Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast í gærkvöldi og í nótt. Meðal annars var ökumaður handtekinn eftir að mikið magn fíkniefna og fjármunir fundust í bifreið hans.
Lögreglumenn höfðu stöðvað ökumanninn við hefðbundið umferðareftirlit þegar grunsemdir vöknuðu um að hann kynni að stunda sölu og dreifingu fíkniefna. Við leit í bifreiðinni fannst mikið magn vímuefna auk fjármuna.
Ökumaðurinn var handtekinn og vistaður í fangaklefa vegna rannsóknar málsins.
Þá var töluvert um afskipti lögreglu af ökumönnum vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna. Einn ökumaður reyndist bæði ölvaður og undir áhrifum vímuefna. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð en látinn laus að lokinni hefðbundinni málsmeðferð.
Annar ökumaður reyndist sömuleiðis bæði ölvaður og undir áhrifum vímuefna auk þess sem hann hafði verið sviptur ökuréttindum. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð en látinn laus að lokinni málsmeðferð.
Þriðji ökumaðurinn var stöðvaður við almennt eftirlit og reyndist undir áhrifum vímuefna. Hann var einnig handtekinn og færður á lögreglustöð.
Lögregla hafði jafnframt afskipti af tveimur ökumönnum sem voru ekki með gild ökuréttindi. Annar þeirra hafði aldrei öðlast ökuréttindi. Málin voru afgreidd með skýrslutöku á vettvangi.
Að lokum bárust tilkynningar um tvo einstaklinga sem sváfu ölvunarsvefni á almannafæri í miðborg Reykjavíkur. Lögregla kom þeim báðum í húsaskjól.

