
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur undirritað reglugerð sem felur í sér breytingar á eftirliti með hjólastólalyftum á heimilum fólks.
Nægilegt verður að þjónustuaðilar þjónustu lyfturnar tvisvar á ári að því kemur fram í tilkynningu frá stjórnvöldum.
Samkvæmt fyrri reglum bar eiganda hjólastólalyftu eða rekstraraðila hennar að gera þjónustusamning við viðurkenndan umsjónarmann um eftirlit, viðhald og viðgerðir viðkomandi lyftu og þurfti viðkomandi að þjónusta lyftuna minnst fjórum sinnum á ári.
Eftir breytingarnar verður nægilegt að hjólastólalyftur á heimilum séu þjónustaðar tvisvar á ári. Vinnueftirlit ríkisins mun sem fyrr annast skoðun lyftanna annað hvert ár.
„Fram hafði komið að tíðni eftirlits með hjólastólalyftum gæti valdið miklum kostnaði, ekki síst fyrir þá einstaklinga sem þurfa á slíkum lyftum að halda á heimilum sínum. Þessu höfum við nú brugðist við án þess þó að gefa afslátt af öryggiskröfum, enda talið nægjanlegt að hjólastólalyftur á heimilum fólks séu þjónustaðar á sex mánaða fresti,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.

Komment