1
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

2
Innlent

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu

3
Innlent

Toyota á Íslandi innkallar vinsælan rafbíl vegna slysahættu

4
Peningar

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir

5
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

6
Fólk

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum

7
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

8
Heimur

Heimili ellilífeyrisþega rifið meðan hann verslaði

9
Heimur

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð

10
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

Til baka

„Til í næstum hvaða ævintýri sem er“

Alltaf líf og fjör í kringum Snærósu

Snærós Sindradóttir
Snærós Sindradóttir varð stjúpmóðir um tvítugt og móðir 22 ára.
Mynd: Í einkaeigu

Blaðamaður heyrði stuttlega hljóðið í Snærósu Sindradóttur þar sem hún sat á huggulegu kaffihúsi í pínulitlu þorpi á Spáni með lítið sem ekkert 5G-netsamband. Þó að Snærós sé víðförul á hún sterkar rætur að rekja heim til Íslands. Hún segist koma úr Vesturbænum með viðkomu á Vestfjörðum. Þá er hún tengdadóttir Skagafjarðar með ættir að rekja úr Þingeyjasýslu, Hrunamannahreppi, Snæfellsnesi og að sjálfsögðu úr miðbæ Reykjavíkur eins og hún orðar það.

Snærós bar mikla ábyrgð ung. Eins og hún var dóttir tveggja unglinga sem hún segir að hafi mótað sig heilmikið varð hún sjálf stjúpmamma um tvítugt og móðir 22 ára. Í dag er hún galleristi í SIND gallery í krafti þess að hafa menntað sig í listfræði og stjórnun. Ásamt þessu sinnir hún starfi framkvæmdastjóra Evrópuhreyfingarinnar og er sjálfstæður ráðgjafi um almannatengsl og fjölmiðlaframkomu.

Snærós hefur nóg á sinni könnu eins og sjá má, en einhvern veginn finnur hún sér alltaf tíma til að bæta við sig fleiri verkefnum. Hún hefur starfað sem háskólakennari og kennt fjölmiðlun á Íslandi og í Ungverjalandi. Einnig vann hún sjálf 12 ár í fjölmiðlabransanum, í þeim ástríðubransa, eins og hún kallar hann.

Það er alltaf líf og fjör í kringum Snærósu og hún elskar tónlist þar sem hún getur dansað og sungið með. Þá segist hún vera mikill kokkur og elskar eldamennsku sem dregst á langinn með víndrykkju og trúnó. Umfram allt er hún kona sem elskar vini sína og fjölskyldu og það sem kemur alls ekki á óvart, þá elskar hún að hafa mikið að gera. Því þá uppsker maður oftast ríkulega, segir hún kampakát í sólinni á Spáni.

Er önnur manneskja eftir að hún kom heim

Snærós Sindradóttir
Mynd: Í einkaeigu

Hvernig var að búa í Ungverjalandi? „Mín bestu ár. Búdapest er algjör perla í Evrópu, stútfull af menningu og rík af ánægjulegri afþreyingu, veitingastöðum og almenningsgörðum. Umfram allt eignuðumst við vini þarna fyrir lífstíð og lærðum alls konar samskipti en það sem fyrirfinnst í íslenskum lokuðum vinahópum. Ég er önnur manneskja eftir að ég kom heim, miklu opnari og hlýrri við fólk held ég.“

Hvernig voru flutningarnir heim og er eitthvað þaðan sem þú saknar? „Ég sakna Búdapest daglega. Mest sakna ég útsýnisins úr íbúðinni minni, sem ég gat dvalið endalaust við, og þess að taka virkan þátt í hlýja hverfissamfélaginu okkar.

Ég sakna þess að hjóla í skólann við bakka Dónár og þess að setjast á uppáhaldsveitingastaðina okkar eftir langa daga í „thrift búðum“ að grafa eftir gersemum. Ég sakna þess líka að slá um mig á þeirri litlu ungversku sem ég lærði og að fá fjölskylduna í langar heimsóknir.“

Gætum við Íslendingar lært eitthvað af Ungverjum?

„Já, samkennd. Ég varð vör við miklu þéttara og samofnara samfélag úti en ég hef upplifað á Íslandi. Stundum jaðrar hún við afskiptasemi en er alltaf gerð af hlýhug og velvilja. Ungverjar snyrta til í kringum sig vitandi að ef aðrir gera það sama og þar með glansar nærumhverfið. Þeir buðu okkur alveg ofboðslega velkomin og tóku svo vel utan um okkur að við roðnuðum niður í tær.“

Hugmyndin vaknaði í Búdapest

Snærós Sindradóttir
Mynd: Í einkaeigu

Þú varst að opna listagallerí, gætirðu sagt mér aðeins meira frá því og hvernig sú hugmynd kom upp?

