
Magnús Erlendsson, fyrrum forseti bæjarstjórnar Seltjarnarness, er látinn, 94 ára að aldri, eftir stutt veikindi. Morgunblaðið greindi frá andláti hans.
Hann var fæddur í Reykjavík 1931, sonur Erlends Þorbergssonar og Sólveigar Pétursdóttur. Hann ólst upp í Reykjavíkur og stundaði íþróttir með KR á unglingsárum.
Eftir nám hóf Magnús störf hjá Heildverslun Björgvins Schram árið 1953 og starfaði þar í áratugi, fyrst sem fulltrúi og síðar framkvæmdastjóri. Árið 1988 hóf hann eigin rekstur og tók þátt í heildsölunni Bergís ásamt eiginkonu sinni. Þau ráku fyrirtækið til 1999 en þá tók dóttir þeirra við rekstrinum.
Magnús var virkur í stjórnmálum og starfaði lengi innan Sjálfstæðisflokksins. Hann var varamaður í hreppsnefnd Seltjarnarness á árunum 1970–1974 og bæjarfulltrúi frá 1974 til 1986, þar af lengst af forseti bæjarstjórnar. Þá sat hann einnig í útvarpsráði á árunum 1983–1991.
Magnús lagði einnig stund á ritstörf og samdi gamanefni fyrir þekkta listamenn, auk þess að koma að fyrsta áramótaskaupi sjónvarpsins árið 1966. Hann hafði mikinn áhuga á golfi, sundi og alþjóðamálum.
Eiginkona hans var Ingibjörg Bergsveinsdóttir, sem lést árið 2021. Magnús eignaðist þrjú börn með henni.
Komment