1
Fólk

Bjó í Afríku og Asíu til að komast í bestu fíkniefnin

2
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

3
Heimur

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp

4
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

5
Pólitík

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

6
Fólk

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn

7
Heimur

Handtekinn á flugvellinum á Tenerife eftir átta mánaða leit

8
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

9
Heimur

Robbie Williams útskýrir hvíta efnið í beinni

10
Innlent

Veðurskipti framundan

Til baka

Verðmunur á einstökum matvörum meiri en tvöfaldur

Neytendur geta sparað umtalsverðar fjárhæðir með því að bera saman verð milli verslana

Forseti ASÍ
Mynd: ASÍ

Nýr samanburður Verðlagseftirlits ASÍ á matvöruverði sýnir að verðmunur á einstökum vörum er víða mikill og í mörgum tilvikum fer hann yfir 30 prósent. Verðmunur er gjarnan minni í lágvöruverslunum eða oft á bilinu 5-10% frá lægsta verði. Niðurstöðurnar undirstrika að neytendur geta sparað umtalsverðar fjárhæðir með því að bera saman verð milli verslana.  Samkvæmt úttektinni er ódýrasta verðið á matvöru að finna í Prís en þar á eftir fylgja Bónus og Krónan.

Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á matvöru dagana 8-14. júní í níu verslunum. Verð voru könnuð í Bónus, Krónunni, Nettó, Hagkaupum, Krambúðinni, Kjörbúðinni, Fjarðarkaupum, Prís og SPAR.

Prís ódýrust af lágvöruverslunum

Þegar verð eru borin saman á 289 vörum sem fengust í lágvöruverslunum, þeim Bónus, Krónunni, Nettó og Prís var lægsta verðið oftast að finna í Prís. 

Verslunin er með lægsta verð á fjölmörgum vörum í öllum helstu vöruflokkum, þar á meðal mjólkurvörum, brauðvörum, kjötvörum, drykkjarvörum og ýmsum þurrvörum. Að jafnaði var verð á vörum í Bónus um 5,5% hærra en þar sem varan fékkst á lægsta verði, sem í nær öllum tilfellum var í Prís. Verð í vörum í Krónunni var að jafnaði 6% hærra og Nettó um 11% hærra. 

Tæplega 8 þúsund króna verðmunur á vörukörfunni í lágvöruverslunum

Sé vörukarfa með 100 algengum neysluvörum fyrir heimili skoðuð var lægsta verðið einnig að finna í Prís þar sem hún kostaði 60.395 krónur samanborið við 68.127 kr. í Nettó þar sem vörukarfan var dýrust. Í Bónus kostaði sama karfa 64.373 kr. og í Krónunni 64.546 kr. Vörulistann má í heild sinni sjá hér. 

Mikill verðmunur á algengum neysluvörum

Vöruúrval getur verið mjög breytilegt milli þeirra fjölda verslana sem verðlagseftirlitið heimsótti og einnig getur verið munur á stærð pakkninga sömu vara. Af þeim vörum sem fáanlegar voru í öllum níu verslununum var algengt að verðmunur væri bilinu 25-70%. Mest munaði á verði á heimilisbrauði frá Myllunni sem var meira en tvöfalt dýrara í Krambúðinni heldur en í Prís. Mikill verðmunur er ekki aðeins á sérvörum heldur einnig á algengum neysluvörum sem finna má á flestum heimilum. Í flestum tilfellum var hæsta verðið að finna í Krambúðinni og þar á eftir  í Hagkaupum. Listann má í heild sinni finna hér.

Á meðal dæma má nefna:

  • MS léttmjólk, 1 lítri kostaði frá frá 259 krónum í  Prís upp í 369 krónur í Krambúðinni, sem jafngildir 42 prósenta verðmun.
  • Nýmjólk var á bilinu 259 í Prís og 369 krónur í Krambúðinni , einnig 42 prósenta munur.
  • KEA smáskyr var á bilinu 201 til 289 krónur eftir verslunum, eða 44 prósenta munur. Ódýrust var það í Prís en dýrast í Krambúðinni.
  • Heimilisjógúrt með jarðarberjabragði kostaði frá 492 krónum í Prís upp í 649 krónur í Krambúðinni, sem er 32 prósenta munur.
  • Góðostur í sneiðum kostaði á bilinu 1.105 í Prís og 1.399 krónur í Krambúðinni, eða 27 prósenta munur.

Meiri verðmunur í krónum á kjöt og fisk

Mestur verðmunur í krónum talið mældist á stærri og dýrari kjötvörum.

Kjarnafæði Lúxus Lambalæri kostaði frá 2.599 kr/kg í Prís upp í 4.779 kr/kg í Nettó, sem jafngildir 84 prósenta verðmun og rúmlega 2.100 króna mismun á kr/kg.

Ali brakandi lærakjöt var á bilinu 1.659 til 2.239 krónur, eða 35 prósenta munur. Þá kostaði kjúklingabringur frá 2.110 kr/kg upp í 2.759 kr/kg krónur eftir verslunum.

Verð á ávöxtum og grænmeti einnig breytilegt

Verð á grænmeti og ferskvöru var sömuleiðis breytilegt.

Rauð epli voru ódýrust í Prís á 399 kr/kg en þar eftir fylgdi krónan á 413 kr/kg og Bónus á 459 kr/kg. 

Spergilkál kostaði frá 479 krónum upp í 749 krónur, sem er 56 prósenta munur. Lambhagasalat var á bilinu 459 til 799 krónur, eða 74 prósenta munur.

Verðmunur á sveppum og tómötum var minni, eða 13 og 12 prósent.

Þúsundir króna geta skilið á milli

Þótt munurinn á einstökum vörum virðist oft ekki mikill getur hann safnast hratt upp þegar keyptar eru margar vörur í einni innkaupaferð.

Könnunin sýnir að verðmunur á algengum dagvörum er enn mikill og að sérstaklega getur borgað sig að fylgjast með verði á kjöti, mjólkurvörum og brauðvörum þar sem munurinn er gjarnan mikill..

Um könnunina

Í könnuninni var verð á matvöru kannað í níu verslunum dagana 8-14. júní. Verð voru könnuð í Bónus, Krónunni, Nettó, Hagkaupum, Krambúðinni, Kjörbúðinni, Fjarðarkaupum, Prís og SPAR.

Í verðsamanburði er miðað við hilluverð sem neytandi hefur upplýsingar um í versluninni. Þegar skýrt er gefið til kynna að veittur sé afsláttur/tilboðsverð af merktu verði við kassa var skráð afsláttarverð.

Öll verð ásamt nýjustu verðum geta neytendur nálgast í Nappinu eða á verdlagseftirlit.is

Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila. 

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
„Klíkuskapur er kjarnamein íslensku þjóðarinnar“
Fólk

„Klíkuskapur er kjarnamein íslensku þjóðarinnar“

Valur Gunnarsson veltir fyrir sér klíkuskap landans
Ryan Adams aflýsir Evróputúrnum
Heimur

Ryan Adams aflýsir Evróputúrnum

Rauð viðvörun á Spáni vegna gríðarlegrar hitabylgju
Heimur

Rauð viðvörun á Spáni vegna gríðarlegrar hitabylgju

William Shatner greindist með krabbamein á sama tíma og dóttir hans
Heimur

William Shatner greindist með krabbamein á sama tíma og dóttir hans

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp
Heimur

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp

Landsliðsmaður í knattspyrnu fjölgar sér
Fólk

Landsliðsmaður í knattspyrnu fjölgar sér

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi
Innlent

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi

Sex manna fjölskylda brennd til bana
Myndband
Heimur

Sex manna fjölskylda brennd til bana

Kerfislægur þrýstingur í eitruðum fjölskyldum
Fólk

Kerfislægur þrýstingur í eitruðum fjölskyldum

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands
Innlent

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

Innlent

Veðurskipti framundan
Innlent

Veðurskipti framundan

Breytingar taka við á fimmtudag
Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn
Innlent

Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi
Innlent

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands
Innlent

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Draumafríið á Íslandi varð að martröð
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

Loka auglýsingu