„Hugmyndin að SIND gallery vaknaði í tíma í Búdapest og kom til mín nánast fullmótuð. Ég varði 10 mánuðum í að undirbúa opnunina, setja upp dagskrá fyrsta ársins, safna peningum, finna hentugt húsnæði og panta ljós og annan búnað í rýmið sem ég hannaði í nýbyggingu við Hringbraut í Vesturbæ. Það hefur gengið vonum framar að reka SIND og eftir tæpt ár í rekstri held ég að hægt sé að fullyrða að galleríið mitt sé komið á kortið. Nýlega lauk sjöundu sýningu þess og nú tekur við smá sumarlokun þar til ég opna aftur 11. september. Ég hlakka mjög til næsta sýningarárs og þess að sjá hvernig markaðurinn tekur í verk þeirra listamanna sem þá opna sýningar hjá mér.

Til í næstum hvaða ævintýri sem er

Snærós Sindradóttir
Mynd: Í einkaeigu

Þú varst ráðin framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar á Íslandi. Gætirðu sagt mér í hverju starfið felst?

„Í hverju felst það ekki? Ég hef sinnt hálfu starfi framkvæmdastjóra samhliða öllu öðru í vetur sem hefur bæði verið lærdómsríkt og gefandi. Eftir 12 ár í fjölmiðlum var ég ekki alveg tilbúin að gefa það upp á bátinn að hafa fingraför mín í dægurmálunum og pólitíkinni. Þegar ég þáði boð um þetta góða starf átti ég þó ekki von á því að augnabliki síðar yrði sett á þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður Íslands að ESB. Það hentar mér ákaflega vel að hvetja fólk til þess að segja Já í ágúst enda að upplagi mjög jákvæð kona.“

Hvernig finnst þér umræðan um Evrópumálin hafa verið upp á síðkastið og hvað finnst þér að betur mætti fara?

„Hún hefur auðvitað verið alls konar. Ég hef vandað mig við að tala vel um alla og segja ekkert nema sannleikann. Hið sama á ekki við um alla og því miður hefur óþarflega mikill tími farið í að leiðrétta rangfærslur, lygar og útúrsnúninga þeirra sem vilja ekki að þjóðin semji við ESB og taki svo afstöðu til þess samnings til hagsbóta fyrir almenning. Það mætti betur fara.“

Næst á döfinni hjá Snærósu er þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst. „Ég vakna um miðjar nætur til að bæta atriðum á verkefnalistann og fá nýjar hugmyndir inn í kosningabaráttuna fyrir Já-inu. Raunar veit ég ekkert hvað tekur við 1. september en sit við símann og er til í næstum hvaða ævintýri sem er.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Rússar sprengdu tvo strætisvagna fulla af fólki
Heimur

Rússar sprengdu tvo strætisvagna fulla af fólki

Lík lágu á víð og dreif um götuna eftir árásina
Úrelt orðalag lifir góðu lífi í reglugerð frá 1999
Innlent

Úrelt orðalag lifir góðu lífi í reglugerð frá 1999

Drap föður sinn en verður ekki svipt arfinum
Innlent

Drap föður sinn en verður ekki svipt arfinum

Ferjusamgöngur til Eyja fá ekki sömu stöðu og þjóðvegir
Innlent

Ferjusamgöngur til Eyja fá ekki sömu stöðu og þjóðvegir

Kylfa, ketamín og kannabis fundust í bíl Breiðhyltings
Innlent

Kylfa, ketamín og kannabis fundust í bíl Breiðhyltings

Ríkisstjórnin sökuð um að svíkja skriflegt samkomulag
Pólitík

Ríkisstjórnin sökuð um að svíkja skriflegt samkomulag

Hrottar herjuðu á hurð Hilmars
Innlent

Hrottar herjuðu á hurð Hilmars

Heimili ellilífeyrisþega rifið meðan hann verslaði
Heimur

Heimili ellilífeyrisþega rifið meðan hann verslaði

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð
Heimur

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife
Heimur

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife

Lögreglan leitar vitna eftir skemmdarverk á þremur bílum
Innlent

Lögreglan leitar vitna eftir skemmdarverk á þremur bílum

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“
Heimur

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu
Innlent

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu

Fólk

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum
Myndir
Fólk

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum

„Einn af kostunum við að eldast er að hafa gott og umhyggjusamt fólk í kringum sig“
Stefán má loksins gefa blóð aftur
Fólk

Stefán má loksins gefa blóð aftur

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli
Myndir
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni
Myndir
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins
Myndir
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

Loka auglýsingu