1
Heimur

Hópi ölvaðra kvenna vísað úr flugi til Tenerife

2
Innlent

Skelfilegar aukaverkanir af nýju offitulyfi

3
Fólk

Stjórnarformaður Icelandair selur eitt dýrasta hús landsins

4
Innlent

Með milljónir í töskunum á leið úr landi

5
Innlent

Máttu ekki að vera á Íslandi en voru báðir handteknir hérlendis

6
Innlent

Aron Atli dæmdur fyrir hrottalega árás á sambýliskonu sína

7
Fólk

Gagnrýnir fyrirkomulag á tónleikum Of Monsters and Men

8
Fólk

Bára Beauty á von á tvíburum

9
Innlent

Rétt tímasetning blóðþrýstingslyfja getur bjargað lífi

10
Fólk

Fyrrum þingmaður segir sjálfsfróun ekki þurfa að ógna samböndum

Til baka

Lögreglan kom auga á virkilega grunsamlegan mann

lögreglumótorhjól
Lögreglumaður að störfum
Mynd: Víkingur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í nótt og í gærkvöldi og kom meðal annars að rannsókn alvarlegrar hnífaárásar, innbroti, þjófnaði og akstri undir áhrifum áfengis og fíkniefna.

Tilkynning barst um blóðugan mann sem hafði orðið fyrir líkamsárás. Við nánari athugun kom í ljós að hann hafði verið stunginn með hnífi. Greinargóð lýsing á meintum árásarmanni fylgdi tilkynningunni og hafði lögregla upp á honum skömmu síðar. Var hann handtekinn og vistaður í fangaklefa. Sá sem varð fyrir árásinni var fluttur á bráðamóttöku til aðhlynningar. Málið er til rannsóknar.

Þá var lögreglu tilkynnt um yfirstandandi innbrot í fyrirtæki. Þegar lögreglumenn komu á vettvang var meintur gerandi enn inni í húsnæðinu og var hann handtekinn. Hann reyndist vera í annarlegu ástandi og var vistaður í fangaklefa þar til unnt verður að ræða við hann.

Lögregla hafði einnig afskipti af manni sem grunaður var um að vera með stolið reiðhjól. Grunur vaknaði þar sem hann hélt á hjólinu með lásinn enn fastan við hjólabúnaðinn. Maðurinn var fluttur á lögreglustöð til viðræðna og reiðhjólinu komið í örugga vörslu.

Í öðru máli var lögregla kölluð til að vísa einstaklingi út úr íbúð og var það mál leyst á vettvangi. Einnig var tilkynnt um þjófnað úr matvöruverslun sem afgreiddur var á staðnum.

Tveir ökumenn voru stöðvaðir við almennt umferðareftirlit. Annar reyndist ölvaður undir stýri og jafnframt sviptur ökuréttindum vegna sambærilegra brota. Hinn reyndist vera undir áhrifum fíkniefna við akstur. Báðir voru fluttir á lögreglustöð í hefðbundið ferli og látnir lausir að því loknu.

Loks stöðvaði lögregla tvö ungmenni á vespu þar sem hvorugt þeirra var með hjálm. Málið var afgreitt á vettvangi en lögregla ítrekar mikilvægi þess að foreldrar brýni fyrir ungmennum nauðsyn þess að nota viðeigandi hlífðarbúnað við akstur á vespum og öðrum sambærilegum farartækjum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Baráttukonan Jennifer sem neitaði að þegja fannst látin
Heimur

Baráttukonan Jennifer sem neitaði að þegja fannst látin

Stóð upp gegn fjölmiðlarisanum
„Við munum höfða mál gegn ríkinu“
Innlent

„Við munum höfða mál gegn ríkinu“

Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskattinn
Pólitík

Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskattinn

Kona fann ókunnugt lík í kistu móður sinnar
Heimur

Kona fann ókunnugt lík í kistu móður sinnar

Þriggja ára drengur drukknaði á meðan móðir hans var ölvuð
Heimur

Þriggja ára drengur drukknaði á meðan móðir hans var ölvuð

Rétt tímasetning blóðþrýstingslyfja getur bjargað lífi
Innlent

Rétt tímasetning blóðþrýstingslyfja getur bjargað lífi

Ellefu særðir eftir skotárás í skóla
Heimur

Ellefu særðir eftir skotárás í skóla

Skelfilegar aukaverkanir af nýju offitulyfi
Innlent

Skelfilegar aukaverkanir af nýju offitulyfi

Unglingur grunaður um að skipuleggja árás á skóla og mosku
Heimur

Unglingur grunaður um að skipuleggja árás á skóla og mosku

Stökk fyrir borð á skemmtiferðaskipi
Heimur

Stökk fyrir borð á skemmtiferðaskipi

Umferð raskast við Háaleitisbraut á morgun
Innlent

Umferð raskast við Háaleitisbraut á morgun

Sagður hafa nauðgað sambýliskonu sinni meðan hún svaf
Innlent

Sagður hafa nauðgað sambýliskonu sinni meðan hún svaf

Jóhannes leitar nýrra svara eftir eigin rangfærslur
Innlent

Jóhannes leitar nýrra svara eftir eigin rangfærslur

Innlent

„Við munum höfða mál gegn ríkinu“
Innlent

„Við munum höfða mál gegn ríkinu“

Kristján Loftsson vill veiða hvali sama hvað
Jóhannes leitar nýrra svara eftir eigin rangfærslur
Innlent

Jóhannes leitar nýrra svara eftir eigin rangfærslur

Rétt tímasetning blóðþrýstingslyfja getur bjargað lífi
Innlent

Rétt tímasetning blóðþrýstingslyfja getur bjargað lífi

Skelfilegar aukaverkanir af nýju offitulyfi
Innlent

Skelfilegar aukaverkanir af nýju offitulyfi

Umferð raskast við Háaleitisbraut á morgun
Innlent

Umferð raskast við Háaleitisbraut á morgun

Sagður hafa nauðgað sambýliskonu sinni meðan hún svaf
Innlent

Sagður hafa nauðgað sambýliskonu sinni meðan hún svaf

Loka auglýsingu