1
Fólk

Einstök paradís úti á landi komin á sölu

2
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

3
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

4
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

5
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

6
Innlent

Draumur Hannesar rættist ekki í Brasilíu

7
Skoðun

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

8
Heimur

Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell

9
Heimur

Segir dularfulla skepnu hafa náðst á myndavél í Mexíkó

10
Fólk

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit

Til baka

Stefán Einar blæs lífi í samsæriskenningu

„Það læðist að manni sá grunur að þetta sé hluti af stærra plani hjá þessu liði“

Stefán Einar Stefánsson
Stefán Einar Stefánsson stýrir þættinum SpursmálEr sýndur í vefsjónvarpi mbl.is
Mynd: Skjáskot / mbl.is

Blaðamaðurinn og siðfræðingurinn umdeildi Stefán Einar Stefánsson blæs lífi í samsæriskenningu sem hefur gengið meðal öfgahægrimanna Íslandi undanfarnar vikur.

Í stuttu máli gengur sú kenning út á að núverandi ríkisstjórn, ásamt ákveðnum íslenskum fjölmiðlum, hafi meðvitað gert líf Íslendinga verra til þess að gera inngöngu í ESB meira heillandi.

Í færslu sem Stefán birtir á Facebook ræðir hann frétt sem Berlingske skrifaði um íslenskan sjávarútveg á máta sem siðfræðingurinn er ósáttur við en blaðamaðurinn Emil Eire Frerk Olsen ræddi við 19 heimildarmenn, meðal þeirra eru stjórnmálamenn, sérfræðingar á ýmsum sviðum og fólk sem starfar í sjávarútvegi. Einn þeirra sem Olsen ræddi við er Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra Íslands.

„Þetta er hinn danski Þórður Snær Júlíusson. Maður sem í skjóli blaðamennsku heggur í fólk og samfélög án þess að skeyta um heiður eða skömm. Hann hefur nú ritað dómadagsþvælu í Berlingske sem dregur upp þá mynd af Íslandi að það sé líkast Rússlandi á árunum eftir fall Sovétríkjanna. Hér sé við lýði einhverskonar óligarkía sem stýrt sé af fámennum hópi gjörspilltra manna,“ skrifar Stefán.

„Það er með öllu óskiljanlegt að virtur miðill í Danmörku láti svona lagað frá sér og það geta vart liðið margir dagar uns hann dregur efnið til baka og rekur þennan njóla. Hann er auðvitað í slagtogi við Aðalstein Kjartansson og Helga Seljan sem í undarlegu samkrulli RÚV, Heimildarinnar, áður Stundarinnar og Kjarnans, telja það sitt æðsta og mesta verk að knésetja íslenskan sjávarútveg eins og við þekkjum hann í dag,“ heldur hann áfram.

Stóra planið

„Vegna þess að sú atvinnugrein hefur vaxið að afli og orðið til þess að afla íslensku samfélagi, útgerðarmönnum og sjómönnum auðsældar þá skal allt gert til að sverta hana, meðal annars í augum umheimsins.

Það læðist að manni sá grunur að þetta sé hluti af stærra plani hjá þessu liði. Reyna að veikja stöðu sjávarútvegsins enn frekar í augum almennings á Íslandi, svo fólk sé reiðubúið til þess að kasta honum fyrir róða í von um skjótfenginn gróða af upptöku evru eða 100 þúsund blaðsíðum af regluverki um allt og ekkert milli himins og jarðar.

En það er ömurlegt þegar fjölmiðlamenn ganga fram, af þekkingarleysi eða hreinni meinfýsni og draga upp rammskakka mynd af atburðum eða aðstæðum sem þeim er trúað til að fjalla um. Emil Eire Frerk Olsen fellur í þann fúla pytt að þessu sinni. Það kemur ekki á óvart þegar félagsskapurinn er skoðaður. Fyrir honum fer að lokum eins og Lasse Skytt. Margir muna hvernig þar var reitt til höggs og hvað stóð eftir þegar rykið var sest,“ skrifar Stefán svo að lokum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula
Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit
Fólk

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

Að minnsta kosti 58 manns drepnir í árás vopnaðra manna á þorp í Nígeríu
Heimur

Að minnsta kosti 58 manns drepnir í árás vopnaðra manna á þorp í Nígeríu

Leikmenn Lokomotiv Moscow voru í lest sem Úkraínuher réðist á
Heimur

Leikmenn Lokomotiv Moscow voru í lest sem Úkraínuher réðist á

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds
Heimur

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví
Innlent

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“
Skoðun

Gunnlaugur Stefánsson

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

Þjónustan skorin niður hjá Strætó
Innlent

Þjónustan skorin niður hjá Strætó

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun
Innlent

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun

Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

„Af hverju var þetta leyft?“
Íhugar að fara í mál við Sigfús
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví
Innlent

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví

Þjónustan skorin niður hjá Strætó
Innlent

Þjónustan skorin niður hjá Strætó

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun
Innlent

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun

Loka auglýsingu