Spider Man-leikarinn fyrrverandi Tobey Maguire gegndi óvenjulegu hlutverki þegar fyrrverandi eiginkona hans, skartgripahönnuðurinn Jennifer Meyer, gekk í hjónaband með Geoff Ogunlesi á Hawaii á dögunum. Maguire annaðist sjálfur athöfnina þegar parið gekk í hjónaband á lúxushótelinu Four Seasons Resort Lanai.
Myndbönd frá brúðkaupinu sýna Maguire standa fyrir framan parið og lesa upp texta áður en Meyer og Ogunlesi innsigla hjónabandið með kossi.
Fjöldi þekktra einstaklinga úr Hollywood var viðstaddur brúðkaupið. Þar á meðal voru Leonardo DiCaprio og kærasta hans Vittoria Ceretti, Jeff Bezos, Courteney Cox og Rachel Zoe.
Börn Maguire og Meyer, hin 19 ára Ruby og 17 ára Otis, tóku einnig þátt í athöfninni. Meyer, sem er 49 ára, og Ogunlesi, sem er 34 ára, eignuðust jafnframt barn saman í sumar.
Maguire og Meyer gengu í hjónaband árið 2007 en skildu að borði og sæng árið 2016. Meyer sótti formlega um skilnað árið 2020 og í september síðastliðnum náðu þau samkomulagi um að ljúka skilnaðarmálinu.
Þrátt fyrir sambandsslitin virðist samband þeirra hafa haldist afar gott. Maguire tók þannig að sér eitt helsta hlutverkið á brúðkaupsdegi fyrrverandi eiginkonu sinnar og gaf hana saman við nýjan eiginmann.

