1
Fólk

Bjó í Afríku og Asíu til að komast í bestu fíkniefnin

2
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

3
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

4
Pólitík

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

5
Fólk

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn

6
Heimur

Handtekinn á flugvellinum á Tenerife eftir átta mánaða leit

7
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

8
Heimur

Robbie Williams útskýrir hvíta efnið í beinni

9
Heimur

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp

10
Pólitík

Boða harðari aðgerðir og þyngri refsingar

Til baka

Róbert og Valgeir dæmdir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás

Fórnarlambið þurfti síðar að gangast undir aðgerð þar sem sett voru skrúfur og plata

Austurstræti
AusturstrætiMyndin tengist fréttinni ekki beint.

Róbert Vattnes Mbah Nto og Valgeir Viðar Jakobsson hafa verið dæmdir í skilorðsbundið fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás sem átti sér stað í miðborg Reykjavíkur aðfaranótt 20. apríl 2024.

Samkvæmt niðurstöðu dómsins hljóp Róbert á eftir manni eftir að átök höfðu brotist út við Austurstræti. Hann hrinti manninum þannig að hann féll fram fyrir sig og lenti illa á höndum sínum. Í kjölfarið veittust Róbert og Valgeir að honum með höggum og spörkum þar sem hann lá á jörðinni. Á öryggismyndavélum sem lagðar voru fram í málinu sást meðal annars hvernig Valgeir sparkaði í höfuð mannsins eftir að hann hafði náð að setjast upp.

Brotaþolinn hlaut alvarlegt mélbrot á vinstri úlnlið sem náði inn í lið og þurfti síðar að gangast undir aðgerð þar sem sett voru skrúfur og plata í höndina. Fyrir dómi kom fram að hann hefði enn ekki náð fullum bata og líklegt væri að hann myndi búa við varanlega skerðingu á hreyfigetu úlnliðsins. Þá hefði hann verið óvinnufær um tíma vegna áverkanna.

Valgeir var einnig sakfelldur fyrir að hafa slegið annan mann í andlitið með krepptum hnefa. Við höggið féll maðurinn til jarðar, missti meðvitund og hlaut heilahristing. Dómurinn taldi sannað að afleiðingar árásarinnar hefðu verið af völdum höggsins sem Valgeir veitti.

Róbert var jafnframt sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot eftir að lögregla fann 2,23 grömm af kókaíni í fórum hans við handtöku. Hann játaði þann ákærulið skýlaust.

Við ákvörðun refsingar leit dómurinn meðal annars til þess að árásin hefði verið framin í félagi og beinst að manni sem lá varnarlaus á jörðinni. Þá var sérstaklega litið til þess að spark í höfuð teljist afar hættuleg aðferð sem geti valdið lífshættulegum áverkum. Til mildunar var tekið tillit til þess að nokkur dráttur hefði orðið á meðferð málsins.

Róbert Vattnes Mbah Nto var dæmdur í níu mánaða fangelsi og Valgeir Viðar Jakobsson í tólf mánaða fangelsi. Fullnustu beggja dóma var þó frestað og falla þeir niður að tveimur árum liðnum haldi mennirnir skilorð. Jafnframt voru þeir dæmdir til að greiða brotaþolanum sameiginlega 600 þúsund krónur í miskabætur auk vaxta.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Rauð viðvörun á Spáni vegna gríðarlegrar hitabylgju
Heimur

Rauð viðvörun á Spáni vegna gríðarlegrar hitabylgju

Varað er við gríðarlegum hita á vinsælum ferðamannastöðum Íslendinga
William Shatner greindist með krabbamein á sama tíma og dóttir hans
Heimur

William Shatner greindist með krabbamein á sama tíma og dóttir hans

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp
Heimur

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp

Landsliðsmaður í knattspyrnu fjölgar sér
Fólk

Landsliðsmaður í knattspyrnu fjölgar sér

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi
Innlent

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi

Sex manna fjölskylda brennd til bana
Myndband
Heimur

Sex manna fjölskylda brennd til bana

Kerfislægur þrýstingur í eitruðum fjölskyldum
Fólk

Kerfislægur þrýstingur í eitruðum fjölskyldum

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands
Innlent

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn
Fólk

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands
Pólitík

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

Innlent

Veðurskipti framundan
Innlent

Veðurskipti framundan

Breytingar taka við á fimmtudag
Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn
Innlent

Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi
Innlent

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands
Innlent

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Draumafríið á Íslandi varð að martröð
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

Loka auglýsingu