1
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

2
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

3
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

4
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

5
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

6
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

7
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

8
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

9
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

10
Fólk

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga

Til baka

Kardashians systur misstu ömmu sína

„Hún kenndi mér allt sem skiptir máli…“

Kardashians
The KardashiansMJ var eftirlætisstjarna margra áhorfenda
Mynd: Instagram/Khloe Kardashian

Kris Jenner, raunveruleikastjarna, kaupsýslukona, framleiðandi og umboðsmaður Kardashian- og Jenner-fjölskyldunnar, missti mömmu sína í gær. Mamma Kris Jenner hét Mary Jo „MJ“ Shannon og fæddist 26. júlí 1934 og lést 91 árs að aldri þann 16. júlí 2026.

Ekki hefur verið greint frá dánarorsökinni.

Hlutverk Mary Jo „MJ“ Shannon í raunveruleikaþáttunum Keeping Up with the Kardashians og The Kardashians var fyrst og fremst að vera rödd skynseminnar fyrir fjölskylduna og traustur ráðgjafi. Hún var jafnframt eftirlætisstjarna margra áhorfenda. Þótt hún hafi ekki verið í aðalhlutverki mætti hún reglulega sem gestur og átti margar eftirminnilegar stundir.

Screenshot 2026-07-17 142706
Mynd: Samsett mynd

Í opinberri færslu kveður Kris Jennar móður sína:

„Í dag kvöddum við hana elsku mömmu mína, MJ. Það eru engin orð sem geta lýst því hvað hún sýndi mér og mikil sorg að þurfa að kveðja hana. Mamma var hjartað í fjölskyldunni okkar. Hún kenndi mér allt sem skiptir máli… að elska fjölskylduna af öllu hjarta, að vera góðhjörtuð, að standa með þeim sem maður elskar og að taka aldrei neinni stund saman sem sjálfsögðum hlut. Hún kenndi okkur að fjölskyldan væri allt. Hún sýndi okkur hvernig á að elska skilyrðislaust og hvernig á að finna gleðina í litlu augnablikunum. Hún sýndi mér hvernig á að mæta áskorunum lífsins af seiglu og trú.

Mamma, takk fyrir alla þá fórn sem þú færðir, öll þau viskuorð sem þú miðlaðir og hverja stund sem þú elskaðir okkur svo skilyrðislaust. Ég mun sakna daglegu samtalanna okkar, brossins þíns, hlátursins þíns… Hjörtu okkar eru brotin, en við finnum huggun í því að vita að ást eins og þín yfirgefur okkur aldrei í raun. Ást þín mun lifa áfram í fjölskyldunni okkar, í hefðunum okkar, á hverri stundu sem við erum saman og í hverju lífi sem þú snertir.

Þegar ég horfi á börnin mín og barnabörnin mun ég að eilífu sjá brot af þér í okkur öllum. Það er enginn hluti af mér sem er ekki mótaður af þér. Og ef ég hef gert eitthvað rétt í þessum heimi þá er það vegna þess að ég eyddi lífi mínu í að reyna að lifa þannig að þú yrðir stolt af mér. Hver minning, hvert augnablik, hver blessun, það var allt þér að þakka, og ég mun að eilífu þakka Guði á hverjum einasta degi fyrir að gefa mér þig sem mömmu. Hjarta mitt er brotið í milljón mola… takk fyrir að gefa mér dásamlegustu æsku og dásamlegt, blessað líf… Ég elska þig að eilífu, mamma. Takk fyrir að gefa okkur allt.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja
Heimur

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja

Sprengjubrot lenda við landamæri Moldóvu og Eistland styrkir varnir gegn Rússlandi.
Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur
Myndband
Heimur

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

Risastór gagnaleki skekur Danmörku
Heimur

Risastór gagnaleki skekur Danmörku

Leitaði til umboðsmanns vegna þvingaðrar lyfjagjafar
Innlent

Leitaði til umboðsmanns vegna þvingaðrar lyfjagjafar

Sjö merki um að þú sért með réttu manneskjunni
Fólk

Sjö merki um að þú sért með réttu manneskjunni

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

Fyrrverandi eiginmaður Katie Price ákærður fyrir nauðgun á 13 ára stúlku
Heimur

Fyrrverandi eiginmaður Katie Price ákærður fyrir nauðgun á 13 ára stúlku

Stella breytir garnafgöngum í nýja uppáhaldspeysu
Menning

Stella breytir garnafgöngum í nýja uppáhaldspeysu

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína
Heimur

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

Einelti hefur aukist meðal yngri barna í grunnskólum
Innlent

Einelti hefur aukist meðal yngri barna í grunnskólum

Ugla gagnrýnir viðbrögð karlmanna við hópnauðgunarmálinu í Cornell-háskólanum
Innlent

Ugla gagnrýnir viðbrögð karlmanna við hópnauðgunarmálinu í Cornell-háskólanum

Heimur

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja
Heimur

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja

Sprengjubrot lenda við landamæri Moldóvu og Eistland styrkir varnir gegn Rússlandi.
Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína
Heimur

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur
Myndband
Heimur

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

Risastór gagnaleki skekur Danmörku
Heimur

Risastór gagnaleki skekur Danmörku

Fyrrverandi eiginmaður Katie Price ákærður fyrir nauðgun á 13 ára stúlku
Heimur

Fyrrverandi eiginmaður Katie Price ákærður fyrir nauðgun á 13 ára stúlku

Loka auglýsingu