1
Heimur

Par sett í lífstíðarbann eftir atvik í Kanaríflugi

2
Fólk

Gullfallegt hús í Smáíbúðahverfinu til sölu

3
Menning

Ævintýri í Breiðholti

4
Heimur

Fegurðardrottning myrt

5
Minning

Valdimar Örnólfsson er fallinn frá

6
Fólk

Dorrit þáði ráð frá frægum kynlífsráðgjafa

7
Innlent

BL innkallar MG3-bíla vegna aukinnar slysahættu

8
Heimur

Vinsæl raunveruleikastjarna látin

9
Innlent

Sami hluturinn kom við sögu í tveimur mismunandi lögbrotum

10
Fólk

Huggulegt híbýli handa höfðingjum

Til baka

Sómalskir hælisleitendur krefjast tafarlausrar afgreiðslu mála

„Við bjuggumst við að þegar við kæmum til Íslands yrði komið fram við okkur sem manneskjur, með sanngirni, réttlæti og mannlegri reisn“

Útlendingastofnun
ÚtlendingastofnunSómölsku hælisleitendurnir eru ekki sáttir við meðferðina
Mynd: Víkingur

Hópur fimmtán sómalskra hælisleitenda á Íslandi hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann lýsir mikilli óánægju með meðferð íslenskra yfirvalda á málum sínum og krefst tafarlausrar afgreiðslu. Flestir hópsins hafa dvalið hér í meira en þrjú ár án endanlegrar niðurstöðu í umsóknum sínum um alþjóðlega vernd.

Í yfirlýsingunni segir að margir hafi komið hingað í leit að öryggi undan stríði, ofbeldi og ofsóknum, en upplifi sig nú föst í kerfi sem „hefur engan áhuga á þjáningu okkar“ og brýtur niður mannlega reisn þeirra.

„Við bjuggumst við að þegar við kæmum til Íslands yrði komið fram við okkur sem manneskjur, með sanngirni, réttlæti og mannlegri reisn. En í staðinn finnst okkur við vera föst í kerfi sem hefur engan áhuga á þjáningu okkar og virðist notfæra sér aðstæður okkar. ,“ segir í yfirlýsingunni.

Langvarandi tafir og gagnrýni á Útlendingastofnun

Hælisleitendurnir segja mál sín hafa dregist óhóflega og að hvorki Útlendingastofnun né kærunefnd útlendingamála hafi veitt skýr svör. Þau gagnrýna einnig viðmót starfsmanna, sem þau telja oft einkennast af tortryggni og virðingarleysi, og segja að kerfið beiti töfum viljandi til að knýja þau til að fara sjálfviljug úr landi.

Í yfirlýsingunni kemur fram að margir innan hópsins hafi ekki glímt við andleg veikindi áður en þeir komu til landsins, en streita og óvissa síðustu ára hafi ýtt þeim út í lyfjanotkun. „Töfin er ekki bara óþægileg, hún skaðar líf okkar og heilsu,“ segir þar.

Krefjast fjögurra úrbóta

Hópurinn setur fram fjórar megin kröfur:

  1. Tafarlaus afgreiðsla umsókna í samræmi við lög.
  2. Einstaklingsbundin og gagnsæ meðferð kærunefndar útlendingamála.
  3. Réttlát og virðingarfull málsmeðferð hjá Útlendingastofnun.
  4. Að mannleg reisn og geðheilsa hælisleitenda sé virt og vernduð.

Hópurinn ítrekar að hann leiti aðeins réttlátrar málsmeðferðar og sanngjarnrar verndar. „Við erum ekki hér til að nýta okkur kerfið, heldur vegna þess að við höfðum enga aðra möguleika,“ segir í yfirlýsingunni.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Benjamin Netanyahu greindist með krabbamein
Heimur

Benjamin Netanyahu greindist með krabbamein

„Þökk sé Guði er það að baki.“
Þórður Snær tæklar Snorra
Pólitík

Þórður Snær tæklar Snorra

Salerniraðstöðu rústað á tjaldstæðinu í Hvammsvík
Landið

Salerniraðstöðu rústað á tjaldstæðinu í Hvammsvík

„Ég hef misst aflið á bak við röddina“
Innlent

„Ég hef misst aflið á bak við röddina“

Á að leyfa öðrum en ÁTVR að selja áfengi í smásölu?
Könnun
Innlent

Á að leyfa öðrum en ÁTVR að selja áfengi í smásölu?

Starfsmenn MAST óttast um börnin sín
Innlent

Starfsmenn MAST óttast um börnin sín

„Sérhver árás Ísraela á Líbanon veitir andspyrnunni rétt til að hefna“
Heimur

„Sérhver árás Ísraela á Líbanon veitir andspyrnunni rétt til að hefna“

Finnskur áhrifavaldur fannst látinn í óbyggðum
Heimur

Finnskur áhrifavaldur fannst látinn í óbyggðum

Tíu særðir eftir skotárás í verslunarmiðstöð í Bandaríkjunum
Myndband
Heimur

Tíu særðir eftir skotárás í verslunarmiðstöð í Bandaríkjunum

Alexandria Ocasio-Cortez hellti sér yfir heilbrigðisráðherrann
Heimur

Alexandria Ocasio-Cortez hellti sér yfir heilbrigðisráðherrann

Norðmenn ætla banna börnum að nota samfélagsmiðla
Heimur

Norðmenn ætla banna börnum að nota samfélagsmiðla

Innlent

„Ég hef misst aflið á bak við röddina“
Innlent

„Ég hef misst aflið á bak við röddina“

Gunnar Smári Egilsson opnar sig um áhrif veikindanna á andlegu hliðina.
Eignaspjöll ásamt líkamsárás
Innlent

Eignaspjöll ásamt líkamsárás

Á að leyfa öðrum en ÁTVR að selja áfengi í smásölu?
Könnun
Innlent

Á að leyfa öðrum en ÁTVR að selja áfengi í smásölu?

Starfsmenn MAST óttast um börnin sín
Innlent

Starfsmenn MAST óttast um börnin sín

Sagðist ætla að myrða lögregluþjón
Innlent

Sagðist ætla að myrða lögregluþjón

Loka auglýsingu