
„Fuglinn, líklega lómur, var flæktur í einskonar vírnet“
Mynd: Facebook/Golfklúbbur Þorlákshafnar
Golfkylfingur við Gólfklúbb Þorlákshafnar var snör í snúningum þegar hún kom auga á fugl í tjörninn sem virtist flæktur í vír. Í opinberri færslu golfklúbbsins segir:
„Aldís Embla Magnúsdóttir var að ljúka fyrsta golfhring sínum er hún sá fugl berjast um í tjörninni á átjándu braut. Hún beið ekki boðanna, óð út í og náði fuglinum eftir mikinn eltingaleik. Sá hún þá hvernig fuglinn, líklega lómur, var flæktur í einskonar vírnet og hjálpuðust kylfingar að við að losa hann. Þau eru ekki mörg, sem ná fugli á fyrsta golfhring sínum. Myndskeiðið tók Þórunn Jónsdóttir, félagi í GÞ.“
Hér má sjá björgunarafrek Aldísar.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa
Komment
Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
