
Gunnar Smári Egilsson, ritstjóri Samstöðvarinnar, sem nú liggur á sjúkrahúsi eftir að hafa fengið blóðtappa í fót, lungu og hjarta, greindi frá persónulegri reynslu sinni af dvölinni á spítalanum í Facebook-færslu sem hann birti rétt í þessu.
Í færslunni segir hann frá herbergisfélaga sínum á deildinni sem lést í gær.
„Herbergisfélagi minn sagði þegar ég kom á deildina að ég myndi ná mér fljótt, ég væri svo ungur. Hann myndi hins vegar ekki útskrifast sjálfur,“ skrifar Gunnar Smári og bætir við að spáin hafi reynst rétt. „Og það var rétt hjá honum, hann dó í gær á stofunni okkar, hafði þó ekki verið mikið öðruvísi þann daginn.“
Gunnar Smári segir að atburðurinn hafi minnt hann á hversu stutt er á milli lífs og dauða. „Það er svo þunn filman sem skilur líf og dauða.“
Hann lýsir síðustu augnablikunum áður en herbergisfélagi hans lést og segir að þeir hafi átt stutta en hlýja samveru. „Ég sagði honum að ég ætlaði í gönguna mína fram og til baka eftir spítalaganginum og hann horfði á mig mildum svip, var fallegur og hlýr maður. Og dó fáeinum mínútum síðar.“
Eftir andlátið komu dætur mannsins á deildina. Gunnar Smári segist hafa viljað segja þeim hversu góð kynni hans af föður þeirra hefðu verið, en ekki treyst sér til þess. „Dætur hans komu á deildina þegar hann var dáinn, mig langaði að segja þeim hvað stutt kynni mín af föður þeirra hefðu verið góð og falleg en ég kom mér ekki til þess, sorgin býr til gjá sem ég kann ekki að stökkva yfir.“
Hann segir að upplifunin hafi vakið hjá sér minningar um eigin missi í æsku. „Ég hugsaði að þarna hefðu litlar stúlkur misst föður sinn, eins og þegar mamma dó og ég fann að það var litli drengurinn inn í mér sem var að missa mömmu sína, ekki gamli maðurinn sem ég var orðinn. Þess vegna var það svo sárt.“
Í lok færslunnar segir Gunnar Smári að hann skrifi þessi orð til að deila hugleiðingum sínum um lífið og viðkvæmni þess. „Ég skrifa þetta því hér út í tómið. Þegar lífið er veikt er það líka fallegt, í litlu lífi kjarnast oft stór sannindi. En stundum bægir óttinn þeim frá og við sjáum ekkert, verðum skelfd. Það átti ekki við um herbergisfélaga minn.“

Komment