingu á honum og finna að hann var búinn að vinna mikla andlega vinnu. Þannig að það var auðvelt að trúa og treysta því að þetta væri bara þetta tilfelli og að hann væri algjörlega mættur til leiks með okkar fjölskyldu.“
Hvað með traustið eftir þetta og óttann um að svona geti gerst aftur?
„Það hefur aldrei hvarflað að mér að svona myndi gerast aftur,“ segir Guðrún. Hún segir að framhjáhaldið sitji ekki í sér og að það skipti máli sú ábyrgð sem Árni axlaði loks þegar hún vissi af þessu og hversu hreinskilinn hann var og hún talar líka um þann skilning sem hann sýndi henni. „Það sem breyttist líka var að Árni leyfði mér að elska sig dýpra eftir að þetta kom upp.“
Árni segist hafa verið búinn að vera með nagandi samviskubit. „Ég var búinn að vera hræddur og mér leið eins og drullusokki og mér fannst ég vera aumingi. Það var ástæða fyrir því að þetta gerðist. Það var ekki út af því að ég væri bara illa innrættur drullusokkur. Það var ákveðið sár þarna og ákveðin hræðsla og ákveðinn flótti sem leiddi til þess að ég gerði ákveðna hluti sem mig langaði ekkert til þess að gera. Ég er ekki slæm manneskja og ég er ekki skíthæll þótt ég hafi gert hluti sem særðu Guðrúnu. Þetta leiddi líka til þess að ég lærði að elska sjálfan mig og ég gat fyrirgefið sjálfum mér og Guðrún fyrirgaf mér. Þannig að þetta er eitt af þeim verkefnum sem okkur var fengið.“
Árni sagði áður að sálfræðingurinn hafi fyrir nokkrum árum greint hann með áfallastreituröskum. Fyrir tveimur árum endaði hann uppi á bráðamóttöku. Hann segist hafa haldið að hann væri að deyja. „Það var búið að vera mikið álag á okkur, mikið í gangi og ég sat inni í bíl með Guðrúnu og fann að ég var að fjara út. Ég var að detta út. Svo endaði það á því að ég gat varla talað og ég gat varla hreyft mig og ég bað Guðrúnu um að keyra mig upp á bráðamóttöku. Mér var ekið þangað inn í hjólastól og var hálfdottandi og settur í alls konar próf og allt kom eðlilega út. Þá var þetta álag og streita. Hvað á maður að gera? Lífið heldur áfram. Maður reynir að hægja á sér og hlúa að sér en við erum ótrúlega virk. Við viljum gera margt og erum mjög drífandi og miklar keppnismanneskjur. Þetta var ákveðið „reality check“. Maður getur ekki gert allt. Þetta leiddi til þess að ég þurfti að hægja aðeins á mér og aðlaga mig.“
