
Nokkur mál tengd akstri undir áhrifum áfengis og fíkniefna komu inn á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í dag. Þá voru heimilisofbeldismál, líkamsárás og þjófnaður meðal verkefna lögreglu.
Í einu tilviki var ökumaður handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum bæði áfengis og fíkniefna. Maðurinn reyndist jafnframt vera án ökuréttinda og er einnig grunaður um brot gegn vopnalögum þar sem hann var með hníf.
Farþegi í bifreiðinni neitaði að framvísa skilríkjum og var hann því fluttur á lögreglustöð þar sem hann þurfti að færa sönnur á hver hann væri.
Skömmu síðar hafði lögregla afskipti af öðrum ökumanni sem einnig var grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Þá var haft afskipti af fleiri ökumönnum vegna gruns um fíkniefnaakstur og réttindaleysi.
Einn ökumaður var handtekinn og vistaður vegna gruns um ölvun við akstur og akstur án ökuréttinda. Sá hafði jafnframt verið valdur að umferðaróhappi. Lögregla stöðvaði einnig ökumann vegna of hraðs aksturs.
Einn einstaklingur var handtekinn vegna gruns um líkamsárás og vistaður í fangageymslu. Þá voru tvö heimilisofbeldismál skráð og eru þau til rannsóknar hjá lögreglu.
Auk þess barst tilkynning um þjófnað í verslun og lögregla aðstoðaði sjúkraflutningsmenn í útkalli.
