1
Heimur

Hópi ölvaðra kvenna vísað úr flugi til Tenerife

2
Innlent

Skelfilegar aukaverkanir af nýju offitulyfi

3
Fólk

Stjórnarformaður Icelandair selur eitt dýrasta hús landsins

4
Innlent

Með milljónir í töskunum á leið úr landi

5
Innlent

Máttu ekki að vera á Íslandi en voru báðir handteknir hérlendis

6
Innlent

Aron Atli dæmdur fyrir hrottalega árás á sambýliskonu sína

7
Fólk

Gagnrýnir fyrirkomulag á tónleikum Of Monsters and Men

8
Fólk

Bára Beauty á von á tvíburum

9
Innlent

Óhugnanlegar tilkynningar úr Árbæ teknar mjög alvarlega

10
Fólk

Fyrrum þingmaður segir sjálfsfróun ekki þurfa að ógna samböndum

Til baka

Stal rúmum tvö þúsundum evrum úr kjallara og sparkaði í lögregluþjón

Fjórum dögum síðar var hún sökuð um að hafa stolið tveimur bankakortum, hvítu veski, ökuskírteini, Costco-korti og 10.000 krónum

Héraðsdómur Reykjavíkur
Héraðsdómur Reykjavíkur sá um að dæma í málinu
Mynd: Víkingur

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Askalín Birgisdóttur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjölda brota sem framin voru á árunum 2024 til 2026, þar á meðal ítrekuð þjófnaðarbrot, fíkniefnalagabrot, húsbrot og brot gegn valdstjórninni.

Málið var rekið á grundvelli tveggja ákæra sem síðar voru sameinaðar. Annars vegar var Askalín ákærð fyrir að hafa sparkað í vinstri fót lögreglumanns við skyldustörf í Reykjavík 30. maí 2025. Hins vegar laut hin ákæran að röð annarra brota sem framin voru á tímabilinu frá október 2024 til apríl 2026.

Samkvæmt ákæru braust hún 24. október 2024 inn í kjallaraíbúð í Reykjavík með því að brjóta rúðu og hafði á brott með sér 2.205 evrur. Sama dag fann lögregla í fórum hennar samtals 29 OxyContin-töflur og 43 Rivotril-töflur sem hún hafði ekki heimild til að hafa undir höndum.

Fjórum dögum síðar, 28. október 2024, var hún ákærð fyrir að hafa ruðst í heimildarleysi inn í húsnæði í Reykjavík.

Í apríl 2025 var hún sökuð um að hafa stolið unaðsvörum úr verslun Elko í Skeifunni að verðmæti 112.149 króna.

Á fyrstu dögum ársins 2026 héldu brotin áfram samkvæmt ákæru. Þann 2. janúar stal hún snyrtivörum úr Krónunni í Skógarlind að verðmæti 2.216 króna. Fjórum dögum síðar var hún sökuð um að hafa stolið tveimur bankakortum, hvítu veski, ökuskírteini, Costco-korti og 10.000 krónum úr húsnæði Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu í Hlíðasmára í Kópavogi. Þá var hún einnig ákærð fyrir að hafa stolið matvörum úr Krónunni í Jafnaseli í Reykjavík í apríl 2026.

Askalín játaði skýlaust öll brotin og var það meðal þess sem dómurinn taldi henni til málsbóta. Dómurinn tók einnig mið af því að nokkur tími var liðinn frá því sum brotanna voru framin og að dráttur á rannsókn og útgáfu ákæru yrði henni ekki kennt um.

Við ákvörðun refsingar leit dómurinn jafnframt til sakaferils hennar. Hún hafði áður gengist undir lögreglustjórasátt vegna fíkniefnabrots árið 2017 og hlotið tvo skilorðsbundna fangelsisdóma, annars vegar árið 2019 vegna hlutdeildar í húsbroti og gripdeild og hins vegar árið 2022 fyrir þjófnað, fíkniefnabrot og umferðarlagabrot. Samkvæmt sakavottorði hafði hún staðist skilorð í báðum tilvikum.

Refsingin var ákveðin fjögurra mánaða fangelsi en fullnustu hennar var frestað til tveggja ára gegn því skilyrði að hún haldi almennt skilorð á því tímabili.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Baráttukonan Jennifer sem neitaði að þegja fannst látin
Heimur

Baráttukonan Jennifer sem neitaði að þegja fannst látin

Stóð upp gegn fjölmiðlarisanum
„Við munum höfða mál gegn ríkinu“
Innlent

„Við munum höfða mál gegn ríkinu“

Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskattinn
Pólitík

Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskattinn

Kona fann ókunnugt lík í kistu móður sinnar
Heimur

Kona fann ókunnugt lík í kistu móður sinnar

Þriggja ára drengur drukknaði á meðan móðir hans var ölvuð
Heimur

Þriggja ára drengur drukknaði á meðan móðir hans var ölvuð

Rétt tímasetning blóðþrýstingslyfja getur bjargað lífi
Innlent

Rétt tímasetning blóðþrýstingslyfja getur bjargað lífi

Ellefu særðir eftir skotárás í skóla
Heimur

Ellefu særðir eftir skotárás í skóla

Skelfilegar aukaverkanir af nýju offitulyfi
Innlent

Skelfilegar aukaverkanir af nýju offitulyfi

Unglingur grunaður um að skipuleggja árás á skóla og mosku
Heimur

Unglingur grunaður um að skipuleggja árás á skóla og mosku

Stökk fyrir borð á skemmtiferðaskipi
Heimur

Stökk fyrir borð á skemmtiferðaskipi

Umferð raskast við Háaleitisbraut á morgun
Innlent

Umferð raskast við Háaleitisbraut á morgun

Sagður hafa nauðgað sambýliskonu sinni meðan hún svaf
Innlent

Sagður hafa nauðgað sambýliskonu sinni meðan hún svaf

Jóhannes leitar nýrra svara eftir eigin rangfærslur
Innlent

Jóhannes leitar nýrra svara eftir eigin rangfærslur

Innlent

„Við munum höfða mál gegn ríkinu“
Innlent

„Við munum höfða mál gegn ríkinu“

Kristján Loftsson vill veiða hvali sama hvað
Jóhannes leitar nýrra svara eftir eigin rangfærslur
Innlent

Jóhannes leitar nýrra svara eftir eigin rangfærslur

Rétt tímasetning blóðþrýstingslyfja getur bjargað lífi
Innlent

Rétt tímasetning blóðþrýstingslyfja getur bjargað lífi

Skelfilegar aukaverkanir af nýju offitulyfi
Innlent

Skelfilegar aukaverkanir af nýju offitulyfi

Umferð raskast við Háaleitisbraut á morgun
Innlent

Umferð raskast við Háaleitisbraut á morgun

Sagður hafa nauðgað sambýliskonu sinni meðan hún svaf
Innlent

Sagður hafa nauðgað sambýliskonu sinni meðan hún svaf

Loka auglýsingu