
Séra Sigríður Guðmundsdóttir, fyrrverandi sóknarprestur á Hvanneyri, er látin, 63 ára að aldri.
Þjóðkirkjan greinir frá andláti hennar.
Sigríður fæddist í Hafnarfirði 2. júlí árið 1963. Foreldrar hennar voru Guðmundur Kristinn Jónsson og Sesselja Guðmunda Sigurðardóttir.
Hún lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautarskólanum við Ármúla árið 1986 og útskrifaðist með cand. theol.-próf frá Háskóla Íslands 23. október árið 1992. Á námsárum sínum starfaði hún meðal annars hjá Landsbanka Íslands í um sjö ár auk þess að sinna aðhlynningu aldraðra.
Sigríður lagði einnig áherslu á símenntun og sótti námskeið um fjölmiðlun og ofbeldi í fjölskyldum við Félagsvísindadeild Háskóla Íslands. Þá tók hún þátt í fjölda námskeiða á vegum Endurmenntunarstofnunar Háskóla Íslands, meðal annars á sviði barna- og æskulýðsstarfs og tölvunotkunar.
Hún var skipuð í Hvanneyrarprestakall í Borgarfjarðarprófastsdæmi frá og með 20. nóvember árið 1992 og var vígð til embættis sama dag. Gegndi hún starfi sóknarprests á Hvanneyri um árabil þar til hún lét af embætti að eigin ósk 1. mars árið 2000.