Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Eru lögreglumenn eitthvað heilagari en aðrir?“

Segir ákæru­valdið sjá nagla út um allt eftir að hafa fengið hamar í hönd

„Eru lögreglumenn eitthvað heilagari en aðrir?“
Lýsa miklum vanköntum á rann­sókn lög­reglu í Detti­foss-mál­inu Mynd: Víkingur

Verj­endur tveggja manna, sem ákærðir eru í hinu svo­kall­aða Detti­foss-máli, fóru fram á sýknu í ákæru­liðum er varða fíkni­efna­inn­flutn­ing við aðal­með­ferð máls­ins. Mál­flutn­ingur verj­end­anna ein­kennd­ist af harðri gagn­rýni á rann­sókn­ar­að­ferðir lög­reglu, sem sögð var hafa verið „svo léleg“.

Málið snýst um inn­flutn­ing á 14 lítrum af amfetamín­basa sem fluttir voru til lands­ins með flutn­inga­skip­inu Detti­fossi. Ákæru­valdið fer fram á minnst átta ára fang­els­is­dóm yfir öðrum mann­inum, Sævari Erni Hilm­is­syni, en telur sannað að hann og með­sak­born­ingur hans, Kastriot Papej, hafi skipu­lagt inn­flutn­ing­inn í gegnum dulkóð­aða sam­skipta­for­ritið Signal.

Gefi ákæruvaldinu hamar og það sjái nagla út um allt


Stefán Karl Krist­jáns­son, verj­andi Sævars Ernis, gerði rann­sókn lög­regl­unnar að umtals­efni í dóm­sal og sagði mikla van­kanta á henni. Hann full­yrti að lög­reglan hefði ein­fald­lega gefið sér þá for­sendu að Sævar stæði á bak við Signal-reikn­ing­inn „Cloud“, sem gegnir lyk­il­hlut­verki í mál­inu. Að mati Stefáns er það ósannað.

„Hún var svo léleg,“ sagði Stefán um rann­sókn­ina og vís­aði máli sínu til stuðn­ings í ummæli Kamölu Harris; þegar ákæru­valdið fái hamar í hönd, fari það að sjá nagla út um allt. Hann benti á að nafn Sævars hefði ekki komið upp fyrr en löngu eftir að efnin voru komin til lands­ins og að engin við­skipti eða skipu­lagn­ing hefðu átt sér stað þótt Sævar hefði hitt skip­verj­ana.

Stefán gagn­rýndi sömu­leiðis fram­komu ákæru­valds­ins og sak­aði það um að segja ósatt þegar ný sönn­un­ar­gögn, þar á meðal ljós­myndir af vod­kaflöskum, voru lögð fram á fyrsta degi aðal­með­ferðar. Það hafi verið gert þrátt fyrir fyrri yfir­lýs­ingar um að ekki væru til fleiri gögn í mál­inu. „Eru lög­reglu­menn eitt­hvað heilag­ari en aðrir?“ spurði Stefán í dóm­sal.

Sævar krefst sýknu af inn­flutn­ings­á­kærunni en fer fram á væg­ustu refs­ingu fyrir minni brot sem hann hefur þegar játað, svo sem vörslu stera og vopna­laga­brot.

Engin gögn tengja Kastriot við efnin


Leó Daðason, verj­andi Kastriots Papej, fór sömu­leiðis fram á sýknu fyrir sinn skjól­stæð­ing. Ákæru­valdið telur Kastriot standa á bak við Signal-reikn­ing­inn „Milan“, sem átti í sam­skiptum við reikn­ing Sævars um skipu­lagn­ingu smyrsl­ins.

Leó benti á að Kastriot hefði aldrei snert efnin og að hvor­ugur þeirra skip­verja sem fluttu efnin inn þekktu nokkuð til hans. Þá sagði hann ósannað að Kastriot ætti reikn­ing­inn „Milan“. Sak­sókn­ari hefur bent á skila­boð þar sem reikn­ing­ur­inn spyr út í fjöl­skyldu Sævars, en Leó árétt­aði að það sann­aði ekk­ert þar sem þeir væru vinir og margir aðrir þekktu til fjöl­skyld­unnar.

Auk inn­flutn­ings­ins krafð­ist Leó sýknu vegna mari­júana sem fannst á heim­ili Kastriots og að honum yrði ekki refsað fyrir lítið magn af testó­steróni sem ætlað var til einka­neyslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Dómari hafnar kröfu um að leyna nafni þekkts ein­stak­lings

Maðurinn vísaði til sjálfsvígshættu í máli sínu gegn fjölmiðlunum.
Pólitík

Anna María ótt­ast að höggvið verði of nærri kjarna sam­fé­lags­ins

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Pólitík

Sigurjón segir bank­ana reka okur­stefnu og „éta útsæðið“

Heimur

Trump segir Banda­ríkin hætta fjár­hags­að­stoð við Ísrael

Innlent

Innlent

Segir sölu Ljós­leið­ar­ans geta ógnað almanna­hags­munum

Herdís Kjerulf Þorgeirsdóttir varar við að einkavæðing mikilvægra fjarskiptainnviða geti veikt öryggi kerfisins og stöðu almennings.
Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

Sendi­bíl­stjóri vann VÍS og fær tæpar 16 millj­ónir

Innlent

Jóhann dæmdur í 18 mán­aða fang­elsi fyrir barn­a­níðs­efni

Innlent

Létu greipar sópa í Bónus, ELKO og Kids Coolshop

Innlent

Getur munað rúmum 22 þús­und krónum á umfelgun fólks­bíls