
Íranska samfélagið á Íslandi hefur sent frá sér neyðarkall þar sem íslensk stjórnvöld eru hvött til að fordæma nýlegar aftökur í Íran og beita sér á alþjóðavettvangi til að stöðva frekari aftökur ungra mótmælenda.
Í fréttatilkynningu kemur fram að Erfan Esfandiari, 18 ára, og Gol-Mohammad Mohammadi, 23 ára afganskur ríkisborgari, hafi verið teknir af lífi í dag af írönskum stjórnvöldum. Báðir voru handteknir í kjölfar mótmæla í Isfahan í janúar á þessu ári.
Samtökin segja jafnframt að sterkar vísbendingar séu um að fleiri aftökur séu yfirvofandi. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum hafi fangar sem tengjast svokölluðu „Alikhani-square“-máli verið fluttir í einangrun, sem hafi aukið ótta um að fleiri geðþóttaaftökur séu í vændum.
Í yfirlýsingunni eru tíu fangar sagðir í bráðri lífshættu. Þar eru nefndir Alireza Sepahi, Abolfazl Sepahi, Ghaem Hosseini, Shervin Bagherian, Amirhossein Safari, Amirhossein Maleki, Ali Dashti, Abolfazl Ebrahimi, Alireza Raeisi og Amirhossein Ebrahimi Analoocheh.
Fordæma einnig árásir á almenna borgara
Samtökin lýsa einnig yfir miklum áhyggjum af öryggi almennra borgara í Íran vegna átaka í landinu og fordæma árásir á skóla.
Í tilkynningunni er sérstaklega vísað til árásar á skóla í Minab, þar sem 120 skólabörn voru drepin af bandaríska hernum, og þess krafist að alþjóðasamfélagið geri allt sem í þess valdi stendur til að koma í veg fyrir að sambærilegir atburðir endurtaki sig.
„Vernd óbreyttra borgara og barna verður að vera í algjörum forgangi óháð aðstæðum,“ segir í tilkynningunni.
Krefjast viðbragða íslenskra stjórnvalda
Íranska samfélagið bendir á að Ísland hafi tekið forystu innan Sameinuðu þjóðanna í janúar síðastliðnum varðandi mannréttindabrot íranskra stjórnvalda.
Af þeim sökum eru íslensk stjórnvöld og utanríkisráðuneytið hvött til að fordæma opinberlega nýjustu aftökurnar og yfirvofandi aftökur ungra mótmælenda.
Jafnframt eru stjórnvöld hvött til að beita öllum tiltækum diplómatískum leiðum á alþjóðavettvangi til að reyna að stöðva aftökubylgjuna og verja mannréttindi og líf almennra borgara í Íran.
Í tilkynningunni segir að dauðarefsingar séu notaðar sem tæki til að skapa ótta og þagga niður í frelsisbaráttu írönsku þjóðarinnar og að þeir sem beri ábyrgð á aftökunum verði að sæta ábyrgð fyrir dómstólum.
Hér fyrir neðan má lesa yfirlýsinguna í heild sinni en undir hana skrifar Alireza Fartoumi.
Yfirlýsingin
Erfan Esfandiari (18 ára) og Gol-Mohammad Mohammadi (23 ára, afganskur ríkisborgari), sem báðir voru handteknir í kjölfar mótmælanna í janúar 2026 í Isfahan, voru teknir af lífi í dag af írönskum stjórnvöldum.
Undanfarna daga hafa borist skýrslur um að fangar í tengslum við svokallað „Alikhani-square“ mál hafi verið fluttir í einangrun, sem hefur aukið stórlega ótta um að fleiri geðþóttaaftökur séu í vændum. Þessir unglingspiltar og ungu menn voru handteknir á meðan mótmælunum stóð í janúar síðastliðnum.
Samkvæmt áreiðanlegum heimildum eru eftirtaldir fangar í bráðri lífshættu:
Alireza Sepahi, Abolfazl Sepahi, Ghaem Hosseini, Shervin Bagherian, Amirhossein Safari, Amirhossein Maleki, Ali Dashti, Abolfazl Ebrahimi, Alireza Raeisi og Amirhossein Ebrahimi Analoocheh.
Áhyggjur af vernd almennra borgara og fordæming á árásum á skóla:
Samhliða þessum ógnunum lýsir íranska mannréttindasamfélagið yfir þungum áhyggjum af öryggi óbreyttra borgara á tímum átaka og stríðsátaka. Við lögðum ríka áherslu á að alþjóðasamfélagið beiti sér af öllum afli til að tryggja að tragískir atburðir á borð við árásina á skólann í Minab endurtaki sig aldrei aftur. Vernd óbreyttra borgara og barna verður að vera í algjörum forgangi óháð aðstæðum.
Krafa til íslenskra stjórnvalda:
Þar sem Ísland tók forystu á vettvangi Sameinuðu þjóðanna í janúar 2026 gegn mannréttindabrotum klerkastjórnarinnar, krefjumst við þess að íslensk stjórnvöld og utanríkisráðuneytið:
Fordæmi opinberlega og án tafar þessar nýjustu aftökur og yfirvofandi geðþóttaaftökur á þessum ungu mótmælendum.
Beiti öllum tækifærum og diplómatískum þrýstingi á alþjóðavettvangi til að stöðva aftökubylgjuna í Íran og vernda réttindi og líf almennra borgara.
Beiting dauðarefsinga sem tæki til að breiða út ótta og þagga niður í frelsisröddum íransks almennings er skýrt brot á grundvallarmannréttindum. Gera verður stjórnvöld og þá sem fyrirskipa og framkvæma þessar aftökur ábyrga frammi fyrir réttvísinni.
