1
Fólk

Bjó í Afríku og Asíu til að komast í bestu fíkniefnin

2
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

3
Heimur

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp

4
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

5
Pólitík

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

6
Fólk

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn

7
Heimur

Handtekinn á flugvellinum á Tenerife eftir átta mánaða leit

8
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

9
Heimur

Robbie Williams útskýrir hvíta efnið í beinni

10
Innlent

Veðurskipti framundan

Til baka

Minningarstund í Hólavallagarði á kvenréttindadaginn

Heiðra brautryðjandastarf Bríetar Bjarnhéðinsdóttur

Blómsveigur
Mynd: Blómsveigur við leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur í Hólavallagarði. Mynd/Reykjavíkurborg

Á morgun, 19. júní, verður kvenréttindadagsins minnst með hátíðlegri athöfn í Hólavallagarði en 111 ár eru síðan konur fengu kosningarétt. Blómsveigur verður lagður að leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur og mun Björg Magnúsdóttir forseti borgarstjórnar heiðra minningu Bríetar, sem var brautryðjandi í jafnréttisbaráttu og stofnandi Kvenréttindafélags Íslands.

Dagskráin hefst klukkan 11:00 með tónlistarflutningi Sigrúnar Erlu Grétarsdóttur og Vignis Þórs Stefánssonar. Í kjölfarið munu tvær stúlkur, þær Nína Melkorka Ólafsdóttir og Jóný Helgadóttir, bera blómakrans að leiðinu áður en forseti borgarstjórnar flytur ávarp sitt. Athöfninni lýkur svo með frekari tónlistarflutningi klukkan 11:30.

Bríet Bjarnhéðinsdóttir, sem lést árið 1940, átti ríkan þátt í að koma á réttarbótum konum til handa og efla íslenskt lýðræðissamfélag. Hún stofnaði Kvenréttindafélag Íslands árið 1907 og gegndi formennsku þar allt til ársins 1928, þar sem barist var fyrir fullu stjórnmálajafnrétti, kosningarétti og atvinnuréttindum kvenna til jafns við karla.

Bríet var jafnframt ein af fjórum konum sem náðu sögulegu kjöri í bæjarstjórn Reykjavíkur árið 1908, en það var fyrsta sérframboð kvenna hér á landi. Í starfi sínu sem bæjarfulltrúi lét hún til sín taka í mikilvægum velferðarmálum, þar á meðal með innleiðingu skólamatargjafa fyrir vannærð börn, sundkennslu fyrir bæði kyn og uppbyggingu leikvalla í borginni.

Bríet Bjarnhéðinsdóttir
Mynd: Bríet Bjarnhéðinsdóttir kvenréttindakona og borgarfulltrúi. Mynd: Kvennasögusafn.

Dagskráin á kvenréttindadaginn 19. júní 2026

Björg Magnúsdóttir, forseti borgarstjórnar, leggur blómsveig frá Reykvíkingum að leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur, fyrrverandi borgarfulltrúa og kvenréttindakonu, í Hólavallagarði í tilefni kvenréttindadagsins 19. júní 2026.

  • 11.00 – Tónlist, Sigrún Erla Grétarsdóttir söngur og Vignir Þór Stefánsson spilar undir á hljómborð
  • 11.05 - Tvær stúlkur, Nína Melkorka Ólafsdóttir og Jóný Helgadóttir, bera blómakrans að leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur og hann lagður á leiðið.
  • 11.10 - Ávarp Bjargar Magnúsdóttur, forseta borgarstjórnar.
  • 11.20 – Tónlist, Sigrún Erla Grétarsdóttir, söngur og Vignir Þór Stefánsson spilar undir á hljómborð
  • 11.30 - Dagskrá lokið
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
„Klíkuskapur er kjarnamein íslensku þjóðarinnar“
Fólk

„Klíkuskapur er kjarnamein íslensku þjóðarinnar“

Valur Gunnarsson veltir fyrir sér klíkuskap landans
Ryan Adams aflýsir Evróputúrnum
Heimur

Ryan Adams aflýsir Evróputúrnum

Rauð viðvörun á Spáni vegna gríðarlegrar hitabylgju
Heimur

Rauð viðvörun á Spáni vegna gríðarlegrar hitabylgju

William Shatner greindist með krabbamein á sama tíma og dóttir hans
Heimur

William Shatner greindist með krabbamein á sama tíma og dóttir hans

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp
Heimur

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp

Landsliðsmaður í knattspyrnu fjölgar sér
Fólk

Landsliðsmaður í knattspyrnu fjölgar sér

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi
Innlent

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi

Sex manna fjölskylda brennd til bana
Myndband
Heimur

Sex manna fjölskylda brennd til bana

Kerfislægur þrýstingur í eitruðum fjölskyldum
Fólk

Kerfislægur þrýstingur í eitruðum fjölskyldum

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands
Innlent

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

Innlent

Veðurskipti framundan
Innlent

Veðurskipti framundan

Breytingar taka við á fimmtudag
Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn
Innlent

Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi
Innlent

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands
Innlent

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Draumafríið á Íslandi varð að martröð
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

Loka auglýsingu