Albanskur karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir fíkniefnalagabrot og peningaþvætti vegna þriggja aðskilinna atvika í Reykjavík í maí á síðasta ári. Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur 4. nóvember.
Fyrsta atvikið átti sér stað 7. maí 2025 á bifreiðastæði við bensínstöð N1 í Borgartúni. Samkvæmt ákæru hafði maðurinn þar í vörslum sínum 3,08 grömm af kókaíni, 49,52 grömm af maríhúana og 1,80 grömm af MDMA-kristöllum í sölu- og dreifingarskyni. Fíkniefnin fundust við öryggisleit á manninum og leit í bifreið.
Þá lagði lögregla hald á 121 þúsund krónur sem ákæruvaldið telur vera ávinning af sölu og dreifingu fíkniefna.
Daginn eftir, 8. maí, var maðurinn stöðvaður á Vesturlandsvegi til móts við bensínstöð Orkunnar. Við leit í bifreið fundust 28,83 grömm af maríhúana sem samkvæmt ákæru voru ætluð til sölu og dreifingar. Þá fundust 20 þúsund krónur sem taldar eru hafa verið ágóði af fíkniefnasölu.
Þriðja atvikið átti sér stað 20. maí í Bólstaðarhlíð. Þar fundust 22,09 grömm af maríhúana í bifreið og 50 þúsund krónur við öryggisleit á manninum.
Ákæruvaldið krefst þess að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu sakarkostnaðar. Jafnframt er krafist upptöku fíkniefna, 191 þúsund króna og iPhone-síma sem ákæruvaldið segir hafa verið notaðan við sölu fíkniefna.
