1
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

2
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

3
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

4
Innlent

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest

5
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

6
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

7
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

8
Heimur

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

9
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

10
Fólk

Sjö merki um að þú sért með réttu manneskjunni

Til baka

Lögreglumaðurinn umdeildi í O.J. Simpson-málinu er látinn

Sá eini sem hlaut dóm í málinu

Fuhrman
Mark FuhrmanFuhrman er látinn, 74 ára að aldri
Mynd: KIM KULISH / POOL / AFP

Mark Fuhrman, fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður hjá lögreglunni í Los Angeles, sem varð heimsþekktur í réttarhöldunum yfir O. J. Simpson, er látinn, 74 ára að aldri.

Samkvæmt TMZ lést Fuhrman af ágengri tegund hálskrabbameins sem greindist hjá honum á síðasta ári. Hann hafði legið á sjúkrahúsi í um viku áður en hann lést og hafði farið í krabbameinsmeðferð, en ákvað síðar að hætta henni. Ekki verður haldin útför.

Fuhrman bjó síðustu ár í Idaho og staðfesti dánardómstjóri Kootenai-sýslu að hann hefði látist 12. maí síðastliðinn.

Hann lét af störfum hjá lögreglunni í ágúst árið 1995 og hóf í kjölfarið feril sem höfundur sakamálabóka. Hann starfaði einnig sem sjónvarps- og útvarpsmaður og kom meðal annars fram sem sérfræðingur hjá Fox News.

Fuhrman varð umdeild persóna í réttarhöldunum yfir Simpson þar sem hann fann blóðugan hanska sem talinn var lykilsönnunargagn í morðunum á Nicole Brown Simpson og Ron Goldman.

Varnarteymi Simpsons birti hins vegar upptökur þar sem Fuhrman notaði n-orðið, þrátt fyrir að hann hefði neitað því undir eiði að hafa notað slíkt orðalag.

Upptökurnar sköðuðu trúverðugleika hans verulega og héldu lögmenn Simpsons því fram að mögulega hefði hann komið sönnunargögnum fyrir á vettvangi.

Árið 1996 játaði Fuhrman sök í meinsæri fyrir að hafa logið um orðalag sitt við vitnisburðinn í málinu. Hann varð þar með eini einstaklingurinn sem sakfelldur var fyrir refsivert brot tengt morðunum á Nicole Brown Simpson og Ron Goldman.

Í maí 2024 var honum einnig bannað að snúa aftur til lögreglustarfa í Kaliforníu vegna sakfellingarinnar í tengslum við Simpson-málið.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Brotin klósettseta varð að kærumáli
Innlent

Brotin klósettseta varð að kærumáli

Konan hafði gert tímabundinn leigusamning
Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda
Innlent

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda

María óttast um öryggi sex ára dóttur sinnar á Kársnesi
Innlent

María óttast um öryggi sex ára dóttur sinnar á Kársnesi

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö
Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö

Tók starfsmenn upp án vitneskju þeirra eftir símahremmingar
Innlent

Tók starfsmenn upp án vitneskju þeirra eftir símahremmingar

Tók lögregluna upp í laumi og kvartaði svo yfir framkomunni
Innlent

Tók lögregluna upp í laumi og kvartaði svo yfir framkomunni

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði
Heimur

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði

Stefán má loksins gefa blóð aftur
Fólk

Stefán má loksins gefa blóð aftur

Mannfall og miklar skemmdir í drónaárás á Moskvu-hérað
Heimur

Mannfall og miklar skemmdir í drónaárás á Moskvu-hérað

Erlend kona fékk skilorð eftir alvarlegt slys undir Eyjafjöllum
Innlent

Erlend kona fékk skilorð eftir alvarlegt slys undir Eyjafjöllum

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum
Myndir
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

„Leyfum þeim að þurrka út Los Angeles, leyfum þeim að þurrka út San Diego. Það yrði mjög lítið gjald.“
Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö
Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði
Heimur

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði

Mannfall og miklar skemmdir í drónaárás á Moskvu-hérað
Heimur

Mannfall og miklar skemmdir í drónaárás á Moskvu-hérað

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu
Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu

Loka auglýsingu