1
Innlent

Reykvíkingur nær ekki í eiginmann sinn og vill skilja

2
Heimur

Handtekinn fyrir að berja hund

3
Peningar

Þrettán á Seltjarnarnesi sem eru loðin um lófanna

4
Heimur

Trump með óvenjulegt útspil við Kanada

5
Pólitík

Kristrún sendir Rússlandsstjórn tóninn

6
Innlent

Sonur þingmanns grunaður um morð

7
Pólitík

Katrín Jakobsdóttir talar á útifundi Áfram Ísland

8
Fólk

Sána og sex svefnherbergi til sölu í draumahúsi

9
Innlent

Réðst á mann og ók svo á hann

10
Landið

Hvetja fólk til að sýna aðgát í Vestmanneyjum

Til baka

Háttsettur leyniþjónustumaður lýsir dularfullum UFO-kynnum þyrluáhafnar

Áhöfnin var „nánast orðlaus“ eftir atvikið.

UFO
Geimverur?Frá fyrri pakka Pentagon
Mynd: HANDOUT / GETTY IMAGES VIA AFP

Pentagon birti í gær nýjan pakka með 64 skjölum og upptökum sem tengjast UFO-fyrirbærum, eða svokölluðum UAP-fyrirbærum, líkt og Mannlíf greindi frá í gær. Um er að ræða aðra birtingu gagna sem gerð er opinber samkvæmt forsetatilskipun frá Donald Trump fyrr á þessu ári.

Gögnin eru aðgengileg á sérstakri UFO-vefsíðu Pentagon og innihalda sex PDF-skjöl, sjö hljóðskrár og 51 myndskeið.

Myndböndin sýna meðal annars upptökur úr herflugvélum af óútskýrðum fyrirbærum á himni, ásamt ítarlegum lýsingum á hverju atviki.

Þetta kemur tveimur vikum eftir að fyrsta gagnasafnið var birt, en þar voru meðal annars afhjúpuð FBI-skjöl, skýrslur herflugmanna um dularfull atvik, diplómatísk skjöl og ljósmyndir frá geimleiðöngrum NASA.

Nýju myndskeiðin innihalda meðal annars kornóttar innrauðar upptökur sem hafa orðið kunnuglegar undanfarin ár úr búnaði bandaríska hersins.

Pentagon segir að þingmenn hafi óskað eftir myndböndunum í mars og að þau hafi fundist hjá All-domain Anomaly Resolution Office, rannsóknardeild hersins sem rannsakar UFO- og UAP-atvik.

Tekið er fram að mörg gagnanna hafi ekki fullkomlega staðfesta upprunasögu.

Eitt athyglisverðasta myndbandið virðist sýna augnablikið þegar orrustuþota skaut niður óþekktan hlut yfir Lake Huron árið 2023, atvik sem vakti mikla athygli eftir kínverska njósnabelgsmálið. Síðar komu þó fram vísbendingar um að hluturinn gæti hafa verið loftbelgur frá áhugamannahópi.

Annað myndband frá árinu 2022 sýnir margar kúlulaga einingar fara ofan í og upp úr sjónum nærri kafbáti. Ekki kemur fram hvar upptakan var gerð.

Skjölin innihalda einnig eldri frásagnir af UFO-sýnum, skýrslu um sovéska leyniþjónustustarfsemi og gögn frá bandaríska orkumálaráðuneytinu um UFO-atvik, þar á meðal frá PANTEX, mikilvægri kjarnorkuvopnastöð í Bandaríkjunum.

Mest athygli hefur þó vakið frásögn starfandi háttsetts leyniþjónustumanns sem lýsir UFO-rannsókn í þyrluflugi síðla árs 2025.

Samkvæmt skýrslunni urðu hann og áhöfnin fyrir „röð náinna kynna af UAP-fyrirbærum“ sem stóðu yfir í meira en klukkustund.

