1
Fólk

Margrét Marteinsdóttir skiptir um gír

2
Heimur

Ringulreið og ófremdarástand á stærsta flugvelli Tenerife

3
Minning

Magnús Erlendsson er fallinn frá

4
Landið

Akureyringur ákærður fyrir hálft gramm af tóbaksblönduðu kannabisefni

5
Innlent

Árekstur tveggja bíla í Garðabæ

6
Fólk

Frábært fjölskylduhús fáanlegt

7
Innlent

Friðgeir dæmdur fyrir hatursorðræðu

8
Innlent

Innflytjendur fá 200 milljónir frá Ingu

9
Pólitík

Grímur skipaður í mjög viðeigandi stýrihóp

10
Fólk

Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eiga von á barni

Til baka

Jóhann Valgeir Reynisson er fallinn frá

Kerti

Jóhannes Valgeir Reynisson, frumkvöðull, verslunarmaður og stofnandi Bláa naglans, lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut 12. september, 72 ára að aldri. Mbl.is greindi frá andlátinu.

Jóhannes Valgeir, sem flestir þekktu sem Valla, fæddist í Reykjavík 2. september 1953, sonur hjónanna Reynis Eyjólfssonar og Ragnheiðar Friðriksdóttur. Hann hóf ungur störf í fjölskyldufyrirtækinu Reynisbúð við Bræðraborgarstíg. Síðar lauk hann námi í matreiðslu við Hótel- og veitingaskólann árið 1986, samhliða störfum hjá Brauðbæ-Óðinsvéum.

Á starfsferli sínum kom Valli víða við sögu; hann var meðstofnandi Vega majóness, tók þátt í þróun graflaxsósu sem naut mikilla vinsælda, byggði upp hótelrekstur og stundaði útgerð bæði til sjóstangaveiða og lundaskoðunar. Hann hafði einnig umsjón með rekstri Víkurvagna, fjölskyldufyrirtækis, og var ötull í að koma hugmyndum í framkvæmd.

Í kjölfar bankahrunsins stóð hann fyrir smíði Þjóðarskútunnar, risavaxins sparibauks sem safnaði fé til styrktar mæðrastyrksnefndar.

Árið 2011 greindist Valli með blöðruhálskirtilskrabbamein. Hann skráði frá fyrstu stundu reynslu sína í kvikmyndaða dagbók sem síðar varð að heimildarmynd, frumsýnd í Hörpu og síðar sýnd í sjónvarpi. Í framhaldi stofnaði hann Bláa naglann sem varð vettvangur vitundarvakningar karlmanna með krabbamein og safnaði fé til tækjakaupa Landspítalans og annarra góðgerðarmála.

Valli var þekktur fyrir glaðværð og kímnigáfu og var traustur klettur síns fólks. Hann hélt jákvæðri lífssýn allt til hinstu stundar, eftir langa baráttu við hjartasjúkdóm.

Eftirlifandi eiginkona hans er Gyða Þórdís Þórarinsdóttir og synir þeirra Þórarinn Reynir, Ragnar Þór og Benedikt Rúnar. Barnabörnin eru þrjú.

Útför Jóhannesar Valgeirs fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 25. september kl. 15.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Fantur reyndi að stinga mann
Innlent

Fantur reyndi að stinga mann

Grímur skipaður í mjög viðeigandi stýrihóp
Pólitík

Grímur skipaður í mjög viðeigandi stýrihóp

Friðgeir dæmdur fyrir hatursorðræðu
Innlent

Friðgeir dæmdur fyrir hatursorðræðu

Innflytjendur fá 200 milljónir frá Ingu
Innlent

Innflytjendur fá 200 milljónir frá Ingu

Magnús Erlendsson er fallinn frá
Minning

Magnús Erlendsson er fallinn frá

Fræg mæðgin í eldlínunni
Slúður

Fræg mæðgin í eldlínunni

Jóhann Páll verndar formfagran gíg
Pólitík

Jóhann Páll verndar formfagran gíg

Ringulreið og ófremdarástand á stærsta flugvelli Tenerife
Heimur

Ringulreið og ófremdarástand á stærsta flugvelli Tenerife

Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eiga von á barni
Fólk

Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eiga von á barni

Frábært fjölskylduhús fáanlegt
Myndir
Fólk

Frábært fjölskylduhús fáanlegt

Akureyringur ákærður fyrir hálft gramm af tóbaksblönduðu kannabisefni
Landið

Akureyringur ákærður fyrir hálft gramm af tóbaksblönduðu kannabisefni

Árekstur tveggja bíla í Garðabæ
Myndband
Innlent

Árekstur tveggja bíla í Garðabæ

Margrét Marteinsdóttir skiptir um gír
Fólk

Margrét Marteinsdóttir skiptir um gír

Minning

Magnús Erlendsson er fallinn frá
Minning

Magnús Erlendsson er fallinn frá

Jóhannes Sigurjónsson er látinn
Minning

Jóhannes Sigurjónsson er látinn

Arnór L. Pálsson er fallinn frá
Minning

Arnór L. Pálsson er fallinn frá

Ingi Kristján Pétursson er látinn
Minning

Ingi Kristján Pétursson er látinn

Pétur Bjarnason er fallinn frá
Minning

Pétur Bjarnason er fallinn frá

Kristinn Svavarsson er fallinn frá
Minning

Kristinn Svavarsson er fallinn frá

Loka auglýsingu