
Skólum í Bristol var lokað eftir að skotárás í dag, þar sem einn maður var fluttur á sjúkrahús með skotsár.
Þyrla sást sveima yfir vettvangi í New Queen Street í austurhluta Bristol, sem liggur milli Speedwell Road og Two Mile Hill, en mikill lögregluviðbúnaður var á svæðinu, samkvæmt Mirror.
Rannsókn er nú hafin til að hafa upp á árásarmanninum, sem flúði í átt að Soundwell á svörtu og gráu rafhjóli. Honum er lýst sem hvítum manni, unglingur eða á tvítugsaldri, grannvaxinn og um 180 cm á hæð. Hann var í grárri hettupeysu, svörtum buxum og með lambhúshettur.
James Clements, yfirlögregluþjónn, sagði:
„Ég veit að þetta atvik veldur miklum áhyggjum, en við höfum sent á vettvang umfangsmikinn liðsstyrk, þar á meðal þyrlu frá National Police Air Service og sérþjálfaða vopnaða lögreglumenn, á meðan við leitum að þeim sem ber ábyrgð.
„Sá sem varð fyrir árásinni hefur verið fluttur á sjúkrahús þar sem hann fær meðferð vegna áverka sem gæti haft varanleg áhrif á líf hans, en er ekki talinn lífshættulegur. Fjölskyldu hans hefur verið gert viðvart og hún verður upplýst eftir því sem rannsókninni vindur fram.“
„Líklegt er að lögregluviðvera verði áfram mikil á svæðinu næstu daga á meðan rannsókn stendur yfir. Lögreglumenn í hverfinu munu einnig auka eftirlit og þeir sem hafa áhyggjur geta leitað til þeirra.“
Uppfærsla
Samkvæmt tilkynningu lögreglu hefur hún Lögreglan girt af Speedwell Road við kránna Wackum Inn eftir að staðfest var að annar maður hefði verið skotinn og leit stendur nú yfir af skotmanninum.

Komment