1
Fólk

Björgvin Franz kominn með kærustu

2
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

3
Minning

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París

4
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

5
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

6
Fólk

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum

7
Minning

Megas er látinn

8
Minning

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin

9
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

10
Landið

Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust

Til baka

„Fávitinn“ á pallbílnum svarar fyrir sig

„Óska ég öllum þeim netröllum hér þess að lenda aldrei í þessari stöðu“

pallbíll
Þarna mátti litlu muna
Mynd: Skjáskot

Munaði litlu að alvarlegur árekstur yrði á íslenskum vegi þegar ökumaður pallbíls tók áhættusaman framúrakstur, samkvæmt myndskeiði sem birt hefur verið í Facebook-hópnum Fávitar í umferðinni en Mannlíf greindi frá málinu í gær.

Myndbandið var birt af Ívari Erni Smárasyni og sýnir ferð mótarhjólakappans Halldórs Guðmundssonar en hann er á mótorhjólinu í myndbandinu og er eiginkona hans að aka á eftir honum. Þegar líður á upptökuna sést rauður pallbíll koma á móti umferð á meðan hann reynir að taka fram úr fleiri en einni bifreið. Pallbíllinn var með pallbíl á kerru í eftirdragi þegar atvikið átti sér stað.

Af myndskeiðinu að dæma sést að ökumaðurinn er kominn yfir á öfugan vegarhelming þegar umferð nálgast úr gagnstæðri átt. Á síðustu stundu tekst honum að beygja aftur út af veginum og forða þannig árekstri. Að því loknu heldur hann för sinni áfram.

Atvikið hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum þar sem margir hafa gagnrýnt aksturslagið harðlega og bent á hversu alvarlegar afleiðingar slíkur framúrakstur geti haft.

Málið er á borði lögreglu á Norðurlandi vestra að sögn Halldórs.

Í athugasemdakerfi Mannlífs við fréttinni í gær skrifar Vilhjálmur Þorvarðarson og játar að vera ökumaðurinn umdeildi.

„Nú gét ég ekki orðabundist lengur þar sem ég var ökumaður og eigandi þessa bíls þetta atvik gerist við gröf í vestur Húnavatnssýslu þar sem er há og laung brekka og sést þar vel út alla Húnavatnssýslu fyrir þessa beygju það var ekkert ökutæki sjánalegt þegar ég kem fram á brekkubrunina svo ég fór að taka fram úr húsbíl og einum pikkup með hestakerru sem keyrðu frekar rólega á óbritinni Línu en þetta tók lengri tíma en ég hefði áætlað svo skyndilega birtist þetta mótorhjól og bíll í töluverðri fjarlægð á eftir þessu hjóli var það rétt af mér að taka framúr við þessar aðstæður nei klárlega ekki og tek ég það bara á mig það var ekkert annað að gera í þessari stöðu en að keyra bílinn útaf til drepa ekki manninn og væri ég alveg til í að ná tali af þessum manni sem var á þessu hjóli ekki til að skammast heldur bara til að ræða málin því það er enginn þaklátari en ég að þarna varð ekki slys,“ skrifar Vilhjálmur.

„Skoðaðu myndbandið til enda þar sem mynbandið er klift þar er óbrotin Lína upp alla brekkuna þar sem framúrakstur byrjar laungu fyrir þessa heilu línu og auðvelt að draga ályktanir af einhliða vídeói en þeyr sem voru fyrir aftan mig og sáu hvað skéði vita það að þetta mótorhjól var hvergi sjánlegt fyrr en það birtist sem minnir okkur alltaf betur á það að þau sjast illa en eins og ég hef sagt áður þá afsaka ég ekki þennan framúrakstur og óska ég öllum þeim netröllum hér þess að lenda aldrei í þessari stöðu við getum öll gert mistök og lært af þeim þessi sekúndubrot að setja bílin útaf björguðu lýfí þessa 1 manns en ég er að sjálfsögðu málaður hér upp sem glæpamaður undir áhrifum fíkniefna og ég veit ekki hvað og hvað ekkert af þessu á við rök að styðjast bara raung ákvörðun og meiraðsegja þú Eiríkur Barkason getur lent í því aldrei gleyma því,“ skrifar hann í annarri athugasemd.

„Er fólk algjörlega stropað í hausnum ég er ekki að reyna að bera mér neinar málsbætur ég útskýrði bara aðstæður laungu fyrir þessa mynda töku ég gerði mistök það er alveg klárt og læri af því en uræðan er komin út í vitleysu það munu allir læra af þessu svo einfalt er það.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Lögreglan leitar að tveimur mönnum
Innlent

Lögreglan leitar að tveimur mönnum

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi
Heimur

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann
Innlent

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann

Katie Couric missti minnið tímabundið
Heimur

Katie Couric missti minnið tímabundið

Björgvin Franz kominn með kærustu
Fólk

Björgvin Franz kominn með kærustu

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París
Minning

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar
Innlent

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin
Minning

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu
Sport

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum
Innlent

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust
Landið

Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust

Landið

Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust
Landið

Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust

„Sem fer betur búum við vel að því að hafa gott fólk og gott viðbragð“
Fyrsta íslenska vindmyllan rís á 30 sekúndum
Myndband
Landið

Fyrsta íslenska vindmyllan rís á 30 sekúndum

Sex slasaðir eftir að rúta valt í Suðursveit
Landið

Sex slasaðir eftir að rúta valt í Suðursveit

Yrðlingur dregur að fjölda ferðamanna
Landið

Yrðlingur dregur að fjölda ferðamanna

Fyrrverandi þingmenn vilja stýra Grindavík
Landið

Fyrrverandi þingmenn vilja stýra Grindavík

Neitar sök í meintri hópárás á Bíladögum
Landið

Neitar sök í meintri hópárás á Bíladögum

Loka auglýsingu