1
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

2
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

3
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

4
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

5
Innlent

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest

6
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

7
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

8
Heimur

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

9
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

10
Fólk

Millie Bobby Brown á Íslandi

Til baka

Rússneskur þingmaður segir hernaðarútgjöld kæfa samfélagið

„Skriðdrekar og sprengikúlur hafa ekkert neyslugildi.“

SulejmanovRI
Renat SuleymanovSuleymanov hefur áhyggjur af Rússlandi
Mynd: Wikipedia

Renat Suleymanov, þingmaður rússneska kommúnistaflokksins, segir að Rússland verði að binda enda á stríðið í Úkraínu eins fljótt og auðið er þar sem rússneski efnahagurinn muni ekki þola langvarandi hernað.

Suleymanov lét ummælin falla í viðtali við fjölmiðilinn Kontinent Sibiri í Novosibirsk-héraði. Þar sagði hann að um 40 prósent af alríkisfjárlögum færu nú til varnarmála og öryggismála, sem kæmi niður á fjárfestingu og þróun annarra samfélagsþátta.

„Skriðdrekar og sprengikúlur hafa ekkert neyslugildi. Hagkerfið framleiðir þær en almenningur getur ekki neytt þeirra. Þetta eru hrein útgjöld,“ sagði þingmaðurinn.

Hann sagði hergagnaframleiðslu vissulega styðja við atvinnu og laun í varnargeiranum, en að á sama tíma ýtti hún undir verðbólgu og þrengdi að félagslegum útgjöldum og fjárfestingum.

„Þess vegna er einfaldlega nauðsynlegt að binda enda á sérstæðu hernaðaraðgerðina eins fljótt og mögulegt er,“ sagði hann og bætti við að stríðið hefði nú staðið lengur en seinni heimstyrjöldin.

Suleymanov sagði einnig að jafnvel þótt hernaðarútgjöld yrðu lækkuð síðar myndu stór samfélagsleg vandamál taka við.

„Hvað gerist með fólkið sem vinnur í varnariðnaðinum? Og þá sem eru nú undir vopnum? Milljón manns mun snúa aftur til borgaralegs lífs. Hvar eru störfin, mannsæmandi launin og félagslega aðlögunin?“ spurði hann.

Þá nefndi hann einnig þann mikla kostnað sem fylgja muni enduruppbyggingu hernumdra svæða og sagðist hafa séð eyðilegginguna í Mariupol árið 2022 og í Kherson-héraði árið 2023.

Samkvæmt nýsamþykktum fjárlögum Rússlands fyrir árið 2026 munu hernaðarútgjöld nema 12,93 billjónum rúbla. Með öryggis- og löggæsluútgjöldum samanlagt fara útgjöldin í 16,84 billjónir rúbla, sem er um einu og hálfu sinni meira en öll félagsleg útgjöld ríkisins.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir
Innlent

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir

Erindið hafði borist nefndinni 21. maí 2024
Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Brotin klósettseta varð að kærumáli
Innlent

Brotin klósettseta varð að kærumáli

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda
Innlent

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda

María óttast um öryggi sex ára dóttur sinnar á Kársnesi
Innlent

María óttast um öryggi sex ára dóttur sinnar á Kársnesi

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö
Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö

Tók starfsmenn upp án vitneskju þeirra eftir símahremmingar
Innlent

Tók starfsmenn upp án vitneskju þeirra eftir símahremmingar

Tók lögregluna upp í laumi og kvartaði svo yfir framkomunni
Innlent

Tók lögregluna upp í laumi og kvartaði svo yfir framkomunni

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði
Heimur

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði

Stefán má loksins gefa blóð aftur
Fólk

Stefán má loksins gefa blóð aftur

Mannfall og miklar skemmdir í drónaárás á Moskvu-hérað
Heimur

Mannfall og miklar skemmdir í drónaárás á Moskvu-hérað

Erlend kona fékk skilorð eftir alvarlegt slys undir Eyjafjöllum
Innlent

Erlend kona fékk skilorð eftir alvarlegt slys undir Eyjafjöllum

Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

„Ég hugsaði einfaldlega að ég myndi ekki finna aðra jafn einstaka stund“
Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu
Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö
Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði
Heimur

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði

Mannfall og miklar skemmdir í drónaárás á Moskvu-hérað
Heimur

Mannfall og miklar skemmdir í drónaárás á Moskvu-hérað

Loka auglýsingu