1
Heimur

Ringulreið og ófremdarástand á stærsta flugvelli Tenerife

2
Fólk

Margrét Marteinsdóttir skiptir um gír

3
Minning

Magnús Erlendsson er fallinn frá

4
Landið

Akureyringur ákærður fyrir hálft gramm af tóbaksblönduðu kannabisefni

5
Innlent

Árekstur tveggja bíla í Garðabæ

6
Fólk

Frábært fjölskylduhús fáanlegt

7
Pólitík

Grímur skipaður í mjög viðeigandi stýrihóp

8
Innlent

Innflytjendur fá 200 milljónir frá Ingu

9
Innlent

Friðgeir dæmdur fyrir hatursorðræðu

10
Fólk

Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eiga von á barni

Til baka

Jóhann Friðrik Antonsson er fallinn frá

|

Jóhann Friðrik Ant­ons­son, viðskiptafræðingur, andaðist 15. ágúst síðastliðinn, 79 ára að aldri.

Hann fæddist á Hrapps­stöðum í Svarfaðardal 31. maí 1946. Foreldrar hans voru Anton Baldvinsson, bóndi og verkamaður, og Lilja Tryggvadóttir, húsmóðir. Jóhann bjó fyrstu ár ævinnar á Hrappsstöðum en flutti með fjölskyldu sinni til Dalvíkur þriggja ára gamall. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1966. Að námi loknu starfaði hann tvö ár sem gjaldkeri Dalvíkurhrepps áður en hann hóf nám í viðskiptafræði við Háskóla Íslands. Hann útskrifaðist með kandídatspróf árið 1974. Samhliða námi tók hann þátt í stofnun Bókhaldsskrifstofunnar hf. á Dalvík og starfaði þar um tíma.

Árið 1976 var hann ráðinn framkvæmdastjóri Söltunarfélags Dalvíkur, sem hafði umsjón með tilraunaveiðum og vinnslu úthafsrækju. Nokkrum árum síðar, 1982, var stofnað félagið Upsaströnd hf. sem keypti togarann Baldur, og tók Jóhann að sér stöðu framkvæmdastjóra. Hann starfaði síðan meðal annars sem markaðs- og þróunarstjóri hjá Fiskvinnslu KEA á Dalvík árið 1985 og vann á ný hjá Bókhaldsskrifstofunni til 1988, en sinnti eftir það ráðgjöf og stjórnarstörfum, meðal annars fyrir Atvinnutryggingasjóð útflutningsgreina. Frá 1991 starfaði hann sjálfstætt sem ráðgjafi og var um árabil tengdur Ráðgjöfum ehf.

Jóhann hafði víðtækan áhuga á samfélagsmálum og tók þátt í fjölmörgum verkefnum. Hann var meðal stofnenda héraðsfréttablaðsins Norðurslóðar árið 1977 og skrifaði fjölda greina um sjávarútveg í blöð og tímarit. Árið 2021 gaf hann út bókina Sjávarplássið Dalvík sem byggði á hluta þessara skrifa.

Á vettvangi stjórnmála var Jóhann kjörinn í bæjarstjórn Dalvíkur árið 1974 af lista Framsóknarflokks og Samtaka frjálslyndra og vinstrimanna. Hann lagði mikla áherslu á samstöðu jafnaðarmanna og félags­hyggjufólks og studdi stofnun Samfylkingarinnar. Hann sinnti jafnframt ýmsum trúnaðarstörfum á Dalvík, meðal annars í stjórn Útgerðarfélags Dalvíkinga, var formaður hafnarstjórnar um árabil og sat sem formaður stjórnar Sparisjóðs Svarfdæla.

Eftirlifandi eiginkona hans er Svanfríður Inga Jónasdóttir, fyrrverandi kennari, alþingismaður og bæjarstjóri á Dalvík. Sonur þeirra er Jónas Tryggvi, fæddur 1979. Þá eru synir Svanfríðar, fóstursynir Jóhanns, Pétur Húni Björnsson, fæddur 1971, og Kristján Eldjárn, fæddur 1975. Barnabörn Jóhanns eru sjö talsins.

Útför hans fer fram frá Dalvíkurkirkju föstudaginn 22. ágúst klukkan 13.

Mbl.is sagði frá andlátinu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Hestamaður fluttur á sjúkrahús
Innlent

Hestamaður fluttur á sjúkrahús

Fantur reyndi að stinga mann
Innlent

Fantur reyndi að stinga mann

Grímur skipaður í mjög viðeigandi stýrihóp
Pólitík

Grímur skipaður í mjög viðeigandi stýrihóp

Friðgeir dæmdur fyrir hatursorðræðu
Innlent

Friðgeir dæmdur fyrir hatursorðræðu

Innflytjendur fá 200 milljónir frá Ingu
Innlent

Innflytjendur fá 200 milljónir frá Ingu

Magnús Erlendsson er fallinn frá
Minning

Magnús Erlendsson er fallinn frá

Fræg mæðgin í eldlínunni
Slúður

Fræg mæðgin í eldlínunni

Jóhann Páll verndar formfagran gíg
Pólitík

Jóhann Páll verndar formfagran gíg

Ringulreið og ófremdarástand á stærsta flugvelli Tenerife
Heimur

Ringulreið og ófremdarástand á stærsta flugvelli Tenerife

Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eiga von á barni
Fólk

Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eiga von á barni

Frábært fjölskylduhús fáanlegt
Myndir
Fólk

Frábært fjölskylduhús fáanlegt

Akureyringur ákærður fyrir hálft gramm af tóbaksblönduðu kannabisefni
Landið

Akureyringur ákærður fyrir hálft gramm af tóbaksblönduðu kannabisefni

Árekstur tveggja bíla í Garðabæ
Myndband
Innlent

Árekstur tveggja bíla í Garðabæ

Minning

Magnús Erlendsson er fallinn frá
Minning

Magnús Erlendsson er fallinn frá

Jóhannes Sigurjónsson er látinn
Minning

Jóhannes Sigurjónsson er látinn

Arnór L. Pálsson er fallinn frá
Minning

Arnór L. Pálsson er fallinn frá

Ingi Kristján Pétursson er látinn
Minning

Ingi Kristján Pétursson er látinn

Pétur Bjarnason er fallinn frá
Minning

Pétur Bjarnason er fallinn frá

Kristinn Svavarsson er fallinn frá
Minning

Kristinn Svavarsson er fallinn frá

Loka auglýsingu