Lögregla sinnti fjölbreyttum verkefnum frá því í gærkvöldi og fram á nótt, þar á meðal vegna ógnandi farþega í strætisvagni, eftirfarar, hraðaksturs og innbrots í Kópavogi.
Ökumaður strætisvagns óskaði eftir aðstoð lögreglu vegna manns sem var mjög ölvaður og sýndi ógnandi hegðun um borð. Að sögn lögreglu reyndi maðurinn að kýla einn farþega og hella bjór yfir annan. Hann var handtekinn þegar lögregla kom á vettvang. Við öryggisleit fundust á honum smelluláspokar með efnum sem grunur leikur á að séu fíkniefni. Maðurinn var vistaður í fangaklefa.
Stutt eftirför varð einnig þegar ökumaður sinnti ekki fyrirmælum lögreglu um að stöðva. Hann ók yfir leyfilegum hámarkshraða og gegn nokkrum rauðum umferðarljósum áður en hann stöðvaði loks við lögreglustöðina á Hverfisgötu. Ökumaðurinn var handtekinn og munnvatnssýni hans reyndist jákvætt fyrir fíkniefnum. Hann var vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.
Annar ökumaður var mældur á 157 kílómetra hraða á klukkustund þar sem hámarkshraði er 80. Hann var sviptur ökuréttindum á staðnum og á yfir höfði sér háa sekt.
Þá var erlendur ökumaður stöðvaður sem reyndist sviptur ökuréttindum í heimalandi sínu. Munnvatnssýni hans reyndist jafnframt jákvætt fyrir fíkniefnum. Hann var handtekinn en látinn laus að lokinni blóðsýnatöku. Annar ökumaður, sem einnig var sviptur ökuréttindum, var stöðvaður og reyndist enn vera á nagladekkjum.
Lögreglu barst jafnframt tilkynning um yfirstandandi innbrot í fyrirtæki í Kópavogi. Innbrotsmennirnir voru farnir af vettvangi þegar lögregla kom á staðinn og er málið til rannsóknar.
Einnig var tilkynnt um ökumann á skellinöðru sem ók með hættulegum og glæfralegum hætti. Lögregla hafði uppi á honum og varð vitni að því að hann ók meðal annars yfir á ranga akrein og upp á gangstéttir. Hann á yfir höfði sér sekt vegna aksturslagsins.
Loks óskaði leigusali eftir aðstoð vegna leigutaka sem hann taldi vera til vandræða. Þegar lögregla kom á vettvang reyndist leigutakinn sofandi á heimili sínu. Leigusalinn óskaði eftir að lögregla aðstoðaði manninn við að leita sér læknisaðstoðar vegna áfengisvanda, en lögregla mat það svo að ekki væri um lögreglumál að ræða.

