Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Lýsir yfir dauða internetsins eftir að hafa heyrt „AI-víkingapopp“

Svavar Knútur fékk algjöra velgju

Svavar Knútur dregur ekkert undan
Svavar Knútur dregur ekk­ert undan Mynd: Instagram-skjáskot

Tónlistar­maðurinn Svavar Knútur fer mikinn á opinberri síðu sinni þar sem hann lýsir yfir þungum áhyggjum og mikilli velgju yfir svokölluðu „AI slop“ gervi­greindar­efni sem herjar nú á samfélags­miðla. Tilefnið er Instagram-rás þar sem gervi­greindar­persóna „syngur“ svokallað „víkinga­popp“ á íslensku og skartar yfir 200 þúsund fylgjendum.

Svavar lýsir tónlistinni sem „ógeðslega lélegri, vondri íslensku“ og segir melódíuna „fáránlega slappa meðal­mennsku“ þar sem röddin sé með „hásan, klénan, ofur-autotunaðan glansrispu tón.“

Gagnrýnir skort á stafrænu læsi

Það sem virðist hafa fyllt mælinn hjá tónlistar­manninum var þegar samstarfs­félagi hans sýndi honum skilaboð frá tengda­móður sinni, sem hafði sent rásina áfram og dásamað efnið með orðunum: „Vá hvað þetta er magnað flott!“

Svavar veltir því upp í kjölfarið hvort eldra fólk skorti algjör­lega gagnrýna hugsun gagnvart tækninni. „Er í alvörunni fullorðin manneskja svona skyni skroppin að finnast þetta sálar­lausa ógeð á einhvern hátt manni bjóðandi?“ spyr Svavar á síðu sinni.

Hann dregur einnig upp samlíkingu við stjórn­málin og segist nú skilja fylgi ákveðinna stjórn­málaflokka betur, ef markaður sé fyrir „þennan ótrúlega tilgangs­lausa og falsa viðbjóð.“

„Internetið er dautt“

Að mati Svavars sýnir þetta fram á að svokölluð „Dead Internet Theory“ (kenningin um dautt internet) sé að raun­gerast. Sú kenning kveður á um að meiri hluti efnis og umferðar á netinu sé nú fram­leiddur og stýrður af vélmennum (bottum) fremur en raun­verulegu fólki.

„Internetið er dautt. Þetta er búið,“ segir Svavar. „Bottar gera content fyrir botta sem læka og kommenta og fylgja bottarásum og skafa streymis­tekjur af manneskjum í síauknum mæli. Það er enginn að hlusta á 90% af efninu þarna úti. Þetta eru bara bottar.“

Færsla tónlistar­mannsins snertir á vaxandi áhyggjum innan listamanna­samfélagsins um að gervi­greind og sjálfvirk sýndar­auðkenni séu að metta markaðinn með innihalds­lausu magni á kostnað lifandi menningar og raun­verulegs handverks.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning