1
Heimur

Hópi ölvaðra kvenna vísað úr flugi til Tenerife

2
Innlent

Skelfilegar aukaverkanir af nýju offitulyfi

3
Fólk

Stjórnarformaður Icelandair selur eitt dýrasta hús landsins

4
Innlent

Með milljónir í töskunum á leið úr landi

5
Innlent

Máttu ekki að vera á Íslandi en voru báðir handteknir hérlendis

6
Innlent

Aron Atli dæmdur fyrir hrottalega árás á sambýliskonu sína

7
Fólk

Gagnrýnir fyrirkomulag á tónleikum Of Monsters and Men

8
Fólk

Bára Beauty á von á tvíburum

9
Innlent

Rétt tímasetning blóðþrýstingslyfja getur bjargað lífi

10
Fólk

Fyrrum þingmaður segir sjálfsfróun ekki þurfa að ógna samböndum

Til baka

Sebastian nefbraut ungmenni við strætóskýli

Sagt að brotaþoli hafi notað orðin „niggari“ og „slave“ og „negri“

Strætó
Fólk að stíga um borð í strætisvagnMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Víkingur

Sebastian Burbano Miranda hefur verið dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás gegn ungum manni við strætóskýli í Reykjavík 1. apríl 2023.

Málið var höfðað á hendur Sebastian og öðrum manni vegna tveggja árása sama kvöld. Samkvæmt ákæru hafði hinn maðurinn fyrst kýlt brotaþola í andlit utandyra við verslun í Reykjavík. Skömmu síðar var ráðist á brotaþola við strætóskýli, þar sem ákæruvaldið taldi að báðir ákærðu hefðu kýlt hann í andlitið. Brotaþoli hlaut nefbeinsbrot og brot á vanga- og kinnkjálkabeinum.

Ákærðu neituðu báðir sök. Hinn maðurinn viðurkenndi þó að hafa slegið brotaþola við verslunina en neitaði að hafa komið að árásinni við strætóskýlið. Sebastian neitaði því að hafa verið á vettvangi við strætóskýlið og kvaðst ekki hafa slegið brotaþola. Samkvæmt manninum hafði brotaþoli kallað hann „niggara“ og „slave“ og „negra“ en brotaþoli hafnaði því.

Við meðferð málsins kom fram að frásagnir brotaþola og vitna hjá lögreglu hefðu að nokkru blandast saman, enda var um tvær árásir að ræða með stuttu millibili. Dómurinn taldi hins vegar að framburðir fyrir dómi hefðu skýrt málið nægilega.

Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að ósannað væri að högg hins mannsins við verslunina hefði valdið beinbrotum brotaþola. Háttsemi hans félli því undir vægara ákvæði almennra hegningarlaga um líkamsárás. Þar sem brotið var orðið fyrnt þegar ákæra var gefin út var hinn maðurinn sýknaður.

Sebastian var hins vegar sakfelldur fyrir að hafa kýlt brotaþola í andlitið við strætóskýlið með þeim afleiðingum að hann nefbrotnaði. Dómurinn taldi sannað, gegn neitun Sebastian, að hann hefði veitt höggið. Framburður brotaþola og vitna þótti styðja þá niðurstöðu, auk læknisgagna og mynda af áverkum.

Við ákvörðun refsingar var litið til þess að árásin beindist að höfði brotaþola, var tilefnislaus og hafði í för með sér nefbeinabrot. Til mildunar var horft til ungs aldurs Sebastian þegar brotið var framið og þess að hann hafði ekki fyrri sakaferil þegar málið kom upp.

Sebastian var dæmdur í 30 daga fangelsi, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var honum gert að greiða brotaþola 500 þúsund krónur í miskabætur, auk vaxta, dráttarvaxta og 700 þúsund króna í málskostnað.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Baráttukonan Jennifer sem neitaði að þegja fannst látin
Heimur

Baráttukonan Jennifer sem neitaði að þegja fannst látin

Stóð upp gegn fjölmiðlarisanum
„Við munum höfða mál gegn ríkinu“
Innlent

„Við munum höfða mál gegn ríkinu“

Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskattinn
Pólitík

Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskattinn

Kona fann ókunnugt lík í kistu móður sinnar
Heimur

Kona fann ókunnugt lík í kistu móður sinnar

Þriggja ára drengur drukknaði á meðan móðir hans var ölvuð
Heimur

Þriggja ára drengur drukknaði á meðan móðir hans var ölvuð

Rétt tímasetning blóðþrýstingslyfja getur bjargað lífi
Innlent

Rétt tímasetning blóðþrýstingslyfja getur bjargað lífi

Ellefu særðir eftir skotárás í skóla
Heimur

Ellefu særðir eftir skotárás í skóla

Skelfilegar aukaverkanir af nýju offitulyfi
Innlent

Skelfilegar aukaverkanir af nýju offitulyfi

Unglingur grunaður um að skipuleggja árás á skóla og mosku
Heimur

Unglingur grunaður um að skipuleggja árás á skóla og mosku

Stökk fyrir borð á skemmtiferðaskipi
Heimur

Stökk fyrir borð á skemmtiferðaskipi

Umferð raskast við Háaleitisbraut á morgun
Innlent

Umferð raskast við Háaleitisbraut á morgun

Sagður hafa nauðgað sambýliskonu sinni meðan hún svaf
Innlent

Sagður hafa nauðgað sambýliskonu sinni meðan hún svaf

Jóhannes leitar nýrra svara eftir eigin rangfærslur
Innlent

Jóhannes leitar nýrra svara eftir eigin rangfærslur

Innlent

„Við munum höfða mál gegn ríkinu“
Innlent

„Við munum höfða mál gegn ríkinu“

Kristján Loftsson vill veiða hvali sama hvað
Jóhannes leitar nýrra svara eftir eigin rangfærslur
Innlent

Jóhannes leitar nýrra svara eftir eigin rangfærslur

Rétt tímasetning blóðþrýstingslyfja getur bjargað lífi
Innlent

Rétt tímasetning blóðþrýstingslyfja getur bjargað lífi

Skelfilegar aukaverkanir af nýju offitulyfi
Innlent

Skelfilegar aukaverkanir af nýju offitulyfi

Umferð raskast við Háaleitisbraut á morgun
Innlent

Umferð raskast við Háaleitisbraut á morgun

Sagður hafa nauðgað sambýliskonu sinni meðan hún svaf
Innlent

Sagður hafa nauðgað sambýliskonu sinni meðan hún svaf

Loka auglýsingu