„Í fjarska sáum við ótal appelsínugular kúlur sveima í allar áttir með fjöllin í bakgrunni. Sýningin stóð yfir í nokkrar mínútur áður en hún dofnaði,“ skrifaði embættismaðurinn.

Hann sagði einnig að tveir stórir ljósboltar hefðu birst skyndilega rétt við þyrluna.

„Flugmennirnir og ég sáum með berum augum tvær stórar kúlur kvikna hlið við hlið, kyrrstæðar rétt fyrir ofan snúningsdisk þyrlunnar hægra megin. Þær voru sporöskjulaga, appelsínugular með hvítum eða gulum kjarna og sendu frá sér ljós í allar áttir.“

Að sögn embættismannsins voru hann og áhöfnin „nánast orðlaus“ eftir upplifunina.

Þá voru hljóðskrár birtast sem innihalda meðal annars samskipti geimfara í Apollo-leiðangri og Project Mercury þar sem rætt er um fyrirbæri sem lýst var sem „eldflugum“ og „snjókornum“.

Pentagon bendir þó á að NASA hafi síðar komist að þeirri niðurstöðu að „eldflugurnar“ hafi í raun verið frosin þétting sem losnaði frá geimförunum og endurkastaði sólarljósi.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Trump með óvenjulegt útspil við Kanada
Heimur

Trump með óvenjulegt útspil við Kanada

„Hafið tilbúinn pakka af batteríum“
54 einstaklingar munu ekki fá áframhaldandi starf hjá borginni
Pólitík

54 einstaklingar munu ekki fá áframhaldandi starf hjá borginni

Tveir létust í nautahlaupi í Mexíkó
Myndband
Heimur

Tveir létust í nautahlaupi í Mexíkó

Alríkisdómari hafnar kröfu Ghislaine Maxwell um frelsi
Heimur

Alríkisdómari hafnar kröfu Ghislaine Maxwell um frelsi

Hvetja fólk til að sýna aðgát í Vestmanneyjum
Landið

Hvetja fólk til að sýna aðgát í Vestmanneyjum

Katrín Jakobsdóttir talar á útifundi Áfram Ísland
Pólitík

Katrín Jakobsdóttir talar á útifundi Áfram Ísland

Handtekinn fyrir að berja hund
Heimur

Handtekinn fyrir að berja hund

„Ef ég er að fela þetta þá væri það erfiðara“
Fólk

„Ef ég er að fela þetta þá væri það erfiðara“

Skelfing í Portúgal þegar maður ók á hóp ungmenna og lögreglumenn
Heimur

Skelfing í Portúgal þegar maður ók á hóp ungmenna og lögreglumenn

Kristrún sendir Rússlandsstjórn tóninn
Pólitík

Kristrún sendir Rússlandsstjórn tóninn

Sigfús fasteignasali kærir þjóðaratkvæðagreiðsluna
Pólitík

Sigfús fasteignasali kærir þjóðaratkvæðagreiðsluna

Eigandi 49ers sakaður um vændiskaup
Sport

Eigandi 49ers sakaður um vændiskaup

Dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að „móðga hetjur“
Heimur

Dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að „móðga hetjur“

Heimur

Trump með óvenjulegt útspil við Kanada
Heimur

Trump með óvenjulegt útspil við Kanada

„Hafið tilbúinn pakka af batteríum“
Dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að „móðga hetjur“
Heimur

Dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að „móðga hetjur“

Tveir létust í nautahlaupi í Mexíkó
Myndband
Heimur

Tveir létust í nautahlaupi í Mexíkó

Alríkisdómari hafnar kröfu Ghislaine Maxwell um frelsi
Heimur

Alríkisdómari hafnar kröfu Ghislaine Maxwell um frelsi

Handtekinn fyrir að berja hund
Heimur

Handtekinn fyrir að berja hund

Skelfing í Portúgal þegar maður ók á hóp ungmenna og lögreglumenn
Heimur

Skelfing í Portúgal þegar maður ók á hóp ungmenna og lögreglumenn

Loka auglýsingu