
Arna Magnea Danks leikkona, áhættuleikstjóri (e.fight/stunt director), kennari og mannréttindaaktívisti. Einnig þekkt sem fyrsta opinbera trans leikkonan á Íslandi hefur verið áberandi talskona í réttindabaráttu trans fólks og hinsegin samfélagsins.
Arna bendir nú sjónum sínum að ungu fólki sem standi frammi fyrir fordæmalausum erfiðleikum á húsnæðismarkaði og undir þungri greiðslubyrði námslána, á meðan tækifæri til að kanna aðra valkosti séu slegin út af borðinu.
Óstöðugleiki, húsnæðisvandi ungs fólks og ójöfnuður í skjóli íslensku krónunnar eru helstu röksemdirnar fyrir því að hún ætlar að segja já við áframhaldandi viðræðum við ESB. Hún skilur hins vegar ekki ungt fólk í dag sem vill ekki sjá hvað samningurinn hefur upp á að bjóða.
„Ég sem vinstri jafnaðar manneskja sem hef barist fyrir mannréttindum og betri kjörum allt mitt líf, verð að segja að þetta er virkilega sorglegt að ungt fólk sem margt hvert sér ekki til sólar þegar kemur að því að eignast húsnæði, hvað þá að borga af námslánunum, skuli ekki geta séð hag sinn í að segja JÁ við áframhaldandi viðræðum við ESB og í það minnsta sjá hvað samningurinn hefur upp á að bjóða!
Íslendingar eiga hagsæld sína að þakka samstarfi og samningum við aðrar þjóðir og þessi eitraði þjóðernisrembingur er engum til gagns, nema þá helst þeim allra ríkustu sem eiga kvótann og hlutabréf hægri vinstri í heildsölu, smásölu, olíu, rafmagni, áli og í bankakerfinu.
Stóreignafólki og fyrirtækjum sem eru fyrir löngu farin að gera upp í Evru á meðan launafólk fá sín laun í krónu sem reglulega tapar verðmæti sínu gagnvart erlendum gjaldmiðlum, sem leiðir til verðbólgu og verri kjara launafólks.
Viljum við í alvöru halda áfram að verja stóreignafólk og fyrirtæki á kostnað almennings?!
Ef það er hagur almennings sem við viljum hafa að leiðarljósi og jöfnun kjara, þá segjum við JÁ við áframhaldandi viðræðum en skjálfum ekki í sálinni eins og smáblóm í vindinum, tárvot fyrir framan íslenska fánann.“
