1
Fólk

Einstök paradís úti á landi komin á sölu

2
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

3
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

4
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

5
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

6
Innlent

Draumur Hannesar rættist ekki í Brasilíu

7
Heimur

Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell

8
Heimur

Segir dularfulla skepnu hafa náðst á myndavél í Mexíkó

9
Skoðun

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

10
Innlent

Sveinn Rúnar gagnrýnir viðbrögð við stuðningi Íslands við Úkraínu

Til baka

Stefán Einar leiðréttur

„Algjör óþarfi að reyna að snúa út úr“

Stefán Einar Stefánsson
Stefán Einar StefánssonEr blaðamaður Morgunblaðsins
Mynd: Skjáskot / mbl.is

Orðaskipti brutust út á samfélagsmiðlum milli Stefáns Einars Stefánssonar, blaðamanns á Morgunblaðinu og stuðningsmanns Sjálfstæðisflokksins, og Björns Levís Gunnarssonar, fyrrverandi þingmanns Pírata, vegna fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið.

Stefán gagnrýndi áform ríkisstjórnarinnar harðlega og vísaði til fréttar þar sem fram kom að fleiri Íslendingar hefðu aldrei á síðustu 16 árum sagst alfarið andvígir inngöngu í Evrópusambandið en nú. Hann skrifaði að ríkisstjórnin hygðist „sækja um aðild að Evrópusambandinu í bullandi ágreiningi“ og benti á að forsætisráðherra hefði fyrir kosningar talað um að slík vegferð yrði ekki farin nema í breiðri sátt, meðal annars við aðila vinnumarkaðarins.

Björn Leví svaraði og sagði Stefán fara rangt með málið. Hann lagði áherslu á að ekki stæði til að sækja um aðild að Evrópusambandinu heldur að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort hefja ætti aðildarviðræður.

„Nei, það er verið að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort það eigi að sækja um aðild. Tvennt ólíkt. Algjör óþarfi að reyna að snúa út úr. Það er óheiðarlegt,“ skrifaði Björn og bætti við að niðurstaða slíkrar kosningar yrði einfaldlega lýðræðisleg, hvort sem meirihlutinn samþykkti eða hafnaði því að sækja um aðild.

Stefán lét svar Björns ekki óátalið og skrifaði: „Hlífðu mér kæri Björn. Ég er með ofnæmi fyrir vitleysu.“

Björn svaraði þá aftur með háði og sagði: „Þá verð ég því miður að tilkynna þér að þú ert með sjálfsofnæmi.“ Hann ítrekaði að ríkisstjórnin væri ekki að sækja um aðild heldur hygðist leggja spurninguna um aðildarviðræður í hendur kjósenda.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula
Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit
Fólk

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

Að minnsta kosti 58 manns drepnir í árás vopnaðra manna á þorp í Nígeríu
Heimur

Að minnsta kosti 58 manns drepnir í árás vopnaðra manna á þorp í Nígeríu

Leikmenn Lokomotiv Moscow voru í lest sem Úkraínuher réðist á
Heimur

Leikmenn Lokomotiv Moscow voru í lest sem Úkraínuher réðist á

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds
Heimur

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví
Innlent

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“
Skoðun

Gunnlaugur Stefánsson

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

Þjónustan skorin niður hjá Strætó
Innlent

Þjónustan skorin niður hjá Strætó

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun
Innlent

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun

Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

„Af hverju var þetta leyft?“
Íhugar að fara í mál við Sigfús
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví
Innlent

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví

Þjónustan skorin niður hjá Strætó
Innlent

Þjónustan skorin niður hjá Strætó

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun
Innlent

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun

Loka auglýsingu