Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Jökull kom fyrir myndavélum og hlerunarbúnaði heima hjá fyrrum unnustu

Dómurinn lagði áherslu á að brotin hefðu verið bæði alvar­leg og langvar­andi

Héraðsdómur Reykjavíkur sá um málið
Hér­aðs­dómur Reykja­víkur sá um málið Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Víkingur

Jökull Ísleifs­son hefur verið dæmdur í átta mán­aða fang­elsi fyrir umfangs­mikið umsát­ursein­elti, ítrekuð brot gegn nálg­un­ar­banni, brot gegn frið­helgi einka­lífs og akstur undir áhrifum fíkni­efna.

Samkvæmt dómnum beindust brotin að fyrr­ver­andi sam­býl­is­konu hans á tíma­bil­inu frá sept­em­ber 2023 til sept­em­ber 2025. Dómurinn lýsir því hvernig hann hafði ítrekað sam­band við kon­una með sím­tölum, smá­skila­boðum og tölvu­póstum þrátt fyrir að hún hefði skýrt lýst því yfir að sam­skiptin væru óvel­komin og þrátt fyrir að ítrekuð nálg­un­ar­bönn hefðu verið í gildi.

Í dómnum kemur fram að hann hafi meðal ann­ars fylgst með ferðum hennar og sent skila­boð sem bentu til þess að hann vissi hvar hún væri stödd, auk þess sem hann hafði sam­band við fjöl­skyldu­með­limi hennar til að koma skila­boðum til hennar. Þá var hann sak­felldur fyrir að hafa brotið gegn nálg­un­ar­banni með því að senda henni tölvu­pósta, hafa sam­band við son hennar og for­eldra og aka í námunda við heim­ili hennar.

Jafn­framt var hann sak­felldur fyrir brot gegn frið­helgi einka­lífs eftir að hafa komið fyrir tveimur mynda­vélum á heim­ili kon­unnar án hennar vit­undar. Mynda­vél­arnar gerðu honum kleift að fylgj­ast með henni og hlusta á einka­sam­töl hennar. Hann var einnig sak­felldur fyrir akstur undir áhrifum amfetamíns í sept­em­ber 2023.

Við með­ferð máls­ins hafn­aði ákærði flestum sak­ar­giftum, að und­an­skildum ákæru­lið um akstur undir áhrifum fíkni­efna. Hann hélt því meðal ann­ars fram að sam­skipti hans við kon­una hefðu fyrst og fremst snú­ist um fjár­hags­legt upp­gjör og end­ur­heimt eigna eftir sam­búð­ar­slit. Brota­þoli lýsti hins vegar því fyrir dómi að hátt­semin hefði valdið sér við­var­andi ótta og kvíða, haft alvar­leg áhrif á heilsu hennar, atvinnu­þátt­töku og fjöl­skyldu­líf og að hún hefði um tíma þurft að yfir­gefa heim­ili sitt vegna óör­yggis.

Við ákvörðun refs­ingar lagði dóm­ur­inn áherslu á að brotin hefðu verið bæði alvar­leg og langvar­andi. Þau hefðu beinst að frið­helgi einka­lífs og and­legri heilsu brota­þola, verið framin af ásetn­ingi og að hluta til í hefnd­ar­skyni með það að mark­miði að valda henni ótta og van­líðan. Dómurinn taldi því ekki unnt að skil­orðs­binda refs­ingu að öllu leyti. Sex mán­uðum af átta mán­aða fang­els­is­refs­ingu var þó frestað skil­orðs­bundið til tveggja ára, en tveggja mán­aða óskil­orðs­bundið fang­elsi stendur eftir. Þá var Jökull sviptur öku­rétti í þrjú ár.

Hann var jafn­framt dæmdur til að greiða brota­þol­anum tvær millj­ónir króna í miska­bætur auk vaxta. Auk þess ber honum að greiða málsvarn­ar­laun verj­anda síns, þóknun rétt­ar­gæslu­manns brota­þola og annan sak­ar­kostnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Innlent

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Talið er að hann sé á höfuðborgarsvæðinu eða mögulega á Akranesi.
Innlent

Stakk starfs­mann í háls­inn með blý­anti

Innlent

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Innlent

Tveir menn ákærðir fyrir kyn­ferð­is­leg atlot í barna­laug

Innlent

Vilja bæta við hæð í Sóltúni og fjölga bíla­stæðum við Kletta­garða