1
Innlent

Fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára fer í mál við hann

2
Innlent

Vill fá konu borna út úr sumarbústað í Mosfellsbæ

3
Fólk

Selja eitt fallegasta parhús landsins

4
Innlent

„Barnið mitt er ekki í geymslu“

5
Pólitík

„Af hverju þykir það eðlilegt að henda fólki út með skít og skömm?“

6
Fólk

„Hún Marta María er kannski bara ekki alveg á réttri hillu“

7
Fólk

Flutti 21 árs til Íslands og fann sitt fólk í Reykjavík

8
Heimur

Bresk kona lést eftir að hafa hnigið niður á Lanzarote

9
Fólk

Íslandsferðin breytti lífi Jonathons

10
Fólk

Selja friðlýst einbýli með stórkostlegu útsýni

Til baka

Guðfinna sótti um á þriðja hundrað störf

Brá á það ráð að fara í fjarbúð, skildi eiginmanninn eftir og flutti á Kirkjubæjarklaustur

Konur á skrifstofu
Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Unsplash/Gabrielle Henderson

Guðfinna Þórdís Gunnarsdóttir segir í viðtali við VIRK endurhæfingu frá einelti sem hún varð fyrir í grunnskóla. Einelti hafði mikil áhrif á hana og var hún lengi að vinna sig út úr þeirri reynslu.

„Ég er uppalin í Þorlákshöfn til fermingaraldurs en þá fluttum við mamma og systir mín í Árbæ í Reykjavík. Foreldrar mínir skildu þegar ég var ellefu ára. Ég varð líka fyrir smávegis einelti í Árbæjarskóla en þar fékk ég miklu meiri stuðning en í Þorlákshöfn. Þannig var það þá. Á litlum stöðum er að minni hyggju oft meira um einelti en í stærri sveitarfélögum. Það er líka meira um viðeigandi þjónustu þar sem margt fólk býr.“

Guðfinna segist hins vegar hafa farið fyrst inn á Reykjalund í meðferð hjá efnaskipta- og offituteyminu þar. „Ég er búin að vera í megrun síðan ég var ellefu ára gömul, eða kannski fyrst í aðhaldi. Ég er búin að prófa alla kúra sem sögur fara af, svo sem ketó, danska kúrinn, Herbalife og svo framvegis, en ekkert dugði til langframa.

Á Reykjalundi var tekið vel á móti henni og hún gripin þegar þunglyndið og kvíðinn voru í hæstu hæðum. „Ég hafði, áður en ég kom á Reykjalund, verið að vinna með langveika stúlku, hún var heima í þrjár vikur og fór svo í viku frí. En þessar þrjár vikur vann ég alla daga og það var of mikið. Ég var samt ekki verkjuð heldur fyrst og fremst andlega mjög illa stödd.“

Eftir þjónustuna hjá VIRK sótti Guðfinna um 250 störf

„Þegar ég hætti í þjónustunni hjá VIRK hafði ég sótt um 250 störf en fékk ekkert þeirra. Að vísu tvö viðtöl sem leiddu ekki til neins. Þá brá ég á það ráð að fara í fjarbúð, skildi eiginmanninn eftir og flutti á Kirkjubæjarklaustur þar sem vinkona mín býr og fékk þar vinnu í sundlauginni og sem stuðningsfulltrúi á leikskóla, eiginlega hundrað og fjörutíu prósent vinnu.“

Fjarlægðin gerir fjöllin blá þó svo að það hafi vissulega verið mikil viðbrigði að þurfa að flytja í annað bæjarfélag til að fá vinnu.

„Þetta voru mikil viðbrigði en ofboðslega gott, þarna varð ég að halda áfram og vinna með það sem ég hafði tileinkað mér hjá VIRK. Hjónabandið þoldi þetta mjög vel. Bæði gerir fjarlægðin fjöllin blá og svo ber þess að geta að maðurinn minn hefur líka fengið góða þjónustu hjá VIRK og skildi því vel hvað ég var að fara í gegnum. Mamma var líka ofboðslega mikill stuðningur.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Þingmannssonur ákærður
Innlent

Þingmannssonur ákærður

Var handtekinn 28. júlí.
Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Sparkaði í dróna og hæfði fyrirsætu beint í andlitið
Myndband
Heimur

Sparkaði í dróna og hæfði fyrirsætu beint í andlitið

Viðurkennir að hafa skotið fólk sem leit út fyrir að vera múslimar
Heimur

Viðurkennir að hafa skotið fólk sem leit út fyrir að vera múslimar

23 störf hverfa hjá Hafnarfjarðarbæ
Pólitík

23 störf hverfa hjá Hafnarfjarðarbæ

Charles Barkley beygði af þegar Ernie Johnson tilkynnti starfslok sín
Myndband
Heimur

Charles Barkley beygði af þegar Ernie Johnson tilkynnti starfslok sín

Keath Ósk slær í gegn á heimsvísu og segir Ísland hafa mótað sköpunina
Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heimsvísu og segir Ísland hafa mótað sköpunina

Formaður miðkjörstjórnar Ísraels krefst rannsóknar á kosningunum
Heimur

Formaður miðkjörstjórnar Ísraels krefst rannsóknar á kosningunum

Segja sjúklinga nú bíða mun skemur eftir innlögn
Pólitík

Segja sjúklinga nú bíða mun skemur eftir innlögn

Slasaðist alvarlega í fiskvinnslu og vann mál gegn Sjóvá
Innlent

Slasaðist alvarlega í fiskvinnslu og vann mál gegn Sjóvá

Leikkonan Barbara Barrie þáði dánaraðstoð
Heimur

Leikkonan Barbara Barrie þáði dánaraðstoð

Bangsafélagið, Keilusambandið og Transkirkjan meðal þeirra sem fengu ekkert
Pólitík

Bangsafélagið, Keilusambandið og Transkirkjan meðal þeirra sem fengu ekkert

58 ára manni stefnt vegna milljónaskuldar við Arion
Innlent

58 ára manni stefnt vegna milljónaskuldar við Arion

Innlent

Þingmannssonur ákærður
Innlent

Þingmannssonur ákærður

Var handtekinn 28. júlí.
Þrír dæmdir eftir íkveikju á Teslu lögreglumanns
Innlent

Þrír dæmdir eftir íkveikju á Teslu lögreglumanns

Slasaðist alvarlega í fiskvinnslu og vann mál gegn Sjóvá
Innlent

Slasaðist alvarlega í fiskvinnslu og vann mál gegn Sjóvá

58 ára manni stefnt vegna milljónaskuldar við Arion
Innlent

58 ára manni stefnt vegna milljónaskuldar við Arion

Hvetur fólk til að sniðganga tónleika Azealia Banks í Reykjavík
Myndband
Innlent

Hvetur fólk til að sniðganga tónleika Azealia Banks í Reykjavík

Hópur unglinga hafði í hótunum við félagsmiðstöð
Innlent

Hópur unglinga hafði í hótunum við félagsmiðstöð

Loka auglýsingu