
Bezalel Smotrich, fjármálaráðherra Ísraels, segir að Ísrael hafi „engan áhuga“ á að taka þátt í hernaðaraðgerðum Bandaríkjanna gegn Íran. Þetta kemur fram í umfjöllun í ísraelska dagblaðinu Haaretz.
Ummælin lét Smotrich falla í kjölfar fundar öryggisráðs ríkisstjórnarinnar undir stjórn Benjamins Netanjahús forsætisráðherra.
„Núverandi staða, þar sem átökin milli Írans og Bandaríkjanna eru takmörkuð, er sú rétta og sú besta fyrir okkur. Við erum ekki að leita eftir því að blanda okkur í þau,“ sagði hann.
Smotrich ræddi málið á ráðstefnu sem haldin var í tilefni þess að 21 ár eru liðin frá brottflutningi íbúa úr Gush Katif, fyrrverandi byggðakjarna ísraelskra ólöglegra landnema á Gaza-svæðinu.
Þar sagði hann að meginmarkmið Ísraels væri að veikja írönsku stjórnina og hélt því fram að efnahagslegur þrýstingur væri árangursríkasta leiðin til að ná því markmiði.
Bandaríkin og Ísrael hófu stríðið með umfangsmiklum árásum á Íran 28. febrúar, þar sem meðal annars grunnskóli var sprengdur og um 160 óbreyttir borgarar drepnir, meirihlutinn börn. Íran svaraði með árásum á herstöðvar Bandaríkjanna við Persaflóa og hernaðarmannvirki í Ísrael.
