
Á morgun verður haldin fataviðgerðarsmiðja á Borgarbókasafninu Gerðubergi undir yfirskriftinni Skapandi fataviðgerðir en þetta kemur fram í tilkynningu frá safninu.
Smiðjan er liður í viðburðaröð safnsins sem beinir sjónum að sjálfbærni, ábyrgri neyslu og hringrásarhagkerfinu.
Leiðbeinendur smiðjunnar eru þær Ragna S. Bjarnadóttir, lektor í fatahönnun við Listaháskóla Íslands, og Katrín Káradóttir, prófessor í fatahönnun við sama skóla. Þær munu kynna fjölbreytt dæmi um fataviðgerðir og leiðbeina þátttakendum við að lagfæra og breyta eigin flíkum.
Þátttakendur eru hvattir til að taka með sér fatnað sem þarfnast viðgerða eða breytinga, auk eigin verkfæra og efniviðar eftir því sem við á. Á staðnum verður þó einnig að finna úrval af verkfærum, saumavélum, þráðum, garni og textíl, auk sýnidæma og fræðsluefnis sem ætlað er að örva sköpun og hugmyndaflug.
Viðburðurinn endurspeglar vaxandi áherslu á sjálfbærni í fataiðnaði, en samkvæmt sérfræðingum eru nú þegar til næg föt í heiminum fyrir næstu sjö kynslóðir þrátt fyrir áframhaldandi framleiðslu. Ein leið til að draga úr ofneyslu er að endurvekja hefðir fyrri kynslóða, þar sem fatnaður var nýttur til fulls og gert var við í stað þess að henda.
Smiðjan fer fram milli klukkan 19:30 og 21:00 og er aðgangur ókeypis.

Komment