1
Fólk

Bjó í Afríku og Asíu til að komast í bestu fíkniefnin

2
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

3
Heimur

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp

4
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

5
Pólitík

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

6
Fólk

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn

7
Heimur

Handtekinn á flugvellinum á Tenerife eftir átta mánaða leit

8
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

9
Heimur

Robbie Williams útskýrir hvíta efnið í beinni

10
Innlent

Veðurskipti framundan

Til baka

Óliver sparkaði og beit í lögreglumenn

Hefur áður hlotið skilorðsbundna dóma fyrir meðal annars húsbrot, gripdeild og vopnalagabrot

Lögregla
Lögreglumaður að störfumMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Víkingur

Héraðsdómur Norðurlands vestra hefur dæmt 19 ára karlmann, Óliver Nóa Haraldsson, í 90 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni sem áttu sér stað í september árið 2023.

Samkvæmt dómi málsins sparkaði Óliver í mjöðm lögreglumanns sem var við skyldustörf, hótaði öðrum lögreglumanni lífláti og beit þriðja lögreglumanninn í hægri olnboga þegar hann var fluttur í lögreglubifreið. Lögreglumaðurinn sem varð fyrir bitinu hlaut mar af völdum árásarinnar.

Ákærði mætti ekki við þingfestingu málsins í maí síðastliðnum en kom síðar fyrir dóminn þar sem hann játaði skýlaust þau brot sem honum voru gefin að sök. Jafnframt bað hann lögreglumennina sem urðu fyrir brotunum afsökunar. Í kjölfar játningarinnar var málið tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu.

Við ákvörðun refsingar leit dómurinn meðal annars til þess að ákærði var ungur að árum þegar brotin voru framin, að hann hefði játað sök og að nokkur tími væri liðinn frá atvikunum. Þá kom einnig fram að hann ætti nokkurn sakaferil að baki og hefði áður hlotið skilorðsbundna dóma fyrir meðal annars húsbrot, gripdeild, vopnalagabrot, eignaspjöll og umferðarlagabrot.

Dómurinn taldi hæfilegt að refsing ákærða yrði ákveðin 90 daga fangelsi. Fullnustu refsingarinnar var þó frestað til tveggja ára og fellur hún niður haldi hann almennt skilorð á þeim tíma.

Jafnframt var honum gert að greiða 16.830 krónur í sakarkostnað.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
„Klíkuskapur er kjarnamein íslensku þjóðarinnar“
Fólk

„Klíkuskapur er kjarnamein íslensku þjóðarinnar“

Valur Gunnarsson veltir fyrir sér klíkuskap landans
Ryan Adams aflýsir Evróputúrnum
Heimur

Ryan Adams aflýsir Evróputúrnum

Rauð viðvörun á Spáni vegna gríðarlegrar hitabylgju
Heimur

Rauð viðvörun á Spáni vegna gríðarlegrar hitabylgju

William Shatner greindist með krabbamein á sama tíma og dóttir hans
Heimur

William Shatner greindist með krabbamein á sama tíma og dóttir hans

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp
Heimur

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp

Landsliðsmaður í knattspyrnu fjölgar sér
Fólk

Landsliðsmaður í knattspyrnu fjölgar sér

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi
Innlent

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi

Sex manna fjölskylda brennd til bana
Myndband
Heimur

Sex manna fjölskylda brennd til bana

Kerfislægur þrýstingur í eitruðum fjölskyldum
Fólk

Kerfislægur þrýstingur í eitruðum fjölskyldum

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands
Innlent

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

Innlent

Veðurskipti framundan
Innlent

Veðurskipti framundan

Breytingar taka við á fimmtudag
Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn
Innlent

Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi
Innlent

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands
Innlent

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Draumafríið á Íslandi varð að martröð
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

Loka auglýsingu