1
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

2
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

3
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

4
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

5
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

6
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

7
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

8
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

9
Fólk

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga

10
Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi

Til baka

Mannskæð skothríð á matarhátíð

Lögreglan leitar að seinni byssumanninum

Screenshot 2026-07-27 143827
Tveir menn hófu skotbardaga á miðri matarhátíð í SeattleEinn í haldi en lýst eftir öðrum byssumanninum
Mynd: Daily Mail

Þrír einstaklingar eru látnir og fjórir særðir, þar á meðal tveggja ára barn, eftir að tveir byssumenn hófu skothríð á milli sín á miðri matarhátíðinni Bite of Seattle í gærkvöldi. Atburðurinn átti sér stað við Seattle Center í skugga Space Needle-turnsins um klukkan 18:00 að staðartíma.

Skotbardagi á almannafæri

Á fjölmiðlafundi seint í gærkvöldi staðfesti Tyrone Davis, aðstoðarlögreglustjóri í Seattle, að atburðurinn hafi ekki verið skyndileg árás á hópinn, heldur uppgjör á milli tveggja einstaklinga. „Við teljum að þarna hafi tveir menn verið að skjóta hvor á annan,“ sagði Davis.

Lögreglustjórinn bætti því við að tvær skammbyssur hefðu fundist á vettvangi. Hann fullvissaði almenning um að rannsóknin miðaði vel og að svo stöddu væri ekki talið að frekari hætta steðjaði að íbúum eða gestum borgarinnar. Davis benti jafnframt á að Bite of Seattle hafi jafnan verið friðsamlegur og fjölskylduvænn viðburður og engin alvarleg atvik hafi komið upp þar í mörg ár.

Sjónarvottar lýsa algjöru öngþveiti

Hátíðin dregur að sér um 350.000 gesti árlega og var svæðið þéttskipað þegar skothríðin hófst. Sjónarvottar lýsa því hvernig hátíðarstemning breyttist á augabragði í lífshættulegan stað.

Hinn 25 ára gamli Estan Wakonabo, sem stóð í röð ásamt kærustu sinni, lýsti því að fólk hefði skyndilega byrjað að hrinda og hlaupa. „Fólk fann sér felustaði, hrinti hverju öðru og féll til jarðar. Barnavagnar ultu um koll“ sagði Wakonabo í samtali við The Seattle Times.

Myndbönd á samfélagsmiðlum sýna fjölda manns klifra yfir girðingar og flýja í inn í anddyri Space Needle og nærliggjandi söfn. Hin 49 ára Rachel Costa, ferðamaður frá Brasilíu, sagðist aldrei hafa upplifað aðra eins hræðslu. Hún kom sér inni í sýningarskála ásamt um tuttugu öðrum gestum þar til lögreglan lýsti svæðið öruggt.

Paul Skinner, sem vann á einum af fjölmörgu matarbásunum, sagði að hljóðið hefði fyrst minnt á flugelda. En þegar fólksfjöldinn tók að hreyfa sig eins og sturluð hjörð hafi fólk skollið niður á gólf matarbásanna til að leita skjóls.

Umsátur og leitin að seinni manninum

Annar grunaði byssumaðurinn var handtekinn á vettvangi fljótlega eftir að lögreglan mætti, en nafn hans hefur ekki enn verið gefið út. Borgaryfirvöld leiðréttu fyrri tilkynningar um að tveir væru í haldi og staðfestu að víðtæk leit standi yfir að seinni manninum.

Lögreglan lýsir manninum sem „ungum einstaklingi“. Sérsveit lögreglunnar í Washington-ríki (SWAT) og alríkislögreglan (FBI) aðstoða nú við leitina. Lögreglumenn hafa farið yfir öll myndskeið úr eftirlitsmyndavélum á svæðinu, þótt SPD hafi tekið fram að engar öryggismyndavélar hafi vísað beint að sjálfum staðnum þar sem skotin riðu af. Leitarsvæðið hefur verið stækkað út fyrir miðborg Seattle og er almenningur beðinn um að sýna aðgát og tilkynna alla grunsamlega mannaferðir.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Einelti hefur aukist meðal yngri barna í grunnskólum
Innlent

Einelti hefur aukist meðal yngri barna í grunnskólum

Þá eru merki um aukinn einmanaleika meðal nemenda í 8. til 10. bekk.
Gagnrýnir viðbrögð karlmanna við hópnauðgunarmálinu í Cornell-háskólanum
Innlent

Gagnrýnir viðbrögð karlmanna við hópnauðgunarmálinu í Cornell-háskólanum

Lögreglan rannsakar líkfund á Tenerife
Heimur

Lögreglan rannsakar líkfund á Tenerife

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest
Innlent

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest

Íslenskur maður ákærður fyrir fíkniefna- og vopnalagabrot
Innlent

Íslenskur maður ákærður fyrir fíkniefna- og vopnalagabrot

Ákærður fyrir að stela strætisvagni
Innlent

Ákærður fyrir að stela strætisvagni

Epstein-uppljóstrari sagður hafa framið sjálfsvíg
Heimur

Epstein-uppljóstrari sagður hafa framið sjálfsvíg

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll
Myndir
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

Forvitinn um ólæsta bíla og kom með óvenjulega afsökun
Innlent

Forvitinn um ólæsta bíla og kom með óvenjulega afsökun

Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið
Innlent

Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Heimur

Lögreglan rannsakar líkfund á Tenerife
Heimur

Lögreglan rannsakar líkfund á Tenerife

Karlmaður fannst látinn á strönd í Las Galletas.
Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Epstein-uppljóstrari sagður hafa framið sjálfsvíg
Heimur

Epstein-uppljóstrari sagður hafa framið sjálfsvíg

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Loka auglýsingu