Óeirðir brutust út á bílastæði eftir opnunarkvöld tónleikaferðalags rapparans Cardi B, þegar hópur áhorfenda lenti í slagsmálum að sögn vitna á staðnum. Atvikið átti sér stað að loknum tónleikum á miðvikudagskvöldi og vakti athygli meðal gesta, meðal annars vegna óvenjulegs atviks sem átti sér stað í miðjum átökum.
Samkvæmt myndskeiði sem miðillinn TMZ birti, má sjá hóp kvenna berjast á bílastæðinu. Í miðjum átökunum féll pylsa á vélarhlíf bifreiðar sem tilheyrði vitnum sem fylgdust með atburðarásinni úr bílnum sínum.
Ökumaður og farþegi bifreiðarinnar tóku atvikið upp á myndband og heyrast þeir bregðast við með hlátri þegar pylsan lendir á bílnum. Í upptökunni má einnig sjá áhorfendur benda á bifreiðina og hlæja þegar eigendur hennar aka af stað með pylsuna enn á vélarhlífinni.
Lögregluyfirvöld hjá Riverside-sýslu, þar sem slagsmálinu áttu sér stað, staðfestu að um klukkan 22:30 hafi borist tilkynning um líkamsárás á bílastæðinu. Sjúkraflutningamenn hlúðu að einum einstaklingi á vettvangi vegna minniháttar meiðsla. Þá staðfestu yfirvöld að einn einstaklingur hefði verið handtekinn og vistaður í fangageymslu grunaður um líkamsárás.
Ekki liggur fyrir hvað olli átökunum.


Komment