1
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

2
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

3
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

4
Innlent

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda

5
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

6
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

7
Fólk

Millie Bobby Brown á Íslandi

8
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

9
Innlent

Tók lögregluna upp í laumi og kvartaði svo yfir framkomunni

10
Innlent

Ráðist á leigubílstjóra

Til baka

„Mjög margir að losa sig við miða á tónleika Kaleo á Þingvöllum“

„Hafið skömm fyrir þetta Jakob Frímann og aðrir skipuleggjendur!!!“

Kaleo
Mynd: Markus Felix

Tónlistahátíðin BERGMÁL, þar sem hljómsveitin KALEO er aðalnúmerið, fer fram á Þingvöllum laugardaginn 20. júní 2026 á sumarsólstöðum. Búist er við allt að 20.000 gestum á þennan stórviðburð.

Á Facebook síðunni Tónlistarviðburðir á Íslandi spyr Björn Amby Lárusson hvers vegna áhugi á hátíðinni sé minnkandi.

„Mjög margir að losa sig við/selja miða á tónleika Kaleo á Þingvöllum, þann 20 júní nk. Hvað gerðist eiginlega? Af hverju þessi minnkandi áhugi?“

Þá segir einn að sumir hafi verið að vonast eftir útilegustemningu.

„Stærstu vörusvik ever! Margir hafa eflaust vonast eftir útilegustemningu, geta smurt sér nesti og tekið drykki með sér sem og tjaldstól til að njóta í íslenskri náttúru.

Eins og þetta lýtur út núna skaltu bara taka nóg af pening með og vona það besta.

Ps mestu double standards já JFM að segja í fréttum “fólk verður ekkert stoppað útaf einhverjum hlutum” en svo er búið að senda úr MJÖG skýran tölvupóst hvað má og hvað má ekki… galið dæmi og tónleikahaldarar sjá alveg um það sjálfir að stúta allri tilhlökkun fyrir þessum viðburði.“

Gull aðgangur

Þá eru aðrir ekki sáttir við að boðið sé upp á gull aðgang á auka 50 þúsund krónur.

„Þeir settu mjög skrítin tón í þetta þegar þeir fóru að bjóða "gull aðgang" á auka 50.000 kall sem var "Sérinngangur inn á hátíðarsvæðið

Bergmáls taupoki í takmörkuðu upplagi

Aðgangur að Gullsvæði með:

  • Setustofu og þægilegri aðstöðu
  • Betri salernisaðstöðu
  • Einkabar með sérstökum drykkjarseðli
  • Hleðslustöðvum fyrir síma
  • Og fleira

Þarna er verið að skilja ríkari einstaklinga frá hinum. Og banna svo almúganum að koma með nesti, tjaldstól og regnhlíf. Hvaða PR klúður er þetta? Þetta er ekki þessi kózí sveita tónleika stemmning heldur frekar eins og einhver risa hátíð útí heimi með VIP og svo hinum. Held þetta hafi haft mikil áhrif.“

Miklu fjölskylduvænna í Danmörku

Annar bendir á að í Danmörku séu svipaðar tónlistarhátíðir haldnar en þar sé miðaverðinu stillt í hóf og hægt að taka með sér tjaldstóla.

„Hef bara aldrei vitað aðra eins vitleysu. Græðgi og peningaplokk, séríslenskt dæmi. Hef farið á sambærilega útitónlistarhátíð í Danmörk, Gron koncert, nema það er enþá stærra dæmi og fleira fólk, þar er það eina sem má ekki koma með er vökvi, en mátt þó koma með vatn sem keypt er i búð og i lokuðum innsigluðum umbúðum.

Þar fara fjölskyldur saman með nestisbox, tjaldstóla, regnhlíf og allir i góðum fíling.

Þar að auki er miðaverð þar stillt i hóf, þannig fjölskyldur hafa efni á að geta farið saman.

Að hafa áhyggjur að þvi að fólk fari að nota tjaldstóla og regnhlifar sem barefli er eh nýtt, hvað með allar útihátiðir, Fiskidagurinn á Dalvik, verslunarmanna útilegur, Þjóðhátíð i eyjum og svo framvegis. Eg alla vega man ekki eftir fréttum af svoleiðis málum. Og ef einhver er svo ílla stemdur að honum langi að berja einhvern þá gerir viðkomandi það hvort sem hann er með regnhlif eða tjaldstól eða ekki, getur þá rifið upp eitt ,, vörubretti,, og hent þvi á einhvern!!! Hvaða rugl er þetta eiginlega?!!

Eg spyr af hverju er þetta ekki með sama sniði og var i Vaglaskógi, eg veit ekki annað en að þar hafi allt farið vel fram.

Þessar fáranlegu reglur eru bara til þess að fólk sem er búið að kaupa ser miða , en á ekki gott með að standa lengi, treystir ser ekki i langa biðröð, það verður að sleppa þvi að fara og tapar peningnum sem það eyddi i miðakaup.

Það þarf ekki annað en skoða hvað margir eru að reyna að selja miðana sína, og fólk farið að selja langt undir helmingsverði, svona til að reyna að fá eitthvað til baka.

Hafið skömm fyrir þetta Jakob Frímann og aðrir skipuleggjendur!!!“

Dagskrá á aðalsviðinu (Dynberg)

Hátíðarsvæðið opnar klukkan 11:00, en dagskrá á sviði er eftirfarandi:

  • 14:00 - 14:20: Opnunarathöfn
  • 14:30 - 15:00: KALEO (órafmagnað / acoustic)
  • 15:10 - 15:40: Stuðmenn
  • 16:00 - 16:30: GDRN
  • 16:45 - 17:15: Mugison
  • 17:30 - 18:15: Helgi Björns
  • 18:30 - 19:15: Hjálmar
  • 19:30 - 20:30: Emilíana Torrini
  • 21:00 - 22:30: KALEO (Aðaltónleikar)
  • 22:40 - 23:15: KK
  • 23:30 - 24:00: Júníus Meyvant

Hagnýtar upplýsingar fyrir gesti

  • Armbönd: Hægt er að nálgast tónleikaarmbönd fyrir fram í verslunum 66°Norður (Kringlunni og Hafnartorgi) eða við brottför rútna í Klettagörðum 27 til að flýta fyrir inngangi.
  • Samgöngur: Skipulagðar rútuferðir ganga frá Klettagörðum. Viðbúið er að umferðarstýring og tafir verði á Þingvöllum.
  • Reglur á svæðinu: Ekki er leyfilegt að koma með regnhlífar eða eigin áfengi. Hins vegar er leyft að taka með sér nesti.
  • Gisting: Engin tjaldstæði eru í boði á vegum hátíðarinnar þar sem um einstakan þjóðgarð er að ræða.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn
Pólitík

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu
Innlent

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu
Menning

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir
Innlent

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Brotin klósettseta varð að kærumáli
Innlent

Brotin klósettseta varð að kærumáli

Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda
Innlent

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu
Innlent

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir
Innlent

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir

Brotin klósettseta varð að kærumáli
Innlent

Brotin klósettseta varð að kærumáli

Loka auglýsingu