Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Innbrot á heimili í Árbæjarhverfi

Árbæjarhverfi
Árbæj­ar­hverfi Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: BHJ

Fjöldi umferðar­lagabrota kom inn á borð lögreglu í gærkvöldi og nótt, auk tilkynninga um innbrot, hótanir og einstakling sem neitaði að greiða fyrir veitingar á veitinga­stað.

Ökumaður var kærður fyrir hrað­akstur í Mosfellsbæ eftir að hafa mælst á 148 kílómetra hraða þar sem leyfður hámarks­hraði er 70 kíló­metrar á klukku­stund.

Tveir aðrir ökumenn voru kærðir fyrir hrað­akstur eftir að hafa báðir mælst á 122 kílómetra hraða þar sem hámarks­hraði er 80. Annar þeirra var stöðvaður í Garðabæ og hinn í Hafnar­firði. Þá var ökumaður stöðvaður fyrir að aka sviptur ökuréttindum og var málið sett í hefð­bundið ferli.

Í Árbænum var ökumaður stöðvaður fyrir að aka gegn rauðu ljósi. Hann játaði brotið. Tveir ökumenn til viðbótar voru stöðvaðir í Árbænum vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Þá var ökumaður kærður þar fyrir að aka bifreið á nagla­dekkjum og má hann eiga von á sekt.

Í Mosfellsbæ var ökumaður stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis.

Lögreglu barst jafnframt tilkynning um innbrot á heimili í Árbæjar­hverfi og er málið til rann­sóknar.

Í Reykjavík var tilkynnt um öskur og hótanir frá einstaklingi. Lögregla leitaði að viðkomandi en fann hann ekki. Þá var einstaklingi vísað af hóteli þar sem hann var ekki velkominn.

Loks var lögreglu tilkynnt um einstakling á veitinga­stað í miðbæ Reykja­víkur sem hafði pantað sér veitingar en neitaði að greiða fyrir þær. Málið var sett í hefð­bundið ferli hjá lögreglu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning